Fréttatíminn - 25.01.2013, Síða 40
40 þorri
Tveir svartir
með sviða-
sultunni
Félagar í Fágun, félagi áhugamanna um gerjun,
smakka þorrabjórinn í ár
Þorrabjórinn 2013
Þorragull
5,6%
33 cl. 359 kr.
Ummæli dómnefndar:
Þessi kemur
skemmtilega á óvart.
Hann er mjög ljós. Það
er þægilegur en lítill
ilmur af honum. Það er
fínt að drekka þennan.
Það er óhætt að mæla
með honum fyrir fólk
sem vill kaupa sér
kippu fyrir helgina eða
þorrablótið. Þetta er
ágætis pilsner. Þeir
mættu koma með
þennan aftur í sumar.
Þetta er sumarbjór.
Surtur Nr.8.1 -
Imperial Stout
(tunnuþroskaður)
13%
33 cl. 2.499 kr. í
gjafaöskju með glasi.
Ummæli dómnefndar:
Þetta verður ekki svart-
ara! Það er mikið áfengi
í lyktinni af honum,
bókstaflega sprittlykt.
Bragðið felur í sér sérrí,
koníak og púrtvín. Líka
þurrkaða ávexti. Hann
er ristaður og sætur.
Bragðið fer eiginlega of
langt út í koníak. Þetta er
bjór fyrir vínsmakkara.
Þú átt að deila flösku af
þessum með öðrum.
Einiberja Bock
Þorrabjór
6,7%
33 cl. 429 kr.
Ummæli dómnefndar:
Hann er fallega
rauðleitur og það er
gaman að sötra hann.
Það er karakter í
þessum bjór. Spennandi
og sterkur karakter.
Það er ávaxtakeimur og
blómasæta þarna sem
er góð tilbreyting. Þeir
fá plús fyrir einiberin,
víkingar settu einiber í
sinn bjór. Það er gaman
að þessari tilrauna-
starfsemi. Þetta er gott
framtak.
Þorrakaldi
5,6%
33 cl. 388 kr.
Ummæli dómnefndar:
Hann er fallegur, bæði
kopar og karamellulitur.
Hann er það bragðmikill
að hann getur hentað
vel með bragðmiklum
mat. Bragðið týnist ekki
þó þú sért með fullan
munn af pungum. Hann
er skemmtilega sætur.
Þetta er góður árstíðar-
bjór.
65%
DómNEfND
90%
DómNEfND
75%
DómNEfND
55%
DómNEfND
Surtur Nr.15 –
Imperial Stout
9%
33 cl. 777 kr.
Ummæli dómnefndar:
Nú er útlitið svart!
Þetta er ekki bjór
sem þú drekkur með
mat. Þetta er bjór
sem þú færð þér eftir
matinn. Þetta er desert
bjór eftir þorramatinn.
Það er bæði kaffi- og
kakólykt af honum.
Maður finnur allskonar
bragð þarna; kaffirist,
appelsínusúkkulaði,
peru og fleira. Þessi
bjór er góður á
mörgum stigum.
90%
DómNEfND
Þ
orrinn gengur í
garð í dag með til-
heyrandi veislu-
höldum hjá land-
anum. Nú draga
veitingamenn fínirí upp úr
súrtunnunum og geymslunum;
hrútspunga, sviðasultu, rengi,
magál og sviðalappir svo fátt
eitt sé nefnt. Í dag kemur líka
þorrabjór í sölu í Vínbúðunum
og verður hann seldur fram á
konudag. Í ár eru sjö bjórar í
boði en framleiðandi Gæðings
þorrabjórs sá sér ekki fært að
leggja til flöskur fyrir smökk-
un Fréttatímans. Því eru sex
bjórar til umfjöllunar hér.
Að vanda voru það félagar
í Fágun, félagi áhugamanna
um gerjun, sem smökkuðu
þá bjóra sem hér er fjallað
um. Yfir fimmtíu manns eru
í félaginu um þessar mundir,
flestir einstakir áhugamenn
um bjór og bjórmenningu.
Fjórmenningarnir voru
ánægðir með þorrabjórana í
ár. Þeir vildu koma því á fram-
færi að úrvalið væri fjölbreytt
og standardinn góður. „Það
er okkar von að þessi hefð
muni halda áfram að eflast,“
segja þeir. Fágunarmenn nutu
liðsinnis Haraldar Jónassonar,
ljósmyndara Fréttatímans,
en uppáhalds bjórinn hans
er Miller High Life. Óhætt er
því að segja að þar hafi mæst
menn með ólíkar skoðanir á
málum.
Rúnar Ingi
Hannah
42 ára úrsmiður og starfs-
maður Isavia. Hefur verið
meðlimur í Fágun í tæp
tvö ár og hefur bruggað
jafnlengi. Skoskt öl er
uppáhalds bjórstíll Rúnars.
DómnefnDin
Bjarki Þór
Hauksson
23 ára nemi. Hefur
bruggað í þrjú ár en
verið í Fágun í tvö ár.
Uppáhaldsbjórstíll Bjarka
er Steam Beer.
Hrafnkell
Freyr Magnússon
30 ára eigandi bruggversl-
unarinnar brew.is. Með-
limur í Fágun í rúm 2 ár en
hefur bruggað sjálfur í 3 ár.
Vel súrir belgískir Lambic
bjórar eru í uppáhaldi.
Viðar Hrafn
Steingrímsson
39 ára kennari úr Hafnar-
firði. Hefur bruggað í rúm
tvö ár og verið meðlimur
í Fágun jafnlengi. Viðar
heldur mest upp á
enska bjóra.
Helgin 25.-27. janúar 2013
Miðasala 551 1200 | midasala@leikhusid.is
Þorraþræll
4,8%
33 cl. 399 kr.
Ummæli dómnefndar:
Þetta er fyrsti íslenski
bitterinn. Hann er
mjög þægilegur í
munni. Mjög bresk-
ur. Þessi bjór vinnur
á við frekari smökkun.
Þetta er góð kynning
fyrir fólk sem vill prófa
að fara úr ljósum bjór
yfir í öl. Ég myndi gefa
vinum mínum sem eru
til í að prófa eitthvað
nýtt þennan. Þetta er
skemmtileg frumraun
í þessum bjórstíl hér
á landi.
70%
DómNEfND
Fjórmenningarnir
í Fágun skála við ljós-
myndara Fréttatímans.
Ljósmyndarinn hefði frekar
kosið að hafa Miller-bjór
í glasinu en 13 prósenta
svartan mjöð og aðra ís-
lenska þorrabjóra.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
bárujárn
jafn íslenskur og ...
Góðostur
Höskuldur Daði Magnússon
og Haraldur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
SIGURVEGARI
BESTUR FYRIR FJÖLDANN
SIGURVEGARI