Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 62
Helgin 4.-6. maí 201254 tíska
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Sumarbyrjunartilboðsdagar
30%
afsláttur
af völdum vörum
Verslunin Belladonna á Facebook
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
/
1
1-
21
79
Mýksti brauðosturinn
á markaðnum.
Fáanlegur 26% og 17%.
ms.is Skagfirskur sveitabiti
Tvennt er það nú sem einkennir einkum sumarlegan
fatnað; litagleði og blómamynstur. Hvort tveggja er farið
að verða áberandi á götum Reykjavíkur og virðist sem
fólk almennt sé að koma sér í sumargírinn. Stelpurnar í
Hollywood er á sama máli og klæðast blómamynstruðum
buxum, hver sem betur getur. Buxur með blómamynstri
hafa ekki verið eins áberandi á fyrri árum en þá hafa
einkum sést kjólar, bolir, pils og jakkar með slíku skrauti.
Á hverju ári gefur breska dagblaðið The
Sunday Times út lista yfir ríkustu ein-
staklinga Bretlands síðasta árs. Listarnir
eru margir og margvíslegir. Meðal annars
var kynntur listi yfir ríkasta unga fólkið
og var leikkonan Keira Knightley á toppi
listans, en hún græddi 58 milljón pund,
eða sem nemur tæpum tólf milljörðum
króna, á síðasta ári – 30 milljón pund fyrir
leik sinn og 28 milljón pund fyrir fyrir-
sætustörf. Í öðru sæti listans var Harry
Potter-leikarinn Daniel Radcliffe sem
sankaði að sér 54 milljón pundum og í
því þriðja var samstarfskona hans, Emma
Watson, með 52 milljón pund í tekjur.
Fleiri þekktir einstaklingar komust á
listann yfir hina ungu og ríku eins og
Robert Pattinson, Rosie Huntington-
Whiteley, Adele og Cheryl Cole.
Ungu
stjörnurnar
sanka að sér
peningum
Blómamynstur og litagleði
Blómaskraut
einkennandi
fyrir sumarið
Jessica Alba er alltaf klædd
samkvæmt nýjustu tísku.
Leikkon-
an Zoe
Saldana.
Tískudrottn-
ingin Olivia
Palermo.