Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 54
Ólafur Helgi í gervi Starínu sem hann kennir fyrstu tískulínu sína við. Hann segist alls ekki vera fastur í því að hanna kjóla og flíkur á konur og geti vel hugsað sér að hanna á bæði kynin. Aðdáendur Emmsjé Gauta geta barið hann augum og átt við hann hlýlegt spjall yfir öli, eða kaffibolla á Dollý þar sem hann stendur vaktina reglulega. Kitlaðu bragðlaukana með þriggja rétta matseðli og eigðu kósýkvöld að hætti Nauthóls. KÓSÝ Á KVÖLDIN www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is S. 599 6660 FYRSTA SVANSVOTTAÐA VEITINGAHÚSIÐ Á ÍSLANDI Rapparann Emmsjé Gauta ættu flest að þekkja. Hann er þekktur fyrir umdeilda textasmíð og ögrandi, ungæðingslega framkomu. Svo er hann mikill kvennaljómi. Það sem færri vita er að fyrir utan veröld rappsins er Gauti nemi í grafískri miðlun og vinnur á Dolly og Prikinu. Hann segir það ekki gefandi starf, en mjög skemmtilegt. „Það er bara ekkert gefandi við að vinna á bar. Þetta er eins og að vinna á sambýli nema að þú ert ekki að gera skjólstæðingum þínum neitt gott og engan sérstakan greiða með því að „servera“ þá með áfengi. Svo gefa þeir frekar lítið af sér til baka,“ segir Gauti og hlær. „Þetta er samt mjög gaman. Það er fínt að vera með á djamm- inu án þess að vera alltaf að djamma sjálfur. Þannig er þetta „winw- in“.“ Gauti segir að með þessum ráðum takist honum að ein- beita sér að því sem máli skipir, náminu. „Ég er í Iðnskólanum í graf- ískri miðlun. Það er mjög fróð- legt að vera með öllum þessum ungmennum í tímum á daginn. En það var kominn tími til að klára þetta.“ Gauti fær hjálp við námið frá litla bróður sínum. „Bróðir minn, sem er þrettán ára, er að redda mér með stærð- fræðina og íslenskuna.“ Aðspurður segir hann nóg að gera í rappinu, en það sé nær full vinna. Einnig hafi hann verið að setja í gang glænýjan feril sem plötusnúður svo það er ljóst að það er nóg að gera hjá rappstjörnunni. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Emmsjé Gauti á djammvaktinni  Dana Smith treyStir á arnolD og iðunni Fer með Íslendingum í tískutöku í Færeyjum Hollenski skartgripahönnuður- inn Dana Smith, hjá skart- gripafyrirtækinu Deriva, ákvað í fyrra að fá Arnold Björnsson ljósmyndara til þess að taka myndir fyrir kynningarefni fyrirtækisins á Íslandi. Hún fékk fyrirsætuna Magdalenu Dubik til þess að sitja fyrir á myndunum með skartið sem hún hannaði. „Þótt ég hafi aldrei komið til Íslands þá hef ég séð ljósmyndir þaðan og myndir í sjónvarpinu og mér fannst að ég ætti að fara þangað til að mynda í íslenskri nátt- úru.“ Þetta sagði Dana við Fréttatímann áður en hún kom hingað í fyrra en hún var svo ánægð með samstarfið við Arnold og sminkuna Iðunni Jónasar að hún hefur fengið þau til þess að koma með sér til Færeyja í maí til þess að taka myndir fyrir skartgripalínu þessa árs. Dana segir Íslandsförina í fyrra hafa lagt fullkominn grunn að frekara sam- starfi við Arnold og Iðunni og þess vegna hafi hún ákveðið að fá þau með sér til Færeyja í maí. Dönu þykja Færeyjar ekki gefa Íslandi mikið eftir í náttúrufegurð en ætlar sér að þessu sinni að notast við hollenska fyrirsætu, Jaimy Boeve, sem Arnold segir að sé vel þekkt í heimaland- inu. „Ég hef aldrei mætt svona jákvæðu viðmóti og miklum samstarfsvilja. Þið eruð hlýtt og þægilegt fólk,“ sagði Dana á sínum tíma og vill endilega halda áfram að vinna með Íslendingum þótt Færeyjar hafi að þessu sinni orðið fyrir valinu sem tökustaður. -þþ Dana var yfir sig ánægð með sam- starfið við Íslendingana á síðasta ári. Dana Smit segir helst nota ljóshærðar fyrirsætur þar sem skart hennar virðist klæða þær sérlega vel. Í fyrra fékk hún fyrrverandi Ungfrú Reykjavík, Magdalenu Dubik, til liðs við sig en í ár mun Jaimy Boeve skreyta sig með Deriva-skarti í Færeyjum.  