Fréttatíminn - 25.01.2013, Page 53
Þriðja Hæ Gosa-þáttaröðin hefur göngu sína á
Skjá einum í lok mánaðarins en þessir létt rugluðu
þættir hafa notið nokkurra vinsælda og hermt er
að þessi þriðja sería taki hinum fram í fíflagangi.
Þættirnir hverfast um bræðurna Börk og Víði
sem bræðurnir Kjartan og Árni Pétur Guðjóns-
synir leika og vandræði sem þeir róta sér í. María
Ellingsen leikur Fríðborgu, færeyska eiginkonu
Barkar sem stendur alltaf við bakið á sínum
manni.
„Leikstjórinn hringdi í mig á sínum tíma til að
spyrja mig hvort ég þekkti einhverja leikkonu
sem talaði færeysku,“ segir María. „Ég hélt hann
væri að grínast, þar sem ég er leikkona og tala
færeysku reiprennandi, enda hálfur Færeyingur.
Það varð því úr að ég tók að mér hlutverkið og sé
alls ekki eftir því. Þetta hefur verið mjög skemmti-
legur tími.“
María segir það lítið mál að leika á færeysku
á móti persónum sem tala íslensku. „Það er
næstum eins og að leika með grímu, tungumálið
breytir manni strax. Þetta varð hinsvegar erfiðara
þegar við fórum að láta Fríðborgu læra meiri
íslensku, þá þurfti ég að læra íslensku með fær-
eyskum hreim.“
María segist lítið líkjast persónu sinni í Hæ
Gosa. „Fríðborg er algjör dúlla, sér það sem hún
vill sjá og lætur bjóða sér ansi margt í nafni ástar-
innar. Hún er búin að vera með Berki í áratugi
og sama hvað gengur á þá sér hún alltaf drauma-
prinsinn í honum. Hún er svakalega þolinmóð. Ég
myndi sjálf aldrei nenna að standa í þessu bulli.“
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
07:00 Strumparnir / Villingarnir / Algjör Sveppi
/ Tooth Fairy / Hundagengið
11:30 Victorious
12:00 Spaugstofan (11/22)
12:25 Nágrannar
14:05 American Idol (4/40)
14:55 Modern Family (7/24)
15:25 Týnda kynslóðin (19/24)
15:55 The Newsroom (4/10)
16:55 MasterChef Ísland (6/9)
17:40 60 mínútur
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Um land allt
19:15 Veður
19:25 The New Normal (3/22)
19:50 Sjálfstætt fólk
20:25 Mannshvörf á Íslandi (3/8)
20:55 The Mentalist (9/22)
21:40 Boardwalk Empire (10/12) Þriðja
þáttaröð af þessari margverðlaunuðu
seríu sem skartar Steve Buscemi í hlut-
verki stórkallsins Nucky Thompson, sem
réði lögum og lofum í Atlantic City á
bannárunum snemma á síðustu öld.
22:35 60 mínútur
23:20 Covert Affairs (6/16)
00:05 The Daily Show: Global Editon
00:35 Pretty Persuasion
02:25 The Death and Life of Bobby Z
04:00 The Mentalist (9/22)
04:45 Mannshvörf á Íslandi (3/8)
05:10 MasterChef Ísland (6/9)
05:55 Fréttir
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
10:10 Man. Utd. - Fulham
11:50 Brentford - Chelsea
14:00 Brighton - Arsenal
15:40 Þorsteinn J. og gestir
16:10 HM 2013: Úrslitaleikur
18:20 Boston - Miami
21:00 Leeds - Tottenham
22:40 Oldham - Liverpool
00:20 Spænski boltinn
02:00 HM 2013: Úrslitaleikur
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
14:00 PL Classic Matches
15:00 Season Highlights 2008/2009
15:55 Premier League World 2012/13
16:25 Man. Utd. - Stoke
18:05 Arsenal - Fulham
19:50 Patrick Kluivert
20:15 Season Highlights 2009/2010
21:10 PL Classic Matches
22:10 Liverpool - Man. City
SkjárGolf
06:00 ESPN America
06:35 Farmers Insurance Open 2013
11:05 Inside the PGA Tour (4:47)
11:30 Farmers Insurance Open 2013
16:00 Qatar Masters (2:2)
18:00 Farmers Insurance Open 2013
23:30 The Sport of Golf (1:1)
00:30 ESPN America
27. janúar
sjónvarp 53Helgin 25.-27. janúar 2013
Dagskráin Hæ gosi
Færeyskan er eins og gríma
Guðrún Lovísa Ólafsdóttir
hjúkrunarfræðingur, einkaþjálfari og íþróttafræðinemi.
Á
rn
a
sy
n
ir
&
c
o
Aktív próteinbitar eru handhæg næringar-
lausn til að hafa við höndina hvar og hvenær
sem er, stútfullir af hágæða mysupróteini.
Svo eru þeir bara svo hrikalega góðir!”
Haltu dampi
„
Nói Síríus framleiðir Aktív próteinbita en fyrirtækið hefur í fleiri áratugi framleitt vörur sem hafa notið fádæma
vinsælda á meðal Íslendinga enda eru bragðgæði ávallt höfð í forgrunni þegar fyrirtækið þróar nýjar vörur.
HÁGÆÐA PRÓTEIN
Aktív próteinbitar innihalda hágæða mysuprótein.
Prótein er öllum nauðsynlegt en þó sérstaklega
þeim sem hreyfa sig mikið og lifa virkum lífsstíl.
Mysupróteinið í Aktív próteinbitum er framleitt af
Davisco sem er leiðandi fyrirtæki í rannsóknum,
framleiðslu og sölu á mysupróteini í heiminum.
DÖKKT SÚKKULAÐI
Aktív próteinbitar eru húðaðir með Síríus
Konsúm 56% súkkulaði. Dökkt súkkulaði
er ríkt af andoxunarefnum sem m.a. eru
talin geta haft hjartaverndandi áhrif.
ENDURLOKANLEGIR POKAR
Aktív próteinbitar koma í endurlokanlegum
pokum sem tryggja ferskleika vörunnar,
henta einstaklega vel til að hafa við höndina
og uppfylla þannig orkuþörf í erli dagsins.
vertu aktív
María Ellingsen leikur Fríðborgu sem elskar sinn mann
alltaf jafn heitt, sama á hverju gengur.