Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 68
 Plötudómar dr. gunna Þorpið  Bubbi Morthens Ræturnar púss- aðar Bubbi veitir vel á Þorpinu: 14 lög á rúmlega klukkutíma og heimildarmynd að auki. Þetta er „aftur í kántrí og fólk-ræturnar“ plata, en ekki ný varða á veginum eins og sú sólaða síðast. Þó eru sömu fínu hjálparkokkarnir enn með. Textainnhaldið er gamalkunnugt og stundum lætur Bubbi rímþörfina hlaupa með sig í gönur, sérstaklega í titillaginu. Nokkur lög eru í þynnra lagi og hljóma eins og þau séu bara með til að fylla upp í kvótann. Mörg önnur (þeirra á meðal Óskin, Sjoppan og Ballaðan um bræðurna) eru sterk, kraftmikil og flott og sýna okkur enn og aftur hvers vegna við fáum aldrei nóg af Bubba Morthens. Ágæt plata frá Kónginum, en ekki ein af hans betri. EP  M-Band Poppaður tregi Hörður Már Bjarnason er 23 ára strákur sem starfrækir M-Band. Þessi sex laga EP er hans fyrsta framlag til tónbókmenntanna. Platan inniheldur aðgengilega raf- tónlist sem Hörður syngur sjálfur með silkimjúkri röddu – því miður á ensku. Tónlistin er poppuð en með tregafullum undir- tóni og minnir allnokkuð á 21. aldar riþmablús The Weekend. Hörður fær hjálp frá RetRoBot (sigurvegurum Músíktilrauna 2012) í mesta stuðlagi plötunnar og Bára Jónsdóttir syngur annað lag. Þetta er heilsteypt og heillandi byrjendaverk og ég heyri ekki betur en að í Herði sé komið mikið fram- tíðarefni. Hann er vonandi bara rétt að byrja. Platan er stafræn á m-bandmusic. com. Blunderbuss  Jack White Jack finnur fjöl- ina Gaman var af hráleika The White Stripes og hvernig bandið nálgaðist rokk- og rólarfinn. Síðan sveitin hætti eftir að hafa risið í hæstu hæðir hefur Jack White gert músík með hljómsveitunum The Raconteurs og The Dead Weather (hvorug mjög sannfærandi) og nýtt auðæfi sín til að koma sér vel fyrir í Nashville. Þessi fyrsta sólóplata spriklar af hress- leika og ákafri sköpunar- gleði, þar sem listamaðurinn hrærir upp í rokkgrautnum, tékkar á möguleikunum og gerir það sem honum sýnist. Hér eru mörg frábær lög og nokkur miðlungs, en í heild- ina er þetta það sterkasta og skemmtilegasta sem Jack hefur komið nálægt síðan á gullöld White Stripes.  FEgurð PEoPlE vElur FEgurstu konu hEims Beyonce fallegasta kona heims Bandaríska tímaritið People hefur kunngjört val sitt á fegurstu konu heims árið 2012. Söng- stjarnan Beyonce, sem fæddi nýlega sitt fyrsta barn, er talin öðrum konum fegurri. 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 Beyonce er fallegust. Sofia Vergara, úr Modern Family-þáttunum, er í öðru sæti. Stórleikkonan Charlize Theron er í þriðja sæti. Mjallhvít sjálf, leikkonan Lily Collins, er í fjórða sæti. Leikkonan Madelaine Stowe er í fimmta sæti. Mad Men-bomban Christina Hendricks er í sjötta sæti. Leikkonan Michelle Williams er í sjöunda sæti. Leikkonan Paula Potton er í áttunda sæti. Kántrístjarnan Miranda Lamberter í níunda sæti. Kate Middleton, eiginkona Vilhjálms prins, er í tíunda sæti. 60 dægurmál Helgin 4.-6. maí 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.