Ólafur helgi hannar kjÓla með eigin fötlun í huga Réðist lítill og skakkur inn í tískuheiminn Tískuhönnuðurinn og draggdrottningin Ólafur Helgi er að ljúka tísku- og textílhönnunarnámi í Mílanó. Hann er líkamlega fatlaður en lét skakkan hrygg sinn ekki aftra sér frá því að hasla sér völl í tískuhönnun þar sem allt hverfist um útlit og hégóma. Hann sýnir hluta af útskriftarverkefni sínu í Gerðubergi í tengslum við Hönnunarmars en í sköpun sinni kafar hann djúpt ofan í sjálfan sig og hannar út frá fötlun sinni. Ó lafur Helgi sýnir sína fyrstu tísku-línu í Gerðubergi í næsta mánuði en línan er hluti af út- skriftarverkefni hans frá skólanum Nouva Accademia di Belli Arti Milano. Línan er hönnuð fyrir sviðsframkomu og heitir Starína Couture sem vísar til hliðarsjálfs Helga en þegar hann klæðir sig upp í draggi kallar hann sig Starínu. „Ég hef hannað mikið fyrir draggdrottningar hér heima þar sem ég hef stundað dragg sjálfur. Lokaverkefnið átti einnig að endurspegla sjálfs- ímynd mína þannig að ég kafaði djúpt bæði í sálarlíf mitt og reyndi að hanna kjóla út frá líkamlegu útliti mínu,“ segir Ólafur Helgi sem miðar allar flíkur í línunni við að þær séu fyrir sviðsframkomu. „Ég hef alltaf haft áhuga á leikhúsi og ætlaði mér alltaf í búningahönnun en ég leiddist út í tískuhönnun.“ Ólafur Helgi lauk stúdents- prófi frá tískutextílhönnunar- braut FB en þar ákvað hann að leggja tískuhönnun fyrir sig að áeggjan námsráðgjafa. Leiðin lá síðan til Mílanó. „Það er sagt að Mílanó sé helsta tískuborgin á eftir París og þetta er búið að vera mikið ævintýri og ég hef lært margt af því að búa þarna úti.“ Ólafur Helgi segir að fötlun hans hafi verið honum ákveðin hindrun þar sem þessi heimur sem hann valdi sér hverfist um ytra útlit. En hann lét það ekki aftra sér og lét hjartað ráða för. „Kjarninn í lokaverkefninu er ekki síst sá að maður eigi að standa með sjálfum sér og hafa trú á sér. Ég kynntist tískunni bara eins og hún er og hún er hégómafull og allt snýst um útlitið,“ segir Ólaf- ur Helgi sem lýsir sjálfum sér sem „litlum, skökkum og furðulegum.“ „Einstaklingur eins og ég, sem er með líkamlega fötlun, þarf því að berjast svolítið fyrir því að vera í þessum bransa og ég fann sérstaklega fyrir því úti að ég þurfti að hafa fyrir því að vera tekinn alvarlega.“ Barátta Ólafs Helga við sjálfan sig og fordóma tískuheimsins borgaði sig þó og hann nýtur þess sem hann er að gera. „Þetta er rosalega spennandi og maður sér líka að tíska er miklu meira en bara fatnaðurinn sem maður er í. Þetta er list og það er hægt að tjá sig með flíkunum,“ segir Ólafur Helgi sem vonast til þess að fá vinnu við búningahönnun í leikhúsi og kvikmyndum. „Síðan hef ég gríðarlegan áhuga á því að stofna mína eigin verslun og vera með glamúrkjóla fyrir þessar íslensku stjörnur sem við eigum.“ Sýning Ólafs Helga opnar í Gerðubergi fimmtu- daginn 14. mars, klukkan 17. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Einstaklingur eins og ég, sem er með líkamlega fötlun, þarf því að berjast svo- lítið fyrir því að vera í þessum bransa. 54 dægurmál Helgin 22.-24. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.