Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.02.2013, Side 16

Fréttatíminn - 22.02.2013, Side 16
hækkun á úrvalsvísitölu Hækkun úrvals- vísitölunnar frá áramótum. GreininG Íslandsbanka LAGASTOFNUN Jóhannes Karl Sveinsson hrl. hjá Landslögum hf. reifar málflutning og niðurstöðu í Icesave málinu. Morgunverðarfundur föstudaginn 22. febrúar kl. 8 - 9:30 á Hótel Sögu Radisson Blu. (Katla á annarri hæð).  Stjórnandinn Græjukona sem kann ekkert á græjur nafn: liv Bergþórsdóttir. Starf: Framkvæmdastjóri nova, stjórnarformaður Wow og í stjórn telia í noregi. aldur: 43 ára. Menntun: viðskiptafræðingur. Fyrri störf: ss, tal, sko, Og vodafone. Maki: sverrir viðar hauksson, ráðgjafi hjá Capacent. Börn: rakel María, tómas viðar, kormákur og sverrir konráð. Búseta: Garðabær sl. 14 ár. Morgunstund Ég vakna og það er komið hádegi áður en ég veit af, svo er dagurinn og vikan búin. Hefðir Lítið fyrir þær. Græjan Ég hljóma eins og auglýsing: iPhone, iPad, Macbook Air og iMac. Lítil og nett myndavél á óskalistanum. Geng um með Garmin sundúr sem ég ætti að nota meira í vatni og minni í að athuga bara hvað klukkan er. Eitt sem ein- kennir mig þó og græjur er að ég kann ekkert á þær, tölvur virðast bila í návist minni eða eitt- hvað hreint ótrúlegt gerist. Minn tími Sund. Áhugamál Ferðalög. Klæðaburður Gallabuxur, bolur og háir hælar, mjög háir hælar svo ég sjáist segja sumir. Boðskapur 0 kr. Nova í Nova!  Markaður dagleg velta uM 1,1 Milljarður Hlutabréf halda áfram að hækka Hlutabréf hafa haldið áfram að hækka í verði í febrúar. Úrvalsvísitalan OMXI6 hefur hækkað um 4% það sem af er þessum mánuði. Sú hækkun kemur í kjölfar þess að hlutabréf hækkuðu í verði um 11% í janúar og nemur því hækkun vísitölunnar frá áramótum um 15%, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. „Þetta er til vitnis um þá stemningu sem nú ríkir á hlutabréfa- markaði en mikil velta og hækkanir einkenna nú þann markað,“ segir Greiningin. „Ávöxtun einstakra félaga hefur verið mun meiri en sem nemur hækkun Úrvalsvísitölunnar. Icelandair hefur nú hækkað um 35% það sem af er árinu og stendur gengi félagsins nú í 11,13 kr. á hlut. Icelandair birti uppgjör sitt fyrir síðasta ár þann 7. febrúar sl. og hefur félagið hækkað um 8% síðan þá sem endurspeglar gott uppgjör,“ segir enn fremur. Össur og Marel birtu einnig uppgjör sín fyrir síðasta ár fyrr í þessum mánuði. Össur hefur frá áramótum hækkað í verði um 7,7% og Marel um tæplega 14%. Næstu félög til að birta uppgjör sín fyrir síðasta ár er fasteignafélagið reginn sem birtir næsta þriðjudag, 26. febrúar, og Eimskip sem birtir 28. febrúar. Mikil við- skipti hafa verið með Eimskip undanfarið og nam veltan með félagið í síðustu viku 2,3 milljörðum króna og hækkað félagið í verði um 6% þá vikuna. Frá áramótum hefur Eimskip hækkað um 19% í verði. Fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka að veltan á hlutabréfamarkaði hafi verið að meðaltali rúmlega 1,1 milljarður króna á dag það sem af er árinu en á síðasta ári var veltan að meðaltali um 352 milljónir króna á dag. Þar kemur einnig fram, samkvæmt gögnum frá Kauphöllinni að veltan á hlutabréfamarkaði það sem af er árinu nemi um 39,3, milljörðum króna en á sama tíma hefur veltan á skuldabréfamarkaði verið um 283 milljarðar króna. - jh 15% hækkun á hlutaBréFuM í ICElaNdaIr Hækkun frá áramótum. GreininG Íslandsbanka 35%  FaSteignalán Mikill SaMdráttur í útlánuM íBúðalánaSjóðS Útlán í janúar námu 960 milljónum króna en upp- greiðslur lána 1,5 