Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 34
Aðhald í tólf tíma
Í
„Í dag er það til siðs að karlar gefi
konum blóm á konudaginn.“ Þetta er
sagt berum orðum í myndatexta á vís-
indavef Háskóla Íslands þar sem fjallað
er um uppruna þessa merka dags. Text-
anum fylgir mynd af fögrum blómvendi
þar sem blandað er saman blómadýrð
sem magnast upp í litasinfóníu. Rauð
blóm mynda krúnuna, studd af gulum
sem opnast fallega undir þeim rauðu.
Fjólublá og hvít blóm skjótast þar inn á
milli og grænu blöðin fullkomna sköp-
unarverkið. Konudagurinn er á sunnu-
daginn, fyrsta dag Góu, svo það er eins
gott fyrir karla þessa lands að hysja
upp um sig brækurnar. Vísindavefur
merkustu menntastofnunar þessa lands
dregur ekkert undan og varla mótmæl-
um vér – það er til siðs að karlar gefi
konum blóm á konudaginn – og hana
nú! Þar duga engir bónus-vendir. Þeir
eru til hvunndagsbrúks. Almennilegt
skal það vera.
Ef eitthvert vit er í körlunum splæsa
þeir í vöndinn í dag svo elskulegar kon-
urnar njóti blómanna alla helgina. Það
verður því kátt í kotinu hjá blómsölum
um helgina. Þótt bókfest dæmi þess
að orðið konudagur sé notað um fyrsta
dag góumánaðar séu ekki eldri en frá
miðri 19. öld gæti orðið verið mun eldra
í talmáli og sennilegt er að menn hafi
haldið veislu í upphafi hinna gömlu
vetrarmánaða, hvort heldur var þorri
eða góa. Það var hins vegar ekki fyrr
en árið 1927 að konudagurinn hlaut þá
opinberu viðurkenningu að vera tekinn
upp í Almanak Þjóðvinafélagsins. Á
fjórða áratug liðinnar aldar byrjuðu
kaupmenn að auglýsa sérstakan mat
fyrir konudaginn og kvöldskemmtanir
voru auglýstar um 1940. Blómasalar
tóku hins vegar ekki við sér fyrr en um
miðjan sjötta áratuginn þegar Þórður
á Sæbóli, frægur blómasali í Kópavogi,
byrjaði að auglýsa konudagsblóm. Það
var upphafið að miklu ævintýri.
Það er fínn siður að gefa blóm. Blóm
gleðja, eins og blómasalarnir minna
okkur á. Umfram allt er siðurinn
einfaldur. En mannkynið hefur til-
hneigingu til að flækja málin og fleiri
vilja komast í pottinn, græða á konu-
deginum. Heilsuátak það sem hefst að
jafnaði um áramót stendur yfirleitt enn
í febrúar. Það átak helgast af grenning-
arþrá karla en ekki síður kvenna. Inn
á þann markað sækja sniðugir mark-
aðsmenn nútímans, eins og Þórður
á Sæbóli með konudagsblómin á
sínum tíma. Fyrir komandi konu-
dag hefur glumið í eyrum mínum
auglýsing um verðlaunaleik í til-
efni dagsins – og verðlaunin
eru ekki blóm heldur
aðhaldsfatnaður svo-
kallaður.
Þar verð ég að
viðurkenna
að ég er
ekki á
heima-
velli,
þekki
ekkert
til aðhalds-
fatnaðar,
hvorki á konur né
karla. Þó gef ég mér,
miðað við auglýsingarnar,
að aðhaldsbúnaðurinn sér
fremur ætlaður konum. Blóm
eru falleg, svo mikið veit ég,
og án efa vel þegin. Það er
líka auðvelt að velja þau. Ég
ekki jafn viss um aðhalds-
búnaðinn.
Mér er hins vegar ekkert
mannlegt óviðkomandi og
leitaði því upplýsinga um
aðhaldsfatnað og nákvæmra
upplýsinga um brúkun hans,
þótt ég, af hyggjuviti einu,
ímyndaði mér að hann væri
einhvers konar felubúning-
ur. Barnaland hlaut að hafa
svarið, eða Bland eins og
vefurinn heitir víst í seinni
tíð. Þar kom ég ekki að
tómum kofanum, lenti strax inn á spjall-
vef kvenna. Auðvitað átti ég ekki að
vera þar, en nauðsyn brýtur lög. „Hvar
fær maður aðhaldsfatnað fyrir kjól?“
spurði upphafskona spjallsins og ekki
stóð á svörum. Sú fyrsta hafði fundið
háar nælon stuttbuxur en viðurkenndi
að bras hefði verið að komast í gallann.
Önnur greip þráðinn þar sem frá var
horfið og dásamaði buxur sem næðu
alveg upp að brjóstum og hefðu þann
kost að rúlla ekki niður. Það sér hver
maður, jafnvel karlmaður, að betra er
að búnaðurinn hangi uppi en sígi ekki
niður þegar verst á stendur. Sú þriðja
átti ekki í neinum vandræðum með upp-
hengjur því hún sagðist hafa verið 12
tíma í aðhaldinu og „það hreyfðist ekki
neitt“. Þar var ég ekki viss um hvað við
var átt, hvort aðhaldsbúnaðurinn hefði
ekki hreyfst eða hvort það sem í haldi
var hreyfðist ekki í hálfan sólarhring,
væntanlega holdfyllingarnar. Um leið
spurði ég sjálfan mig hvort þessi kona, í
svo góðu aðhaldi, hefði á þessum gefna
tíma ekki þurft að pissa – og hvað gera
konur þá? Spyr sá sem ekki veit.
Sú fjórða blandaði sér í umræðuna og
sagði hagstæðast við þessar aðstæður
að kaupa sér buxur eða „einhverskonar
vafning“ eins og hún orðaði hið heppi-
lega aðhald um frjálslegt holdið. Ég veit
ekki hvers konar klæði þar um ræðir
eða hvort viðkomandi kona þarf aðstoð
við að komast í „vafninginn“.
Fimmta konan fylgdi í kjölfarið, greip
vafninginn á lofti og spurði hinar hvort
þær hefðu prófað aðhaldsbuxur. „Ég á
aðhaldsbuxur,“ bætti hún við, „sem ná
sirka niðrá hné og svo upp undir brjóst
og ég eeeeeeeelska þær!“ Þarna er staf-
rétt haft eftir fimmtu konunni og bros-
kall fylgdi :). Hún leyndi ekki hrifningu
sinni á aðhaldsbuxunum og lagði að
hinum konunum að fá sér slíkar. Allt
fyrir fegurðina, eins og þar stendur,
enda fylgdi þessi kona greinargerðinni
eftir með hreinskilinni lýsingu á með-
ferð aðhaldsbuxnanna: „Það eru átök að
komast í þær en það er algerlega þess
virði – þær halda við allt!“
Hvað þetta „allt“ er þarf ég ekki
að vita. Þegar þarna var
komið lestrinum lokaði ég
vefnum, kominn heldur
langt inn í veröld þess-
ara góðu kvenna í sak-
lausri upplýsingaleit
um konudagsauglýs-
ingar.
Ég mun halda
mig við blómin.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
34 viðhorf Helgin 22.-24. febrúar 2013
TRAUSTUR
DRYKKUR
GETUR GERT
KRAFTAVERK
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð 40.000
Höfðagaflar 5.000
Sjónvarpsskápar 25.000
Rúm 153cm 157.000
Púðar 2.900
Vín
Torino
Fjarstýringavasar 2.500
Hægindastólar 99.000
Tungusófar 75.400
Hornsófar 119.450
Sófasett 99.900
Mósel
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N