Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 1
Hjólreiðar
Helgin 4.-6. maí 2012
Langur LaugavegurLeiðin sem tengir Þórs-mörk og Landmannalaugar er ein vinsælasta gönguleið landsins. Eva og Jóhannes hjóluðu leiðina.
bls. 4
Austurveri
Austurveri - Háaleitisbraut 68
www.lyfogheilsa.is
Við opnum kl: Og lokum kl:
Opnunartímar
08:00-24:00 virka daga
10:00-24:00 helgar
1
Slanga
Hafa þarf með
aukaslöngu eða
í það minnsta
bótasett. Það er
nefnilega hvimleitt
að þurfa að reiða
fákinn alla leiðina
ef ekki var hugsað
fyrir þessu.
2
Pumpa
Fátt er meira pirr-
andi en að hafa nóg
af slöngum en enga
pumpu til þess að
koma í þær lofti.
Athugið að pumpan
passi við ventilinn á
slöngunum.
3
Keðjuhlekkir
Keðjur eiga það til
að detta í sundur
og slitna og þá
getur verið gott að
hafa auka hlekki til
þess að koma þeim
saman aftur.
4
Fjöltól
Allt eins og með
slönguna og
loftið væri ergilegt
að hafa nóg af
aukakeðjuhlekkjum
en engin ráð til að
koma þeim á. Auk
þess sem að fleiri
hlutir geta aflagast
sem gott er að
geta lagað. Þannig
að gott fjöltól er
nauðsynlegt.
5
GPS
Það vita allir sem
vita vilja að á Ís-
landi getur skollið
á niðdimm þoka
á augabragði.
Þess vegna er nauð-
synlegt að kynna
sér vel allar leiðir
og hafa svo GPS-
tæki við höndina.
Eins eru þessi tæki
skemmtileg hvað
varðar að vita hvar
maður er og hvað
fjöllin í kring heita.
Þannig er hægt að
besservissast þegar
heim er komið og
nefna hverja þúfu,
hvern hól – skáka
Ómari Ragnarssyni
þess vegna.
6
Föt
Að nota rétt föt
í hjólatúrinn
getur skipt sköpum.
Regn- og vindhelt
skal það vera en
um leið eitthvað
sem andar þannig
að öll útgufun frá
líkamanum, sem er
meiri en þú heldur,
verði ekki til að
gera hjólreiða-
kappa hundblauta.
Þá skemmir ekki ef
sérstakur rassapúði
er saumaður í
buxurnar.
7
Vatn
Það þarf að hafa
nægt vatn með-
ferðist. Notast
má við brúsa eða
Camelback-poka
sem er bakpoki
fullur af vökva og
við er tengd slanga
svo svala má þorst-
anum á ferð. Passa
að alltaf sé hægt
að fylla á að kvöldi
ef fara á í margra
daga túr.
8
Matur
Best er að fá orku
úr fitu og halda
sykrinum í lágmarki.
Hnetusmjörs-og
sultu samlokur
þykja góður orku-
gjafi sem og pylsur
allskonar. Menn
hafa jafnvel gengið
svo langt að sjóða
sér bjúga og narta
í það á leiðinni.
Þeir hörðustu. Það
inniheldur nefnilega
annað nauðsynlegt
efni á langferð sem
er saltið. Það hjálpar
til við að binda vatn
í líkamanum og
getur reynst gott
á lengri leiðum. Ef
bjúgað er ekki við
smekk má alltaf
narta i salthnetur.
9
Tilkynninga-
skyldan
Láta vita af sér
og ekki bara
mömmu. Skrá sig
í gestabækur í
skálum og segja frá
hverjir eru á ferð
og hvert ferðinni
er heitið. Vera líka
með síma á sér. Það
er alveg ótrúlegt
hvað þeir eru farnir
að draga langt upp
á hálendið auk þess
sem oft er hægt að
finna týnt fólk út frá
símum þótt ekkert
sé sambandið.