milljarði. Samkeppnisstaða Íbúðalánasjóðs er erfið enda bjóða margir lífeyrissjóðir hagstæðari lánskjör á verðtryggðum íbúðalánum auk þess sem margir lántakendur kjósa óverðtryggð íbúðalán viðskiptabankanna. Ljósmynd/Hari Íbúðalánasjóður á 2261 íbúð Margir lífeyrissjóðir bjóða hagstæðari lánskjör á verðtryggðum fasteignalánum auk þess sem margir lántakendur kjósa óverðtryggð íbúðalán sem viðskiptabankarnir bjóða. ú tlán Íbúðalánasjóðs í janúar voru þau minnstu í að minnsta kosti níu ár. Útlánin námu 960 milljónum króna, sem jafngildir 26% samdrætti frá sama mánuði í fyrra. Þar af námu almenn útlán 890 milljónum króna, en önnur útlán námu 70 milljónum króna. Uppgreiðslur lána námu um 1,5 milljörðum króna í janú- ar, og voru því talsvert umfram útlán líkt og oft hefur verið undanfarið, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. Þótt vanskil hafi minnkað tók Íbúðalánasjóður yfir 33 íbúðir í janúar. Sjóðurinn á nú 2.261 íbúð. Stærstur hluti leiguíbúða sjóðsins er leigður til þeirra sem áttu þær fyrir. Hlutdeild Íbúðalánasjóðs í nýjum út- lánum hefur minnkað mikið undanfarin misseri. Má þar nefna að útlán sjóðsins námu um það bil 1,3 milljörðum króna að meðaltali í hverjum mánuði á síðasta ári. Árið 2011 var þessi tala hins vegar 2,0 millj- arðar króna og árið 2007 voru mánaðarleg útlán sjóðsins tæplega 5,7 milljarðar króna. Á sama tíma hafa ný íbúðalán farið vaxandi á heildina litið. Samkvæmt gögnum Seðla- banka Íslands nam heildarfjárhæð nýrra íbúðalána að jafnaði 5,5 milljörðum króna í mánuði hverjum á fyrstu tíu mánuðum síð- asta árs, en árið 2011 voru ný útlán í mán- uði hverjum tæplega 4 milljarðar króna. „Samkeppnisstaða ÍLS er erfið þessa dagana, enda bjóða lífeyrissjóðir margir hverjir hagstæðari lánskjör á verðtryggðum íbúðalánum auk þess sem margir lántak- endur kjósa óverðtryggð íbúðalán sem eru aðeins í boði hjá viðskiptabönkunum,“ segir Greiningin enn fremur. Minni vanskil en íbúðasafnið stækkar Í skýrslu Íbúðalánasjóðs kemur fram að hlutfall vanskila einstaklinga lækkaði sjötta mánuðinn í röð í janúar. Fjárhæð lána einstaklinga í vanskilum er þó enn 4,9 milljarðar króna og eru um 13,4% útlána sjóðsins þannig með greiðslur í vanskil- um. Við þetta bætast svo 2,7 milljarðar af vanskilum lögaðila. Alls nam því fjárhæð vanskila 7,6 milljörðum króna í janúarlok, en til samanburðar var eigið fé Íbúðalána- sjóðs 6,4 milljarðar króna um mitt síðasta ár. „Stjórnvöld hafa samþykkt að setja 13 milljarða eigið fé til viðbótar í sjóðinn, og er ljóslega ekki vanþörf á miðað við ofan- greindar tölur,“ bætir greiningardeildin við. „Hin hliðin á minnkandi vanskilum birtist svo, a.m.k. að hluta,“ segir enn fremur, „í fjölgun á fullnustueignum ÍLS, en þeim fjölgaði um 33 í janúarmánuði og eru nú 2.261 talsins. Til samanburðar voru fullnustueignir sjóðsins 2.049 um mitt síðasta ár, og hefur því fjölgað um ríflega 200 síðan. M.ö.o. hefur lækkun vanskilahlutfalls einstaklinga væntanlega falist að hluta í því að ÍLS hefur yfirtekið eignir þeirra á undanförnum mánuðum. Það endurspeglast einnig í því að stærstur hluti þeirra 923 íbúða sem ÍLS leigir út eru leigðar til þeirra sem bjuggu í þeim þegar sjóðurinn yfirtók þær, hvort sem þar var um eigendur eða leigjendur fyrri eigenda að ræða.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is liv Bergþórs- dóttir og sonur hennar sverrir konráð sem var í vetrarleyfi frá skólanum í gær. 16 viðskipti Helgin 22.-24. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.