Fréttatíminn - 08.03.2013, Page 70
Helgin 8.-10. mars 2013
Etnísk mynstur lífga
upp á grámann
T ískuheimurinn virðist seint ætla að þreytast á mynstruðum fötum og má segja að látleysið ráði ekki för í straumum fyrir vorið. Því fleiri týpur af mynstri því betra. Skemmtileg mynstur eru svokölluð
etnísk mynstur, eða þjóðfræðileg, þjóðleg. Þau geta haft skírskotanir í ýmis
þjóðerni, allt frá Afríku til Indlands, Perú til innfæddra Ameríkana. Etník
hefur einnig verið eitt af einkennum hippatískunar.
Mynstrin virðast skjóta upp kollinum alltaf annað slagið enda mjög lifandi
og falleg. Fréttatíminn tók saman nokkrar skemmtilegar etnískar flíkur
sem gaman væri að eignast með hækkandi sól.
Manish Aurora hefur etníkina í forgrunni vor- og sumarlínunnar. Litirnir eru bjartir og það má sjá gyllt í bland.
Þessar ganga ögn lengra. Þvílík veisla fyrir augað. Fyrirsæturnar voru partur af sýningu ástralska fatahönnuðarins Jenny Kee á
þarlendri tískuviku.
Þessir kjólar af ebay vekja óneitanlega athygli þrátt fyrir hefðbundið snið. Þessir
eru kjörnir fyrir þær sem ekki eru alveg tilbúnar að stíga mynsturskrefið til fulls.
OPIÐ:
MÁN - FÖST
10 - 18
LAUGARD.
10 - 14
VALENTINA
frábær, glæsilegur
Fæst í D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 10.960,-
Laugavegi 178 Sími 551-3366 www.misty.is
Kjóll kr. 12.900
Frábær verð og
persónuleg þjónusta
Fullt af
nýjum
vörum
Háskólanám erlendis
HÖNNUN • LISTIR • MIÐLUN • TIZKA
• Istituto Europeo di Design (Ítalía og Spánn)
• University of the Arts London (Sex skólar)
• Bournemouth University
• Arts University Bournemouth
• London School of Film, Media & Performance
• The Glasgow School Of Art