10
Vaðskór
Ef fara á yfir ár er
gott að hafa með
sérstaka vaðskó.
Það er nefnilega
ekki gott að blotna
mikið í hjólaskónum
og það er heldur
ekki gott að vaða
berfættur yfir ár
því steinarnir geta
verið mjög beittir.
Það minnir líka á
annað sem er jafn
vel nauðsynlegra
en allt hitt til
samans og það er
fyrstu hjálpar-poki.
Fullur af plásturum,
grisjum og ýmsu
öðru sem getur
hreinlega bjargað
ferðinni ef svo ber
undir.
Fjallahjólreiðar með stóru effi
Ísland er sannkallað gósenland fyrir alla þá sem vilja stunda fjallahjólreiðar. Margir
virðast ekki hafa uppgötvað þetta enn og nota fínu fjallahjólin sín eingöngu á bundnu
slitlagi þéttbýlisins. Þeim hörðustu finnst lítið til þess koma að – fjallahjólreiðar fara
ekki fram í borg og bæjum.
Þ að færist reyndar í aukana að Íslend-ingar noti fjallahjól sín til þess sem þau voru hönnuð til. Ef menn forðast mosa og gras er hægt að fara flest allar gamalgrónar gönguleiðir á hjóli þótt oft þurfi að reiða skjót-ann á milli stærstu steina og upp hörðustu brekkurnar. Þegar upp þær er komið og niður-leiðin blasir við er fátt betra en að horfa aðeins á útsýnið og láta sig svo gossa á fullri ferð niður hlíðina.
Í lengri fjallahjólatúra er best að nota svo-kölluð All Mountain-hjól, svo slett sé svolítið. Þau eru tiltölulega létt og hafa dempara bæði að aftan og framan. Auðvitað geta þeir sem eiga sæmilegt framdemparahjól prófað sig áfram áður en stórum upphæðum er varið í nýjar græjur. En alveg óháð því hvaða hjól er undir þarf að hafa nokkur atriði í huga og í lagi áður en lagt er af stað í langferð.
Haraldur Jónasson
Ic
eb
ik
ea
dv
en
tu
re
s.
co
m
-S
te
rl
in
g
Lo
re
nc
e
4.-6. maí 2012
18. tölublað 3. árgangur
18
Hættur við að
vilja deyja ungur
Jóhann Páll
hJÓLREIÐAR
í mIÐJu FRÉttAtímAnAns
Fegursta
kona heims
árið 2012
Beyonce
VIÐTAL ÓLöf NordAL VArAformAÐur sjáLfsTæÐIsfLokksINs
60
Dægurmál
Baltasar
Kormákur
Dægurmál
62
Gerir
seyðfirska
glæpaseríu
24viðtal
arna
árnadóttir
Kennir
spænsku
í Andalúsíu
Em 2012
Rooney og
félögum
spáð sigri í
D-riðli
26fótBolti
viðtal
MUNDU AÐ SKRÁ
ÓSKABARNIÐ ÞITT
www.oskaborn.is
síða 28
Fjögur börn og
fjarbúð trufla
ekki framann
ólöf Nordal, varafor-
maður Sjálfstæðis-
flokksins, rekur fimm
manna heimili í
reykjavík ásamt því
að standa vaktina á
alþingi á meðan eigin-
maður hennar stýrir
einu stærsta álfyrir-
tæki Evrópu í Sviss.
Hún ræðir um ástina,
fjarbúðina, fjölskyldu-
lífið og framann.
Orkuhúsinu
Suðurlandsbraut 34
S. 517 3900
www.flexor.is
Opið virka daga kl. 9.00–17.30Frábært verð á útivistarskóm frá LYTOS
Sandali
Stærðir 41–46
kr. 9.990
Sandali
Stærðir 41–46
kr. 9.990
Le Florians
Dömustærðir 36–41
kr. 18.490
Le Florians
Herrastærðir 41–46
kr. 18.490