Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 7
Sturla fundaði með Ögmundi ekki Steingrími
Sturla Böðvarsson, þá
forseti Alþingis, átti fund
með Álfheiði Ingadóttur
og Ögmundi Jónassyni,
þá þingflokksformanni
Vinstri grænna, eftir að
Búsáhaldabyltingin hófust
í janúar 2009. Þar ræddu
þau að þingmenn hafi
séð hana vera í sambandi
við fólk utan Alþingis-
hússins og virst sem hún
væri að veita þeim ráð og
upplýsingar um viðbúnað
lögreglu. Hún neitaði.
Kjartan Ólafsson sagðist
hins vegar, á fundi for-
sætisnefndar 22. janúar
2009, hafa séð þetta.
Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, nú forseti
Alþingis, sagði að margir
hefðu nefnt þetta meinta
framferði Álfheiðar í sín
eyru. Á fundinum komu
fram áhyggjur af öryggi
Alþingis, vegna þessa og
viðtals við Grétar Mar
Jónsson þá alþingis-
manns, þar sem hann
sagði frá undirgöngum
frá Alþingi í hliðarbygg-
ingar. Fréttatíminn hefur
fundargerðina og greindi
frá málinu fyrir hálfum
mánuði. Þar var ranglega
sagt að Sturla hefði
fundað með formanni
VG. - gag
www.hr.is
Viltu skemmtilegt og spennandi nám? Viltu mæta sterkari út á vinnumarkaðinn? Viltu
vinna með frábærum kennurum og taka þátt í öugu rannsóknar- og nýsköpunarstar?
Háskólinn í Reykjavík er framsækinn, alþjóðlegur háskóli með ótvíræða forystu í tækni-
greinum, viðskiptum og lögum – lykilgreinunum fyrir öugt atvinnulíf.
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR TIL 5. JÚNÍ
Velkomin í HR
Þóra Björk Samúelsdóttir
• Stúdent af náttúrufræðibraut
frá MÍ 2006
• Kláraði rafvirkjun í
Tækniskólanum 2010
• Rafmagnstæknifræði
• Áhugamál: Fjölskylda, vinir,
sveitin mín og ferðalög
Leifur Þór Leifsson
• Lektor við tækni- og
verkfræðideild
• Doktor í flugvélaverkfræði
• Sérsvið: Loftaflfræði
Evrópustofa opnuð á
Akureyri
Evrópustofa – upplýsingamiðstöð ESB á
Íslandi – stendur fyrir Evrópuviku 7.–13.
maí í tilefni af Evrópudeginum 9. maí.
„Markmiðið er að gera Evrópu hátt undir
höfði og vekja athygli á því hvað Evrópu-
samstarfið er,“ segir Birna Þórarinsdóttir,
framkvæmdastýra Evrópustofu. „Fyrst
skal telja opnun Evrópustofu í Norrænu
upplýsingaskrifstofunni á Akureyri,
mánudaginn 7. maí, og plakatasýningu
á Glerártorgi sem útskýrir uppbyggingu
og stefnumál Evrópusambandsins,“ segir
Birna. „Þá verður opinn borgarafundur í
Iðnó með sendiherra ESB, Timo Summa, á
þriðjudeginum auk annarra funda og kynn-
inga í vikunni.“ Evrópuvikan nær hámarki
í Hörpu á sunnudeginum. „Þá bjóðum við
skemmtiatriði og kynningar á samstarfs-
áætlunum ESB á Íslandi, sem við eigum
aðild að í gegnum EES-samninginn,“ segir
Birna. Deginum lýkur með stórtónleikum í
Eldborgarsalnum. Þar stíga á svið European
Jazz Orchestra og Stórsveit Reykjavíkur. -jh
Landsvirkjun dregur úr
áhættu
Landsvirkjun hefur skrifað undir samninga
við Norræna fjárfestingarbankann um
skuldbreytingu tveggja lána hjá bankanum
