Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 26
Búast má við því að á brattann verði að sækja fyrir gestgjafana Úkraínu í D-riðli Evrópumótsins. Fastlega má reikna með að Englendingar og Frakkar verði í tveimur efstu sætunum jafnvel þótt Englendingar hafi aðeins nú í vikunni ráðið Roy Hodgson landsliðs- þjálfara og án Wayne Rooney í fyrstu tveimur leikjunum. Svíþjóð á þó möguleika en þá aðeins að Zlatan verði í toppformi. Baráttan í D-riðli Léttöl Léttöl í Evrópukeppnina 2012 35 dagar England Spá Fréttatímans: 1. sæti Íbúafjöldi: 52,3 milljónir Höfuðborg: London Staða á heimslista: 7 Besti árangur á EM: Undanúrslit árin 1968 og 1996 Stjarna liðsins: Wayne Rooney er einn hættu- legasti framherji heims. Hann er sennilega eini leikmaður liðsins sem er á heimsmælikvarða þessa stundina. Frægasti leikmaðurinn: Bobby Charlton var sókndjarfur miðjumaður sem er enn markahæsti leikmaður Englendinga frá upphafi. Vissir þú að ... West Ham er eitt af tveimur félagsliðum sem hefur átt alla markaskorara sigurliðs á HM sem og fyrirliða? Þetta var árið 1966 þegar West Ham-leikmennirnir Geoff Hurst (3) og Martin Peters skoruðu mörk Englendinga í 4-2 sigri á Þjóðverjum og samherji þeirra Bobby Moore lyfti bikarnum. Frakkland Spá Fréttatímans: 2. sæti Íbúafjöldi: 65,4 milljónir Höfuðborg: París Staða á heimslista: 16 Besti árangur á EM: Evrópumeistarar árin 1984 og 2000 Stjarna liðsins: Franck Ribery er einn hættuleg- asti kantmaður heims. Hann er gífurlega fljótur og leikinn og skotmaður góður. Frægasti leikmaðurinn: Michel Platini og Zinedine Zidane er tveir af allra bestu miðjumönnum heims frá upphafi. Platini var mikill leiðtogi, markaskorari og aukaspyrnusérfræðingur en Zidane var með betri tækni og yfirsýn en nær allir sem spilað hafa leikinn. Vissir þú að ... Frakkar gerðu stærsta bún- ingasamning í sögunni þegar þeir sömdu við Nike frá 1. janúar 2011 til sjö ára? Samningurinn er metinn á rúma 53 milljarða íslenskra króna. Svíþjóð Spá Frétta- tímans: 3. sæti Íbúafjöldi: 9,4 milljónir Höfuðborg: Stokk- hólmur Staða á heims- lista: 17 Besti árangur á EM: Undanúrslit árið 1992 Stjarna liðsins: Zlatan Ibrahimo- vic er einn sigur- sælasti og besti framherji seinni tíma. Stór, sterkur, leikinn og fljótur. Hann er óviðráðanlegur þegar hann er í stuði. Frægasti leikmaðurinn: Gunnar Nordahl sló nær öll markamet sem hægt var að slá á fimmta áratug síðustu aldar með AC Milan. Frábær framherji sem skoraði 1,5 mark að meðaltali í 33 landsleikjum. Vissir þú að ... að Svíar voru eitt sínn í öðru sæti styrk- leikalista Alþjóða knattspyrnu- sambandsins – í nóvember 1994? Úkraína Spá Fréttatímans: 4. sæti Íbúafjöldi: 48,6 milljónir Höfuðborg: Kiev Staða á heimslista: 49 Besti árangur á EM: Nú með í fyrsta sinn Stjarna liðsins: Andryi Shevchenko er sannarlega kominn af léttasta skeiðinu en hann er engu að síður sá framherji sem Úkraínumenn treysta hvað mest á. Frægasti leikmaðurinn: Oleg Blokhin, þjálfari Úkraínumanna, var valinn Knattspyrnumaður Evrópu árið 1975. Þótt hann hafi spilað allan sinn feril fyrir Rússland þá er hann sá Úkraínumaður sem hefur náð lengst. Var á sínum tíma einn besti vængmaður heims. Hann var sterkur, fljótur og leikinn. Vissir þú að ... Úkraínumenn hafa aldrei unnið Frakka í landsleik? Leikirnir eru sex, jafnteflin þrjú og töpin þrjú. Bobby Charlton. Franck Ribery. Zlatan Ibrahimovic. Andryi Shevchenko. Wayne Rooney. 26 fótbolti Helgin 4.-6. maí 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.