Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 38
6 hjólreiðar Helgin 4.-6. maí 2012
100%
HÁGÆÐA
MYSUPRÓTEIN
MS.IS
PRÓTEINDRYKKURINN
SEM ÍSLENDINGAR FÁ
ALDREI NÓG AF
ÍS
L
E
N
SK
A
S
IA
.I
S
M
S
A
5
86
99
0
3
/1
2
NÚ EINNIG MEÐ
BRÓMBERJABRAGÐI
Sérhönnuð hjól fyrir allar aðstæður
Ferð ársins
Ísland fer ekki fram hjá þeim
sem skipta máli í hjólabrans-
anum. Í þessu eintaki af
Bike-hjólablaðinu, sem er eitt
stærsta blað þeirrar tegundar
í heimi, eru blaðamennirnir
hreinlega að missa sig yfir
náttúrfegurðinni og gæðum
stíga. Enda var ferðin til Ís-
lands valin ferð ársins 2009,
þar á bæ. Ferðina skipulagði
Magne Kvam hjá Icebike sem
sérhæfir sig í því að fá til Ís-
lands ferðamenn með þetta eitt
í huga: Að hjóla! Því er okkur
sem hér búum ekkert að land-
búnaði með að fara út fyrir mal-
bikið að hjóla.
Tri til hvers á að nota hjólið?
n ú gengur uppáhalds árstími hjólreiðamanna í garð. Versl-unin TRI ehf við Suðurlands-
braut 32 selur reiðhjól sem henta
öllum aðstæðum; fjallahjól,götuhjól,
barnahjól, kvenhjól og rafmagnshjól.
„Það þarf að hafa margt í huga
þegar reiðhjól er valið,“segir Ólaf-
ur Baldursson, framkvæmdastjóri
verslunarinnar Tri á Suðurlands-
braut 32, sem sérhæfir sig í sölu bún-
aðar fyrir hjólreiðar, hlaup, sund og
þríþraut. „Fyrst og fremst þarf að
ákveða til hvers eigi að nota hjólið og
hver ætlar að nota það,“ segir hann.
„Við hjá TRI seljum vönduð, þýsk
reiðhjól af gerðinni CUBE en CUBE
hefur 16 ára reynslu af þróun reið-
hjóla og leggur mikið upp úr vönd-
uðu efnisvali sem skilar sér í hjólum
sem svíkja engan,“ segir Ólafur.
Þegar þú kaupir CUBE-reiðhjól
er þrennt sem þú getur stólað á, að
sögn Ólafs: „Þau eru hönnuð til þess
að standast það álag sem fylgir jafn-
vel hinum glæfralegustu hjólaferð-
um. Allir hlutar reiðhjólsins, bæði
efni og íhlutir, eru valdir með tilliti til
gæða og góðrar endingar og að allar
nýjustu uppgötvanir og framþróun í
reiðhjólahönnun eru hafðar til hlið-
sjónar við hönnun CUBE-hjóla.“
TRI verslunin er rekin samkvæmt
hugsjóninni að hvetja til hreyfingar
og skemmtunar almennings, hvort
sem er í hinum þremur greinum þrí-
þrautarinnar: Hjólreiðum, hlaupi og
sundi eða öðrum greinum. „Hugsjón
okkar gengur út á aukna hreyfingu
ungliða í hjólreiðum og þríþraut þar
sem við viljum efla og kynna þær nýj-
ungar sem þar hafa orðið á síðast-
liðnum árum,“ segir Ólafur. „Mark-
mið okkar er að starfsfólk TRI hafi
mikla þekkingu á þessum þremur
greinum þríþrautarinnar og geti í
krafti reynslu sinnar gefið viðskipta-
vinum greinargóð svör við fyrir-
spurnum ásamt afbragðsþjónustu
og gleði.“
Ólafur vekur athygli á að CUBE
býður meðal annars upp á sér-
staka reiðhjólalínu fyrir konur sem
hönnuð er með tilliti til vaxtarlags
kvenna. „Konur eru ekki með sama
vaxtalag og karlmenn og eru yfir-
leitt ekki eins þungar eða sterkar.
Því verða hjól fyrir konur að vera
létt. Þau eru búin til með nýstárlegri
tækni og sniðin að ólíkum eðliseigin-
leikum einstaklinga,“ bendir hann
á. Líffæra- og vinnuvistfræði eru
mikilvægir þættir í hönnun kvenna-
línu CUBE. „Öll kvenhjólin eru með
styttri topptúbu en í hefðbundinni
línu frá CUBE. Lengri stýrisrör ger-
ir það að verkum að hjólreiðakonan
er meira upprétt á hjólinu. Fyrir
smærri konur leiðir það til betri
stöðu á sætinu og betra jafnvægis á
hjólinu. Hjólin eru búin mjórra stýri
og sérstökum sætum fyrir konur
sem létta á þrýstingi á lífbein og
gera þar af leiðandi lengri hjólreiða-
túra ánægjulegri,“segir hann.
Auk kvenhjólanna býður Tri upp
á allar helstu gerðir reiðhjóla. Svo-
kölluð 29er-reiðhjól, sem eru fjalla-
hjól á 29” dekkjum sem auðvelda þér
að komast hraðar yfir mjög grófar
leiðir, hefðbundin fjallahjól, götuhjól,
svokölluð Tour-reiðhjól, barnahjól og
rafmagnshjól.
Starfsfólk TRI við CUBE-hjólin.