Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 23
son í miðju varnar Skagamanna. Hann var
ekki nógu góður fyrir Blika og því spurning
hvort annað gildi fyrir ÍA? Nema auðvitað
að tröllið Ármann Smári Björnsson hafi góð
áhrif á hann. Skagamenn eru feiknasterkir
af nýliðum að vera og gætu hæglega lent
ofar en þessi spá gerir ráð fyrir.
Valur
Spá Fréttatímans: 7. sæti
Kristján Guðmundsson þarf að púsla
saman nánast nýju liði annað árið í röð.
Miklu skiptir þó að lykilmenn á borð við
miðjumennina Hauk Pál Sigurðsson og
Guðjón Pétur Lýðsson eru til taks. Þeir eru
tveir af betri miðjumönnum deildarinnar.
Spennandi verður að sjá hvort Atli Heimis-
son sé maðurinn sem Valsmenn áttu ekki
í fyrra – ógnandi framherji sem getur
skorað mörk. Miðverðina tvo, Atla Svein og
Halldór, skortir sem fyrr hraða. Valsliðið
er sterkara en svo að það sogist niður í
botnbaráttuna en það er borin von að
félagið berjist á toppnum. Til þess er liðið
einfaldlega ekki nógu gott.
ÍBV
Spá Fréttatímans: 8. sæti
Hversu mikilvægur var þjálfarinn Heimir
Hallgrímsson? Það er mat Fréttatímans
að Heimir hafi átt gríðarlega mikinn þátt
í velgengni ÍBV undanfarin ár og að hans
verði sárt saknað. Þetta er skrifað af
fullri virðingu fyrir Magnúsi Gylfasyni en
hann stendur Heimi töluvert að baki sem
þjálfari að mati Fréttatímans. Tryggvi Guð-
mundsson er einu ári eldri og hefur misst
af stórum hluta undirbúningstímabilsins
vegna meiðsla. Hið sama á við um Andra
Ólafsson og Gunnar Má Guðmundsson.
Leikmenn á borð við Þórarinn Inga og
Rasmus Christiansen verða stíga upp og
síðan þarf Christian Olsen að reynast sá
framherji sem þá skorti sárlega í fyrra – í
það minnsta tíu marka maður.
Framherjinn Kjartan Henry Finnbogason skoraði bæði mörk KR gegn FH í meistara-
keppni KSÍ á þriðjudag. Hann verður aðalframherji KR eftir brotthvarf Guðjóns
Baldvinssonar til Svíþjóðar og mun mikið mæða á honum í sumar. Ljósmynd/Hari
komdu og kíktu
Efst á Skólavörðustígnum, sími 551 1121
ÚTSALA
L
Keflavík
Spá Fréttatímans: 9. sæti
Keflvíkingar mæta til leiks með ungt lið.
Zoran Ljubicic ætlar að treysta á ungu leik-
mennina sem hann hefur þjálfað undan-
farin ár í bland við reynslubolta á borð
við Guðmund Steinarsson, Harald Frey
Guðmundsson og Jóhann Birni Guðmunds-
son. Óhætt er að lofa því að sóknarleikur
Keflvíkinga, mun, líkt og undanfarin ár,
standa og falla með því að Guðmundur
sé í formi. Litlir peningar eru til í Keflavík
og þar er tími uppbyggingar framundan.
Sumarið verður erfitt en Fréttatíminn spáir
því að liðið haldi sér uppi.
Grindavík
Spá Fréttatímans: 10. sæti
Guðjón Þórðarson er mættur í Grindavík
og með honum fjöldinn allur af leik-
mönnum. Guðjón kann vel að vinna
með lið sem ekki er spáð góðu gengi og
fullvíst er að Grindvíkingar munu liggja
aftarlega og treysta á skyndisóknir þar
sem hinir stóru og sterku Tomi Ameobi
og Pape Mamadou Faye verða í aðalhlut-
verki. Þá er líka styrkur í að fá Ólaf Örn
Bjarnason einbeittan sem leikmann á
nýjan leik. Vandamál Grindvíkinga verður
að koma saman breyttu liði á skömmum
tíma og síðan er það auðvitað x-faktorinn
Guðjón. Bolungarvík var of lítil fyrir hann
og spurning hvort Grindavík ráði við
mann af hans stærðargráðu.
Fylkir
Spá Fréttatímans: 11. sæti (fall)
Þunnskipaður hópur, nýr þjálfari,
margir lykilmenn meiddir á undir-
búningstímabilinu. Þetta lítur ekkert
sérstaklega vel út í Árbænum fyrir þetta
tímabil. Reynsluboltar á borð við Gylfa
Einarsson, Val Fannar Gíslason og Fjalar
Þorgeirsson eru farnir. Markahrókurinn
Albert Ingason er farinn í FH. Nú verða
aðrir leikmenn að taka við kyndlinum
– leikmenn á borð við Jóhann Þórhalls-
son, Árna Frey Guðnason og Magnús
Þóri Matthíasson. Og síðan er auðvitað
spurning hvort Björgólfur Takefusa verði
í formi. Framundan er erfitt tímabil í
Árbænum.
Selfoss
Spá Fréttatímans: 12. sæti (fall)
Selfyssingar mæta til leiks með mun
reyndari þjálfara en í fyrra, Loga Ólafs-
son, og mun sterkari leikmannahóp en
þegar þeir voru síðast í efstu deild – fyrir
tveimur árum. Senegalinn Babacarr Sarr
verður eflaust með betri miðjumönnum
deildarinnar og mikið mun mæða á norsku
varnarmönnunum Brenne og Skjerve.
Pressa er á Ólafi Karli Finsen sem þarf að
gera það sem hann hefur aldrei gert fyrr
– leiða sóknarlínu liðs í efstu deild. Hann
þarf að vera heill og í toppformi ásamt Jóni
Daða Böðvarssyni til að Selfyssingar eigi
möguleika. Þrátt fyrir betri mannskap en
síðast telur Fréttatíminn að Selfyssingar
fari beint niður aftur.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
fótbolti 23 Helgin 4.-6. maí 2012