úr evrum á breytilegum vöxtum í dollara á
föstum vöxtum. Annað lánið var tekið árið
2004 með gjalddaga 2019 en hitt var tekið
2006 með gjalddaga 2028. Með samn-
ingnum dregur Landsvirkjun úr fjárhags-
legri áhættu vegna mögulegra breytinga á
gengi evru gagnvart dollar sem er starfs-
rækslumynt félagsins, að því er fram kemur
tilkynningu þess. Um 90 prósent tekna
Landsvirkjunar eru í dollurum en ekkert
er í evrum. Hlutfall evru í vaxtaberandi
langtímaskuldum Landsvirkjunar lækkar úr
38 prósentum í 31 prósent á sama tíma og
hlutfall dollars hækkar úr 42 prósent í 49
prósent. Vaxtaberandi skuldir Landsvirkj-
unar námu rúmum 2,6 milljörðum dollara
í lok síðastliðins árs. Skuldbreytingin jafn-
gildir 183 milljónum dollara, 23 milljörðum
króna. Annar ávinningur er að hlutfall
breytilegra vaxta í lánasafninu lækkar. - jh
Vörður skilaði 330
milljóna króna hagnaði
Rekstur Varðar
trygginga skilaði 330
milljóna króna hagn-
aði fyrir tekjuskatt
árið 2011. Þetta er
um 59 prósenta aukning frá árinu 2010
þegar 208 milljóna króna hagnaður varð
af rekstrinum, að því er fram kemur á
heimasíðu tryggingafélagsins. Eigin iðgjöld
jukust um 14,1 prósent og voru 4 milljarðar
króna samanborið við 3,5 milljarða árið
2010. Heildartekjur jukust um 9,8 prósent.
Þær voru 4,5 milljarðar króna en 4,1 millj-
arður árið á undan. Eiginfjárhlutfall er 24,4
prósent og hækkar um 1,8 prósent milli
ára. Arðsemi eiginfjár var 17,5 prósent en
15,8 prósent árið 2010. „Vörður tryggingar
hefur nú skilað góðum hagnaði síðustu þrjú
ár þrátt fyrir erfiðar aðstæður í efnahags-
lífinu. Félagið eflist og eykur markaðs-
hlutdeild sína ár frá ári,“ segir Guðmundur
Jóhann Jónsson, forstjóri félagsins. -jh
Ferðalög Nýjasta FlugFélagið tilbúið í loFtið
Helmingur flugmanna íslenskur
Skúli Mogensen, aðaleigandi WOW
F imm af tíu flugmönnum og flugstjórum véla WOW air er íslenskir og eru nú í þjálf-
un til að hljóta réttindi til að fljúga
Airbus A320 vélunum sem félagið
notar. Erlendu flugmennirnir eru
þegar með réttindi. Allir flug-
liðar eru íslenskir og hefur verið
gengið frá ráðningu 45 manns, að
sögn Baldurs Odds Baldurssonar
forstjóra. Fyrsta áætlunarflug
WOW air er 31. maí frá Keflavík til
Parísar.
WOW air hefur gert samning við
Avion Express um leigu á tveimur
Airbus 320 vélum. Önnur hefur
þegar fengið yfirhalningu, að sögn
Baldurs, þar sem skipt hefur verið
um sæti og teppi en hin verður
tekin í gegn á næstu dögum.
Samkvæmt upplýsingum
frá Isavia, sem annast rekstur
Keflavíkurflugvallar, er áætlað að
umfang flugstarfsemi á Kefla-
víkurflugvelli slái öll fyrri met á
komandi sumri. Alls munu 17 flug-
félög halda uppi ferðum til landsins
í sumar og veruleg aukning verður
í leiðakerfum flugrekenda sem
aldrei hafa haft jafnmarga áfanga-
staði í áætlunar- og leiguflugi til og
frá landinu.
fréttir 7 Helgin 4.-6. maí 2012