Fréttatíminn - 22.02.2013, Qupperneq 30
„Við stefnum hátt og gerum úr þessu stórglæsilega
sýningu,“ sagði Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri
sýningarinnar Mary Poppins, í viðtali við Fréttatímann í
janúar. Nú er komið að frumsýningu þessa stærsta verks
sem ráðist hefur verið í á íslensku sviði.
Leikhús krakkarnir í Mary PoPPins
Við erum Jane og Mikael
Kvikmyndina um Mary Poppins þekkja flest en hún sló rækilega í gegn um allan heim þegar hún
var frumsýnd árið 1964 og er fyrir löngu orðin sígild. Árið 2004 var svo var gerður söngleikur
og hlaut verkið sjö Tony verðlaun, meðal annars sem besti söngleikurinn. Í kvöld verður söng-
leikurinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu en þess hefur verið beðið með eftirvæntingu og alls hafa
selst um tíu þúsund miðar.
í verkinu leika fjórir hressir krakkar sem Fréttatíminn fékk að hitta í stund milli stríða. Börnin hafa verið önnum kafin við
æfingar um mánaðarskeið en það var ekki að
sjá að álagið væri farið að segja til sín því þau
voru hin rólegustu yfir látunum í kring.
Öll tóku þau vel á móti blaðakonu og Hara
ljósmyndara og voru samstíga í því að leik-
húsið yrði fyrir valinu sem starf framtíðar-
innar.
Öll hafa þau viðamikla reynslu af lífi leik-
hússins þrátt fyrir unga aldur og hafa þau sín
á milli leikið í uppfærslum á borð við Galdra-
karlinn í Oz, Dýrunum í Hálsaskógi, Enron
og Óliver Twist.
Einnig hafa sum þeirra tengingu við leik-
húsið í gegnum foreldra sína. „Krakkar sem
fara í leikhús með foreldrum sínum verða
oft forvitnir um leikarana og geta fengið að
spjalla við þá, stundum baksviðs. Þannig
læra þeir af þeim sem eldri eru,“ útskýrir
Patrekur.
María Lilja
Þrastardóttir
marialilja@
frettatiminn.is
Voltaren Dolo 25 mg húðaðar töflur. Inniheldur 25 mg kalíumdíklófenak. Er notað við vægum
verkjum eins og höfuðverk, tannverk, tíðaverk, gigt- og bakverk. Skammtar fyrir fullorðna og börn 14
ára og eldri: Upphafsskammtur er 1 tafla, en síðan 1 tafla á 4-6 klukkustunda fresti, þó mest 3 töflur
(75 mg) á sólarhring og lengst í 3 sólarhringa. Meðhöndla á í eins skamman tíma og í eins litlum
skömmtum og mögulegt er. Töfluna á að gleypa í heilu lagi með glasi af vatni, helst fyrir máltíð. Ekki
má taka Voltaren Dolo ef þú ert: yngri en 14 ára, með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna,
acetýlsalicýlsýru eða öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum, með sár eða blæðingu í meltingarvegi,
hjartabilun, skerta lifrar eða nýrnastarfsemi, mikla blóðflagnafæð, á síðasta þriðjungi meðgöngu.
Leitaðu ráða hjá lækni eða lyfjafræðingi áður en þú tekur lyfið ef þú: ert með astma, hjartasjúkdóm,
sjúkdóm í meltingarvegi, notar önnur lyf, notar verkjastillandi lyf við höfuðverk í langan tíma, ert
næmur fyrir vökvaskorti, ert með sjúkdóm sem hefur áhrif á blóðstorku, ert að fara í aðgerð, ert eða
ætlar að verða þunguð eða ert með barn á brjósti. Gæta skal þess að lyfið getur dulið einkenni
sýkingar. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleið-
beiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis
Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
Verkir
í baki?
Verkjastillandi og
bólgueyðandi við
verkjum í baki!
V
O
L1
30
10
2
Rán Ragnarsdóttir
er fjórtán ára nemandi
við Langholtsskóla. Hún
leggur einnig stund á
píanónám við Tónskóla
Sigursveins.
