Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 18
PI
PA
R\
TB
W
A
·
SÍ
A
·
11
21
74
b
m
va
ll
a
.is
Hágæða hráefni fyrir íslenskar aðstæður
Í múrversluninni hjá BM Vallá geturðu gengið að fyrsta flokks vöru og þjónustu
fyrir allt múrverk ásamt hágæðaflotefni sem hentar bæði til nýbyggingar sem og í
endurflotun. Einnig býður BM Vallá uppá StoCrete flotefni.
BM Vallá hefur um árabil verið í fararbroddi íslenskra
iðnfyrirtækja og gegnt forystuhlutverki í framleiðslu fyrir
íslenskan byggingarvörumarkað.
Sími: 412 5050
Fax: 412 5001
sala@bmvalla.is
BM Vallá ehf.
Breiðhöfða 3
110 Reykjavík
Góður múr
er grundvallaratriði
Ó
hætt er að segja að líf Jóhanns
Páls hafi snúist um bækur
þessi sextíu ár og eins og hann
segir sjálfur þá fæddist hann
inn í bókabransann. Þrátt fyrir
að það hafi ekki verið ætlun hans þá kom
Jóhann Páll á fullt inni í Iðunni fljótlega að
loknu stúdentsprófi. „Ég byrjaði reyndar í
bókmenntum í Háskólanum en á sama tíma
hætti lykilstarfsmaður á Iðunni þannig að ég
hætti í náminu og fór bara í fullt starf þarna
strax. Það gerði mér kannski dálítið erfitt fyr-
ir að hafa fæðst inn í bókaútgáfu vegna þess
var ég mjög upptekinn af því sem aðrir væru
að hugsa. Að fólki þætti ég ekki eiga neitt
andskotans erindi í bókaútgáfu. Að ég kynni
ekkert og vissi ekkert og væri þarna bara af
því að ég væri pabbastrákur. Þessar vanga-
veltur um hvað annað fólk væri að hugsa
trufluðu mig mjög lengi og þetta er eitthvað
sem ég reyni mjög að forðast í dag, varðandi
alla skapaða hluti, að vera ekki að velta fyrir
mér hvað annað fólk er að hugsa.“
Þessar áhyggjur Jóhanns Páls urðu til þess
að hann fann gríðarlega þörf fyrir að sanna
sig fyrstu árin. „Og sjálfsagt hefur þetta orðið
til þess að ýta enn meira undir maníu mína
og kappsemi. Eitthvað af því er nú meðfætt
en mér var mjög í mun að sýna og sanna að
ég ætti eitthvert erindi í þetta og hef örugg-
lega verið mun manískari fyrir vikið.“
Vildi enginn pabbastrákur vera
Jóhann Páll segir Iðunni hafa verið tiltölulega
lítið fyrirtæki, reksturinn í góðu jafnvægi
og undirstöðurnar ákaflega traustar. „Iðunn
var vel rekið fyrirtæki en varð á næstu tíu
árum hreinlega stórveldi og ég held að það
sé ekkert ofmælt að segja að Iðunn hafi þá
borið höfuð og herðar yfir aðra útgefendur
hér á landi. Ég líki nú stundum lokaárunum
á Iðunni við það að þetta hafi verið eins og að
stjórna peningaprentsmiðju og undir lokin
fannst mér Iðunn vera orðin of stór. Ég ætti
náttúrlega ekki að vera að segja þetta núna
þar sem Forlagið er margfalt stærra en
Iðunn nokkurn tíma var en þetta var dálítið
orðið eins og að stjórna færibandi. JPV útgáfa
átti að vera lítið og huggulegt fyrirtæki þann-
ig fórum við af stað með það, en boltinn hefur
rúllað miklu hraðar en ég hafði nokkurn tíma
ætlað mér.“
Afleiðingin var að Jóhanni Páli fannst hann
á einhvern hátt vera búinn að missa tengslin
við höfundana og það sem hann var að fást
við. „Þessi tengsl voru ekki eins djúp þegar
þetta var orðið svona umsvifamikið.“ Og að
lokum skildu leiðir feðganna og illu heilli
ekki í góðu. „Samstarf okkar var almennt
mjög gott og pabbi gaf mér algjörlega lausan
tauminn í útgáfunni þannig að ég hafði aldrei
neitt upp á það að klaga.“ Jóhann Páll segir í
raun furðulegt hversu mikið frelsi faðir hans
gaf honum en hann var hins vegar ekki til
að hlusta sem skyldi á föður sinn þannig og
átti það sinn þátt í að á endanum sauð upp
úr. „Maður sér þetta náttúrlega allt öðruvísi
í endurliti en kannski var þetta hluti af því
sem ég nefndi áðan með þörfina til að sanna
mig. Ég sé mikið eftir því í dag að hafa ekki
hlustað á pabba vegna þess að hann hafði
heilmiklu að miðla en ég var svo upptekinn af
því að vera bara ég. Öllum óháður og engum
Glímir við sjálfan sig á barmi hengiflugsins
Jóhann Páll Valdimarsson er einhver skrautlegasti bókaútgefandi landsins. Hann varð sextugur á fimmtudag og lýsir sér sem eilífðarvillingi sem ætlaði að lifa stutt
og verða fallegt lík. Nú þráir hann langlífi í faðmi fjölskyldunnar og kattanna sem róa taugar hans. Þórarinn Þórarinsson heimsótti Jóhann Pál á heimili hans og konu
hans Guðrúnar Sigfúsdóttur og fékk útgefanda Íslands til þess að líta yfir farinn veg sem er varðaður áföllum, sigrum og endalausri glímu mannsins við sjálfan sig.
Fjölskyldan sótti nú mjög að
mér þegar við fengum út-
gáfurétt að Biblíunni og sagði
að nú kæmi ekki til greina
lengur að ég hagaði mér og
talaði eins og ég gerði en það
náttúrlega gekk ekki neitt.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Framhald á næstu opnu
Ljósmynd Hari
18 viðtal Helgin 4.-6. maí 2012