Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 46
46 bíó Helgin 22.-24. febrúar 2013  Flight ÁFengi og kókaín D enzel Washington leikur flugstjórann Whip Whitaker sem hefur tekist vel að fela að hann er fársjúkur alkóhólisti. Eftir svefnlitla nótt sem hann eyddi í ótæpilega drykkju, dópneyslu og að gamna sér með flugfreyju fer hann í loftið eins og ekkert hafi í skorist. Svart kaffi og verkjatöflur, ásamt smá vodkablöndu í appelsínusafa virðast ætla að koma honum klakk- laust í gegnum flugið. Þrátt fyrir bágborið ástandið bregst hann hár- rétt við þegar alvarleg bilun kemur upp í vélinni í aðflugi og honum tekst að brotlenda vélinni hetjulega en sex manns týna þó lífi í ósköpun- um. Hins vegar þykir ljóst að miklu verr hefði farið ef Whitaker hefði ekki sýnt snilldartilþrif við stjór- nvölinn. Á meðan Whitaker liggur með- vitundarlaus á sjúkrahúsi kemur í ljós að í blóði hans er áfengi og kókaín þannig að hetjan á nú yfir höfði sér málshöfðun og ákæru fyrir manndráp af gáleysi. Þetta dugir þó ekki til þess að alkinn sjái að sér og Whitaker heldur áfram að drekkja enda vel brynjaður af afneitun- inni sem er öruggasta vígi virkra drykkjusjúklinga. Á flótta undan fjölmiðlum með rannsókn yfir höfði sér reynir Whitaker að ríghalda í sjálfan sig þótt við öllum í kringum hann blasi að botninum er náð. Denzel Washington hefur greint frá því að hlutverkið hafi tekið á og hann hafi því ákveðið að skella sér í has- argrín með Mark Whalberg undir leikstjórn Baltasars Kormáks í 2 Guns eftir að hann klár- aði Flight. Hann hafi þurft að fá smá létt- leika eftir hálofta- dramatíkina. Leikarinn keppir við harð- snúið lið um Óskarinn sem besti leikarinn í aðal- hlutverki en Bradley Cooper (Silver Linings Playbook), Daniel Day-Lew- is (Lincoln), Hugh Jackman (Les Misérables), og Joaquin Phoenix (The Master) eru tilnefndir með Washington. Daniel Day-Lewis er funheitur í hlutverki eins dáðasta forseta Bandaríkjanna og ansi líklegur til þess að hljóta náð fyrir augum Akademíunnar. Washing- ton segist líka vera orðinn frekar rólegur gagnvart Óskarnum eftir að hafa verið tilnefndur sex sinnum og hlotið þau tvisvar, sem besti leikar- inn í Training Day og besti auka- leikarinn í Glory. Robert Zemeckis er þungavigtar- maður á sínu sviði sem státar meðal annars af Back to the Future-þrí- leiknum, Romancing the Stone og Forrest Gump. Árið 2000 sendi hann frá sér tvær myndir, spennu- tryllinn What Lies Beneath, með Harrison Ford og Michelle Pfeifer, og Cast Away þar sem Tom Hanks var strandaglópur á eyðieyju. Eftir það sökkti hans sér í tölvuteikni- myndirnar The Polar Express, Beo- wulf og A Christmas Carol en snýr nú aftur í kjötheima með glæsibrag með Flight. Aðrir miðlar: Imdb. 7.3, Rotten Tomatoes: 78%, Metacritic: 76% Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Denzel hátt uppi Denzel Washington hefur ýmislegt að fela í Flight. Judd Apatow er (The 40 Year Old Virgin, Knocked Up) er frekar sniðugur náungi sem kemur meðal annars að gerð hinna dásamlegu gamanþátta Girls sem framleiðandi. Í This is 40, sem er sögð einhvers konar framhald af Knocked Up, tekur hann á hversdagslegum vandræð- um fólk sem glímir við að reka heimili og skelfinguna sem sumir