Rán hefur í gegnum árin
sótt fjölmörg námskeið í
leiklist og söng. Þar ber
helst að nefna skapandi
námskeið hjá Sönglist,
Leynileikhúsinu, Kram-
húsinu og svo einnig hjá
Stúlknakór Reykjavíkur.
Hæfileikar Ránar
liggja þó einnig á sviði
íþróttanna en hún æfir
líka handbolta hjá
íþróttafélaginu Þrótti.
Rán er ekki ókunn leik-
húslífinu en hún hefur
áður leikið á stóra sviði
Borgarleikhússins í upp-
færslunni um Galdrakarl-
innn í Oz. Foreldrar Ránar
eru þau Ragnar og Halla.
þau eru sálfræðingur og
bankastarfsmaður. „Ég
ætla að vera leikkona.
Mér finnst auðvitað smá
mál að standa á sviðinu
en samt mjög gaman.“
Rán leikur Jane.
Áslaug Lárusdóttir
er 13 ára í 7. bekk í Vestur-
bæjarskóla. Foreldrar eru
Edda og Lárus, kennari
og tónlistarmaður. Áslaug
hefur lengi ætlað að
verða leikkona. „Ég hef
allavega haft áhuga á því
lengi. Hún leikur, líkt og
Rán, stúlkuna Jane. „Hún
er svolítið lík mér,” segir
Áslaug sem er þó ekki
alveg til í að samþykkja
orð meðleikara sinna
um að þær séu ef til vill
jafnmiklir prakkarar,
,,Það er kannski bara
smá prakkari í mér,”segir
Áslaug og hlær.
Áslaug steig fyrst á svið
Borgarleikhússins átta
ára gömul í sýningunni
Söngvaseið síðan þá hefur
hún leikið í uppfærlsum á
borð við Enron og Galdra-
karlinn í Oz. Núna leikur
hún einnig í Dýrunum
í Hálsaskógi. Áslaug
syngur mikið, stundaði
dansnám og nám í þver-
flautuleik í 6 ár. Þegar tími
til gefst spilar hún einnig
körfubolta með KR.
Grettir Valsson
er að verða ellefu ára.
Foreldrar hans eru þau
Ilmur og Valur og þau
eru bæði leikarar. „Ég
held að ég verði leikari,
en ég á samt eftir að
fara í menntaskóla
svo það gæti breyst,“
segir Grettir. Í sýningunni
leikur Grettir, Mikael,
bróður Jane. „Hann er
ekki mjög líkur mér. en
það er auðvelt að leika
hann. Það er nefnilega
auðveldast að leika þá
sem eru ólíkir manni.“
Grettir hefur leikið í
fjölda verka en hann
hóf leikferil sinn í Oliver
Twist á stóra sviði Þjóð-
leikhússins. Árið 2010 lék
hann í Allir synir mínir.
Hann lék bæjarstjóra
Pinklaborgar ásamt
fleiru í Galdrakarlinum í
Oz í og leikur um þessar
mundir Pétur íkorna-
dreng í Þjóðleikhúsinu.
Grettir hefur talað inn
á fjölda teiknimynda og
hefur sótt fjölda leik-
listarnámskeiða.
Patrekur Thor
Herbertsson
er í 4.bekk í Vestur-
bæjarskóla. Hann hefur
haft áhuga á leiklist og
söng síðan hann var lítill
og hefur síðustu ár tekið
þátt í starfi Leynileik-
hússins. Mary Poppins er
fyrsta verkefni Patreks
í atvinnuleikhúsi.
Patreki finnst ekkert
skemmtilegra en heimur
leikhússins. „Nei maður
verður ekkert svo stress-
aður, ég er orðin vanur,“
segir hann aðspurður
um hvort að leikhúsið
reyni ekki á taugarnar.
Foreldrar hans eru
Ásrún, Guðmundur og
Herbert. „Þau eru öll
leikhúsfólk. Krakkar
læra mikið af því að fara
með foreldrum sínum
í leikhúsið. Þau eru
forvitin um leikarana og
geta spjallað við þau og
svoleiðis.“
Hann, eins og Grettir,
leikur Mikael sem ku
vera örlítið líkur honum
sjálfum.
30 leiklist Helgin 22.-24. febrúar 2013