Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 25
Óskabörn í fyrsta bekk
fá hjálm frá Eimskip og Kiwanis
Skráðu barnið þitt á
www.oskaborn.is
fyrir 10. maí
Stuðlum að öryggi barnanna okkar í umferðinni
með því að láta þau vera með hjálm þegar
þau hjóla út í sumarið.
www.eimskip.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
52
10
8
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
13.900 kr.flug frá
á lægsta verðinu árið 2012!
Billund
Heimsferðir bjóða þér beint flug til Billund í
sumar. Flogið verður alla mánudaga frá 21. maí til
10. september frá Billlund til Keflavíkur. Flug frá
Keflavík til Billund verður alla miðvikudaga frá 23.
maí til 12. september.
Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og
næla sér í flug til Billund á lægsta verðinu.
Skráðu þ
ig í
netklúb
b
Heimsfe
rða og
fáðu sen
d öll
tilboð.
stofnaði. Hún er með símann í hendinni og
talar heim til Íslands.
„Ári seinna vorum við alflutt til Tarifa.
Ég féll algjörlega fyrir bænum, fannst ég
að sumu leyti vera komin heim í Grundar-
fjörð, kominn hringinn, enda um margt líkt
þó að umhverfið sé allt annað. Tarifa er lítill
fiskimannabær og lítið þekktur af ferða-
mönnum. Hér þekkjast svo til allir og fólk
tekur sér tíma til að spjalla yfir kaffibolla og
hér er enginn að flýta sér,“ segir hún. Þótt
þetta sé helsti kosturinn geti hann reynt á
vilji menn koma hlutunum í verk:
„Þá fær maður oft að heyra; nægir að
gera þetta á morgun?“ Hún hlær létt og
segir lífsstílinn oft þann að reyna að komast
upp með að vinna sem minnst og njóta sem
mest.
„Já, lifa góðu lífi. Fólkið er svo opið og
létt. Ekkert stress og enginn að flýta sér.
Það er enginn að gera neitt umfram.“
Brimbretti, hugleiðsla, matreiðsla
Arna segir að skemmtileg blanda af bæði
ungu og eldra fólki heimsæki Tarifa.
„Hingað koma margir til að stunda hina
ýmsu brimbrettamennsku.“ Þá sé bærinn
vinsæll til hugleiðslu og jóga. Ekki er mikið
um gistirými í bænum og því hafa bæjarbú-
ar komist upp með hærrri verðlagningu
fyrir gistinguna en gengur og gerist á hefð-
bundnari ferðamannastöðum. Hún sér því
um að koma fólki fyrir þegar þess er óskað.
„Kennslan er mjög persónuleg. Lang-
flestir eru ánægðir og ég hef fengið
skemmtileg viðbrögð. Það eru aldrei fleiri
en tíu í bekk. Ég er með gistirými á efri
hæðinni og leigi út íbúðir. Fólk getur komið
á eigin vegum ef það vill en ég auðvelda
fólki leitina þegar þarf og finn það sem
hentar,“ segir hún. „Flestir fljúga Malaga
en það tekur einn og hálfan tíma að ferðast
hingað. Ég bíð líka upp á að sækja fólk.
Best er að fljúga til Gíbraltar en þaðan eru
aðeins um 30 kílómetrar. Sumir fljúga til
Sevilla og koma með rútu eða láta sækja
sig. Það tekur um tvo tíma.“
Íslenskt hrun breytti stefnunni
Arna hefur nú rekið skólann sinn í fjögur
ár og segir þau fyrstu hafa verið magrari
en hún vonaðist til. „Ég opnaði ekki á besta
tíma. Ísland hrundi og það var óheppilegt
þar sem ég stílaði inn á íslenska markað-
inn. Ég skipti um kúrs og nú fæ ég fólk alls
staðar að,“ segir hún
„Þar sem helsti ferðamannatíminn er í
júní, júlí og ágúst þarf ég einnig að breyta
um stefnu yfir vetrartímann. Nú stefni ég
á að kenna heimamönnum ensku og hjálpa
unglingum með heimanámið. Svo sé ég
fyrir mér að við förum með hópa til Suður-
Ameríku yfir vetrartímann þegar tækifæri
gefst.“
Það er gott að búa yfir sjálfsbjargarvið-
leitni þegar fjórði hver maður er atvinnu-
laus í kringum mann. Arna segir atvinnu-
ástandið á Spáni fara illa með fjölmargar
fjölskyldur. „Já, fólk talar mikið um þetta
ástand því atvinnuleysi hrjáir heilu fjöl-
skyldurnar. Í mörgum þeirra hefur enginn
vinnu, það er mjög slæmt. Það er heldur
engin hjálp nema í stuttan tíma frá hinu
opinbera. Hér missa því margir húsnæðið
og eru á götunni. Það koma dagar þar sem
ég fæ fleiri atvinnuumsóknir en skráningar
í skólann. Þær flæða inn. En það fer samt
ekki í taugarnar á þeim að við séum hér.
Þeir vita að útlendingar skapa atvinnu. Það
er ekki verið að taka frá þeim beint,“ segir
Arna um ástandið.
Þrátt fyrir bágborið ástand á Spáni er
Arna búin að koma sér vel fyrir og er ekki
á heimleið. Og eins og fyrr sagði, þá er
afar ólíklegt að hún komi yfir höfuð hingað
heim til að dvelja um lengri tíma.
„Það er þetta flökkueðli. Það er eitthvað
sem togar í mann,“ segir þessi Grundfirð-
ingur, sem hefur nú búið lengur ytra en hér
heima.
Ég féll al-
gjörlega
fyrir bænum,
fannst ég
að sumu
leyti vera
komin heim í
Grundarfjörð,
kominn hring-
inn, enda um
margt líkt
þó að um-
hverfið sé allt
annað. Tarifa
er lítill fiski-
mannabær og
lítið þekktur
af ferða-
mönnum. Hér
þekkjast svo
til allir og fólk
tekur sér tíma
til að spjalla
yfir kaffibolla
og hér er eng-
inn að flýta
sér.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
viðtal 25 Helgin 4.-6. maí 2012