upplifa þegar þeir komast á fimmtugsaldurinn. Pete og Debbie hafa verið gift í fjölda ára og eiga saman tvær dætur. Pete berst í bökkunum við að halda útgáfu- fyrirtæki sínu á floti og hann og Debbie reyna að læra að gleyma, fyrirgefa og njóta lífsins saman. Áður en að þau drepa hvort annað. Apatow sækir hér innblástur í eigin reynslu en dætur hans leika dætur hjónanna í myndinni. Aðrir miðlar: Imdb: 6.3, Rotten Tom- atoes: 52%, Metacritic: 59%  this is 40 JuDD apatow í stuði Einhvers konar framhald Daglegt líf reynir á þolrif hjónanna.  Jagten Mannorði rústað Múgsefjun í dönskum smábæ Danska myndin Jagten hefur vakið verðskuldaða athygli en hún fjallar um heilmikið fár sem verður í dönsk- um smábæ þegar leikskólakennari er ranglega sakaður um að hafa misnotað barn. Hinn stórgóði leikari Mads Mikkels- en leikur leikskólakennarann Lucas sem lendir í hakkavél múgsefjunnar þegar logið er upp á hann að hann hafi misnotað barn. Slúðrið sem fylgir í kjöl- farið með tilheyrandi ofsa og illgirni verður til þess að Lucasi er útskúfað úr samfélaginu og á sér vart viðreisnar von. Jagten keppti á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra þar sem Mikkelsen var valinn besti leikarinn fyrir frammi- stöðu sína í myndinni. Thomas Vin- terberg leikstýrir þessari átakanlegu mynd og nær sterku taki á tilfinningum áhorfenda sem komast líklega fæstir hjá því að leiða hjá sér sársaukann sem útskúfunin kallar yfir aðalpersónuna. Aðrir miðlar: Imdb: 8.3, Rotten Tomatoes: 91% Veröld leikskólakennarans Lucasar hrynur til grunna þegar hann er ranglega sakaður um kynferðisbrot gegn barni. VITA er í eigu Icelandair Group. VITA er lífiðVITA Suðurlandsbraut 2 Sími 570 4444 Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Páskaferð til Kína 20. mars – 3. apríl 2013 Í þessari eftirminnilegu ferð VITA til fjölmennasta ríkis heims upplifir þú fjölmargar af helstu menningar- og náttúruperlum sem þessi forni menningarheimur hefur að bjóða. Fararstjóri: Héðinn Svarfdal Björnsson Innifalið: flug, skattar, gisting, á 5 stjörnu hótelum, íslenskur fararstjóri og ferðir og fæði skv. ferðalýsingu. *Verð án Vildarpunkta 499.900 kr. Verð frá 489.900 kr.* og 12.500 Vildarpunktar Framandi og heillandi menningu Kínamúrinn Yangtze fljótið Torg hins himneska friðarSkýkljúfa ShanghaiSpennandi matargerð Upplifðu: ÍS L E N S K A /S IA .I S /V IT 6 32 17 0 2/ 13 Við Viljum Vita möguleg innganga Íslands Í eVrópusambandið snýst um hagsmuni almennings – um lÍfskjör – um framtÍð. klárum Viðræðurnar og sjáum samninginn. jaisland.is Denzel Washington er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Flight. Sá ágæti leikstjóri Robert Zemeckis hefur verið fastur í tölvuteiknuðum myndum síðustu ár en sýnir í Flight að hann hefur engu gleymt þegar kemur að fólki af holdi og blóði. Washington leikur hér flugstjóra sem tekst með snarræði að af- stýra stórslysi þegar bilun kemur upp í vél hans í lendingu. Hetju- ljóminn rennur þó fljótt af honum þegar í ljós kemur að hann var með áfengi og kókaín í blóðinu þegar hann brotlenti vélinni. Á meðan Whitaker liggur meðvitundar- laus á sjúkrahúsi kemur í ljós að í blóði hans er áfengi og kókaín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.