Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 2
DVD um Davíð
Oddsson
SUS, Samband ungra sjálfstæðismanna,
hefur gefið út DVD disk um Davíð Odds-
son, fyrrverandi formann Sjálfstæðis-
flokksins,
en myndin
ber heitið
Þúsund
stormar. Í
myndinni
er rætt
við sam-
ferðarmenn
Davíðs,
eins og það
er orðað
í fréttatil-
kynningu, en auk viðtalanna eru gamlar
og nýlegar upptökur úr safni Ríkissjón-
varpsins „sem margar hafa ekki verið
sýndar lengi.“ Meðal viðmælanda eru
vinir Davíðs þeir Björn Bjarnason, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, Kjartan Gunn-
arsson og Illugi Gunnarsson. Myndin sjálf
er 83 mínútur en auk þeirra mínútna eru
á diskinum 68 mínútur af aukaefni.
Aðdáendur
Ísfólksins
ættu ekki
að láta
Bóka-
markaðinn
í Perlunni
framhjá
sér fara.
Markaður 20% fleiri titlar á BókaMarkaðinuM
10 þúsund titlar í Perlunni
„Stærstu tíðindin í ár er hvað við erum með mikið af
bókum,“ segir Kristján Karl Kristjánsson en hann
ber hitann og þungann af Bókamarkaðinum í Perl-
unni ásamt sínu fólki. Markaðurinn opnar á morgun
en Kristján segir að aldrei hafi verið boðið upp á
fleiri titla og í ár.
„Í fyrra voru þetta um átta þúsund titlar en í ár
erum við með nærri 10 þúsund titla,“ segir Kristján
og bendir á að þau hjá Perlunni áætli að næstum tíu
þúsund manns komi á dag, þegar mest er.
„Flestir koma auðvitað um helgar en það er ótrú-
legt hvað er oft mikil traffík hérna á virku dögun-
um,“ segir Kristján en Bókamarkaðurinn í Perlunni
opnar sem fyrr segir á morgun og stendur til sunnu-
dagsins 10. mars.
Á heimasíðu
Félags íslenskra
bókaútgefenda,
www.bokaut-
gafa.is, er skjal
með öllum
titlunum sem
eru til sölu í ár
ásamt verði.
Arnaldur
verður að
sjálfsögðu
fyrirferðar-
mikill.
Ólögleg eðla til sölu
Margir ráku upp stór augu þegar þeir skoðuðu
söluvefinn Bland.is í gær en þar var til sölu 50
sentímetra löng eðla á litlar 30 þúsund krónur.
Dýrið er ólöglegt, segja sérfræðingar á Dýra-
spítalanum í Víðidal og á Matvælastofnun segir
Þorvaldur H. Þórðarson að þar á bæ sé verið að
kanna málið en Matvælastofnun hefur með svona
lagað að gera. „Ef þetta er satt þá óskum við
eftir rannsókn,“ segir Þorvaldur en bendir á að í
síðasta svona tilviki hafi verið um grín að ræða.
„Þá var enginn fótur fyrir þessu en við munum
komast til botns í þessu.“
Eðlan sem sögð er sæt og 50
sentímetra löng.
Eðlan sem sögð er sæt og 50 sentímetra löng.
Ásgeir Trausti
sigurvegari kvöldsins
Ásgeir Trausti Einarsson kom, sá og
sigraði þegar Íslensku tónlistarverð-
launin voru afhent á miðvikudags-
kvöld í Hörpu. Ásgeir Trausti hlaut
alls fern verðlaun, flest allra. Fyrsta
platan hans, Dýrð í dauðaþögn, var
valin hljómplata ársins og hann var
valinn Bjartasta vonin. Þá var hann valinn
vinsælasti flytjandinn í kosningu á Tónlist.
is og hlaut auk þess Netverðlaun Tónlist.
is.
Andri Ólafsson og Steingrímur Teague
úr hljómsveitinni Moses Hightower voru
Textahöfundar ársins og meðlimir sömu
sveitar voru Lagahöfundur ársins. Þrenn
verðlaun féllu Retro Stefson í skaut; Tón-
listarflytjandi ársins í flokki popp, rokks
og blús, Glow var lag ársins og myndband
við sama lag, sem Magnús Leifsson gerði,
var myndband ársins.
Andrea Gylfadóttir var valin söngkona
ársins og Valdimar Guðmundsson söngv-
ari ársins. Guðmundur Kristinn Jónsson
var valinn upptökustjóri ársins. Lista yfir
alla verðlaunahafa má finna á iston.is.
V ið getum veitt öll dýr sem á annað borð eru veidd með
skotvopnum. Allt frá rjúpu
og upp í stærsta fíl,“ segir
Indriði Ragnar Grétarsson,
formaður Bogveiðifélags
Íslands.
Mikil fjölgun hefur verið
í hópi þeirra sem leggja
stund á bogfimi hér á landi
síðustu misserin. Frétta-
tíminn greindi í desember
frá stofnun Bogfimiset-
ursins í Kópavogi sem
slegið hefur í gegn og fleiri
og fleiri virðast nú vera
áhugasamir um sportið. En
sumum finnst ekki nóg að
skjóta í mark í æfingasal.
Sífellt fleiri vilja fá að veiða
dýr með boga.
Bogveiðifélag Íslands
var stofnað árið 2010 og
berst bæði fyrir að leyfilegt
verði að veiða með boga
hér á landi og að reglur um
bogaeign verði einfaldaðar.
Félagið hefur til að mynda
sent inn umsögn um ný
vopnalög. „Ísland er held
ég eina landið í Evrópu
sem er með takmörkun á
bogaeign. Við viljum að
bogaeign verði almennari
eins og er í nágrannalönd-
unum en jafnframt leggjum
við til að menn þurfi að fara
á grunnnámskeið áður en
þeir fái leyfi fyrir boga,“
segir Indriði.
Indriði og félagar óskuðu
árið 2011 eftir opinberri
skoðun á því að veiði með
boga verði leyfð. Hann seg-
ir að Umhverfisstofnun hafi
verið falið að skoða málið
og umsögn stofnunarinnar
hafi verið mjög jákvæð.
„Svo var haldinn fundur í
byrjun júní og síðan er bolt-
inn búinn að vera hjá um-
hverfisráðuneytinu. Í raun
hefur lítið skeð síðan þá,
okkur finnst þetta frekar
langt ferli,“ segir Indriði.
Jón Geir Pétursson,
skrifstofustjóri í umhverf-
isráðuneytinu, staðfestir
að ráðuneytinu hafi borist
erindi frá Bogveiðifélag-
inu sem sé í skoðun. Hann
segir að ekki sé enn komin
niðurstaða í málið.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Veiði BogVeiðiMenn Vilja njóta saMa réttar og skotVeiðiMenn
Vilja veiða hreindýr
og rjúpu með boga
Bogfimimenn vilja fá að veiða dýr hér á landi eins og gert er í nágrannalöndunum. Erindi þess
efnis er til skoðunar í umhverfisráðuneytinu. Bogfimimenn segjast geta veitt hvaða dýr sem er
með vopni sínu.
Indriði Ragnar Einarsson er vígalegur
með bogann. Hann og félagar hans í Bog-
veiðifélagi Íslands vilja fá að veiða dýr
hér á landi, rétt eins og skotveiðimenn.
2 fréttir Helgin 22.-24. febrúar 2013