Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 28
Skráning og morgunverður
Ráðstefna sett
Graeme Newell – Emotional marketing
Hlé
Kaspar Basse – Joe & the Juice
Capacent rannsókn
Hádegishlé – léttur hádegisverður
Simonetta Carbonaro - People’s longing
for authenticity. More than just a new
marketing trend.
Tom Allason – Shutl: Delivering web orders in
90 minutes will change buyers behaviour.
Hlé
Peter Dee – Johnnie Walker: Keep Walking
Ráðstefnulok.
08.30
09.00
09.10
10.10
10.30
11.15
11.30
12.45
13.45
14.30
15.00
16.00
Dagskrá ÍMARK dagsins
ÍMARK Dagurinn
1. mars 2013
Harpa
Skráning á imark.is
#imark
Hin fimm fræknu
Fimm frábærir fyrirlesarar á ÍMARK deginum í Hörpu
föstudaginn 1. mars.
Fróðleg og skemmtileg erindi sem enginn markaðsmaður
vill missa af.
Ráðstefnustjóri er Ingólfur Örn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri markaðssviðs Marel.
inn tónlistarmaður ennþá en innra með honum
bjó sköpunarkraftur sem vildi útrás. Hann
kynntist Chris Pearson í gegnum sameiginlega
vini í Denver í Colorado og þeir stofnuðu The
Czars saman. Hljómsveitin gaf út sjö plötur og
náði ákveðnum költ-status. John lifði allavega
á þessu en við endalok hljómsveitarinnar var
hann farinn að drekka of mikið og þurrkaði sig
því upp og varð edrú.
Fíllinn og staurinn
John tekur sjálfur ábyrgð á því að The Czars
hafi aldrei tekið almennilega flugið.
Hann var ekki tilbúinn að leggja allt
í tónlistina og textana fyrr en hann
gerði sólóplötuna Queen of Den-
mark. Hann var enn hræddur við
álit annarra og hafði litla sjálfsvirð-
ingu. Hann reyndi að nota áfengi til
að bæta sér upp tómarúmið en það
gekk ekki. Hann segir að uppeldið
hafi haft það sterk mótunaráhrif á
hann og dæmisagan um sirkusfílinn
er honum hugleikin. Þannig er að
þegar það fæðist fílsungi í sirkus þá
er hann bundinn við lítinn staur í
básnum sínum. Svo stækkar fíllinn
og stækkar þannig að staurinn er
orðinn að tannstöngli. En fíllinn sér
það ekki. Hann veit ekki að hann
getur rifið staurinn upp með rótum
og gengið hvert sem hann vill. Hann
heldur að hann sé fastur. John seg-
ist hafa verið þessi fíll alltof lengi en
í dag hafi hann kastað af sér hlekkj-
unum.
Dæmi um þetta er að í Þýska-
landi gekk John strax í kirkju og tók þátt í starfi
kristilegra samtaka. Hann kynntist fullt af góðu
fólki auðvitað, líka í kirkju foreldra sinna, „því
trúarbrögð ganga auðvitað fyrst og fremst út
á hið góða,“ segir hann þótt sjálfur hafi hann
fengið að upplifa hið slæma á eigin skinni.
En áður en John flutti heim hafði hann yfir-
gefið kirkjuna og sent foreldrum sínum bréf
þess efnis að hann væri samkynhneigður. Hann
stílaði bréfið á pabba sinn en mamma hans
opnaði það:
„Hún sá strax eftir því,“ segir John og viður-
kennir að hafa upplifað mikla reiði í kringum
andlát móður sinnar en að í dag sé hann miklu
sáttari.
Einhleypur í dag
Þegar The Czars hættu og John varð edrú
kynntist hann manni og varð ástfanginn í fyrsta
sinn. „Ég upplifði nánd í fyrsta sinn og kynlíf
sem var fallegt og gott,“ segir hann en þegar
upp úr sambandinu slitnaði brotnaði hann alveg
niður.
„Ég gat ekki hugsað mig út úr þessari miklu
sorg og þetta ruglaði mig alveg í ríminu. Kall-
aði fram allar þessar spurningar um fortíð
mína. Hver er ég? Af hverju er þetta svona sárt?
Af hverju er ég að missa vitið?“
Allir sem hafa hlustað á Queen of Denmark
vita að um það fjallar það mikla meistaraverk
meðal annars. John segir að Queen of Den-
mark hafi bjargað lífi hans. Þannig séð. Hann
setti allt sitt í plötuna og tónleikaferðalagið
sem fylgdi og það skilaði honum til Íslands á
Airwaves og gaf honum nýtt líf. En það á sér
líka dekkri hið eins og oft vill verða í lífinu því í
þessari miklu ástarsorg segist John hafa leitað
huggunar í kynlífi og hann smitaðist af HIV
veirunni:
„Ég var enn að refsa sjálfum mér fyrir að vera
ekki nógu góður. Ég hef þurft að flýja svo margt
í lífinu að stundum þegar ég leit í spegil þá
fannst mér ég ekki sjá sjálfan mig,“ segir John
sem veltir því oft fyrir sér hvort fortíð hans og
mótandi bernska muni valda því að hann eigi
ekki séns í heilbrigt og fallegt samband: „Ég
er einhleypur í dag og svimar bara við tilhugs-
unina um samband,“ segir John.
Tekur Ísland með sér
„Ísland hefur tekið mér opnum örmum,“ segir
John uppfullur af auðmýkt og þakklæti. „Ég
þekkti engan þegar ég kom hingað fyrst en hef
eignast fjölda vina. Strax og ég kom hingað
fyrst fann ég fyrir ást,“ segir John en það er
nákvæmlega það sem maður finnur við fyrstu
viðkynningu frá John sjálfum.
„Já, já, ég á sjálfur mikla hlýju og kærleika
að gefa. Fólk tekur mér svo vel hérna og sam-
þykkir mig eins og ég er,“ segir John sem hefur
langa tónleikaferð í næsta mánuði. Hann er
mjög feginn því að nokkrir íslenskir strákar
ætli með honum því þá þarf hann ekki að yfir-
gefa landið. Hann ætlar að taka Ísland með sér
á tónleikaferð um heiminn.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@gmail.com
Ég er ein-
hleypur
í dag og
svimar bara
við tilhugs-
unina um
samband.
John er ótrúlegur tungumálamaður og talar reiprennandi þýsku, rússnesku og spænsku auk þess sem hann er að ná betri og
betri tökum á íslensku.
28 viðtal Helgin 22.-24. febrúar 2013