Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.01.2013, Qupperneq 43

Fréttatíminn - 25.01.2013, Qupperneq 43
heilsa 43Helgin 25.-27. janúar 2013 KAUPTU FJÓRAR & FÁÐU SEX FERNUR NÝTT! NÚ FÆST HLEÐSLA LÍKA MEÐ SÚKKULAÐIBRAGÐI. HOLL OG UPPBYGGILEG NÆRING EFTIR GÓÐA ÆFINGU. HENTAR VEL FÓLKI MEÐ MJÓLKURÓÞOL. ýmsum nær- ingarefnum sem eru mikilvæg fyrir manns- líkamann. Í faraldsfræði- rannsóknum er aukin neysla á grænmeti tengd við minnkaðar líkur á alls konar sjúkdómum, þar á meðal krabbameini, syk- ursýki og hjartasjúkdómum. Mælt er með að borða græn- meti á hverjum degi. Grænmeti er hollt, mettandi, mjög hitaein- ingasnautt og eykur fjölbreyti- leika í fæðinu. 5. Ávextir Undanfarið hefur verið mikil umræða um ávexti vegna þess að þeir eru ríkir af ávaxta- sykri (frúktósa) sem er talinn mjög skaðlegur í miklu magni. En ávextir eru meira en blöðrur fullar af frúktósa. Þeir eru líka trefjaríkir, rík- ir af andoxunar- efnum og C-vítamíni og það er nánast ómögulegt að borða yfir sig af ávöxtum. Ávaxtasykur úr ávöxtum er ekki skaðlegur, því að það er nánast ómögulegt að borða það mikið magn af ávöxtum að það fari að skipta máli. Almennt séð eru ávextir holl fæða. Þeir eru bragðgóðir, þarfnast ekki undirbúnings og auka fjölbreytileika í fæðinu. Hins vegar er hægt að færa rök fyrir því að borða ekki of mikið af þeim ef þú þarft að léttast, því að þeir eru þrátt fyrir allt kolvetnaríkir. 6. Hnetur og fræ Hnetur og fræ eru mjög nær- ingarríkar fæðutegundir, ríkar af hollum fitum og innihalda sérstaklega mikið af E-vítamíni og magnesíum. Þrátt fyrir að vera fituríkar sýna rann- sóknir fram á að neysla á hnetum tengist lægri lík- amsþyngd, betri heilsu og bættu insúl- ínnæmi. Hins vegar eru hnetur mjög hitaeininga- ríkar og geta komið í veg fyrir að sumt fólk léttist svo það er líklega best að borða þær í hófi. 7. Kartöflur Rótargrænmeti eins og kart- öflur og sætar kartöflur er hollt, næringarríkt og mjög mettandi. Ýmsir þjóðfélagshópar í heimin- um hafa borðað verulegt magn af þeim og verið við frábæra heilsu. Hins vegar eru þær ríkar af kolvetnum og ættu þess vegna ekki að vera reglu- legur hluti fæðunnar hjá þeim sem eru á lágkolvetnamataræði. Fyrir þá sem eru heilbrigðir, hreyfa sig og þurfa ekki að léttast er í fínu lagi að borða kartöflur. 8. Fitur og olíur Það er um að gera að bæta hollri fitu í fæðið, til dæmis smjöri, kókosolíu og ólífuolíu. Til að elda við háan hita er best að nota mettaðar fitur eins og kókosolíu og smjör. Mett- aðar fitur hafa engin tvítengi, sem veldur því að þær þola hitann betur. 9. Þorskalýsi D-vítamín virkar sem stera- hormón í líkamanum og skort- ur á því getur stuðlað að alls konar sjúkdómum þegar fram í sækir. Ef þú ferð ekki mikið út í sólina (eins og flestir Íslendingar) þá er mjög mikil- vægt að taka eina matskeið af þorskalýsi á dag. Það er ekki sérstak- lega bragðgott, en gæti endað með að bjarga lífi þínu. Einnig er lýsi mjög ríkt af Omega-3- fitusýrum og A-vítamíni. 10. Feitar mjólkurvörur Feitar mjólkurvörur eins og ostur, rjómi, smjör og jógúrt eru ríkar af hollum fitum, kalki og ýmsum öðrum næringar- efnum. Ef kýrnar eru aldar á grasi, sem er algengt á Íslandi, eru þessar vörur sérstaklega ríkar af K2-vítamíni, sem er mjög mikilvægt fyrir beinin og hjartað. Í stórri samantektar- rannsókn sem var birt árið 2012 kom í ljós að neysla á feitum mjólkurvörum tengdist minni líkamsþyngd. Faralds- fræðirannsóknir frá Hollandi og Ástralíu hafa einnig sýnt fram á að feitar mjólkurvörur tengjast minnkaðri tíðni á hjartasjúk- dómum. Þó er vert að nefna að það eru aðrar rann- sóknir sem sýna engin áhrif, en líklega fer það að einhverju leyti eftir því hvað kýrnar fengu að éta. Allt þetta gerir ábendingar um að velja fituskertar mjólkur- vörur (sem innihalda oft mikinn sykur og gervisætuefni) mjög varasamar. Nánari upplýsingar og heimildir fyrir hinum ýmsu fullyrðingum eru aðgengilegar í grein Kristjáns M. Gunnars- sonar á vefsíðunni Authority Nutrition. 69% ... kvenna á höfuðborgar- svæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent júlí-sept. 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.