Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 32
Gott djobb?
Óðum styttist í að fresturinn
til að lýsa framboði til
forsetakosninga en lengi er von á einum eða einni
og nú síðast steig Andrea Jóhanna Ólafsdóttir hjá
Hagsmunasamtökum heimilanna fram. Sérstaka
athygli vakti að hún ætlar að sinna starfi forseta á
lágmarkslaunum nái hún kjöri.
Sigurður G. Tómasson
Hvernig ætlar konan að fara að þessu? Ætlar hún
að biðja Alþingi að setja lög um þetta? Forseti
getur nefnilega ekki gert þetta, einn og sjálfur. Að
mínu viti er þetta ómerkilegt lýðskrum og lofar
ekki góðu. Sem betur fer eru engar líkur á að þessi
frambjóðandi nái kjöri.
Birgitta Jónsdóttir
Gott mál - það er nauðsynlegt með ráðum og
dáðum að vekja athygli á þeim málum sem Andrea
hefur látið sig mestu varða. Hún er alvöru mann-
eskja sem ég hef verið svo lánsöm að vinna með í
sjálfboðaliðastarfi og veit hvað í henni býr:)
Gunnar Smári Egilsson
Nú er klukkan báðum sex og enn hefur enginn nýr
boðið sig fram til forseta í dag.
Varist persónudýrkun!
Bréf sem Óðinn Jónsson, fréttastjóri Ríkisútvarps-
ins, sendi á starfsfólk sitt þar sem hann bað fólk
að gæta þess að falla ekki í sömu gryfju og fólk á
öðrum miðlum og láta ekki dýrkun og vináttu villa
sér sýn í umfjöllun um forsetaframbjóðendur vakti
takmarkaða lukku.
Gaukur Úlfarsson
Þetta er með ólíkindum! Nú þyrftu blaðamenn
þessara miðla að bjalla í Óðinn og spyrja eftir-
farandi spurninga;
1. Hvaða tegund af steik ertu Óðinn?
2. Geturu nefnt dæmi um þessa taumlausu
hrifningu, húrrahrópum
eða dýrkun á einum fram-
bjóðanda umfram aðra?
3. Ertu hér að tala um þinn eigin miðil og hrifningu
Egils á ÓRG og andúð hans á öðrum frambjóðanda?
4. Finnst þér að samskiptavefir eigi ekki að vera
partur af kosningabaráttunni?
5. hvaða tegund af steik ertu Óðinn?
Birgitta Jónsdóttir
Hér tekst Óðni að segja það sem einhver í hans
stöðu þurfti að segja án þess að nefna tiltekinn
frambjóðanda á nafn. Vel gert! Tíu stig!
Ingimar Karl Helgason
Ég vil m.a. vita hverjir hinir einstöku fjölmiðlar eru.
Er það ekki sjálfsmark þegar sama fréttastofa birtir
margra mánaða gamlar kannanir sem nýja fréttir
og lætur gerir fréttir úr augljósum kosningatrixum
sitjandi forseta?
Skottulækningar á skjánum
Ríkissjónvarpið bauð á miðvikudagskvöld upp á
mynd um óhefðbundnar lækningar, The Living Mat-
rix: The Science of Healing, undir þeim formerkjum
að um heimildarmynd væri að ræða. Kenningarnar
í myndinni þykja margar býsna hæpnar ef ekki
beinlínis hættulegar og RÚV fékk mínus i kladdann
á Facebook.
Illugi Jökulsson
Ég hef ákveðið að hefja lækningar. Þarf einhver
að láta lækna sig? Skrifið sjúkdóminn á miða, látið
hann fjúka út í veður og vind og ég mun þá lækna
ykkur seinni partinn á morgun.
Andri Þór Sturluson
Þáttur um óhefðbundnar lækningar á rúv. Fyrst
sjáum við kraftaverk fjarheilunar en heilari náði að
lækna dreng sem þurfti spelkur og nú getur hann
gengið eins og drengur sem lítur út fyrir að þurfa
spelkur.
Góð Vika
Georg Lárusson
forstjóri Landhelgisgæslunnar
Slæm Vika
fyrir Ómar Stefánsson,
umsjónarmann íþróttavalla í Kópavogi
541,3
metrar er hæð turnsins sem
risinn er á lóðinni þar sem
Tvíburaturnarnir hrundu til
grunna í New York 11. sept-
ember 2001.
Kjötkögglar og mávager
Ómar Stefánsson, umsjónarmaður með íþróttavöllum í Kópavogi, átti
slæma viku. Kjötmjöl í kögglum var borið á íþróttavellina, bæði aðal-
völl bæjarins í Kópavogsdal og völl HK í Fossvogsdal. Kjötkögglarnir
löðuðu á sér mávager í hundraða- eða þúsundatali. Ónæði var mikið af
gargandi fuglagerinu sem hélt vöku fyrir íbúum í nágrenni vallanna og
hræddi börn. Kjötmjöl hefur áður verið borið á vellina í Kópavogi en þá
í duftformi. Brugðist var við þessu ófremdar-
ástandi með því að mylja kögglana, fara
yfir vellina með sláttuvélum og bleyta
þá. Þá voru vellirnir sandbornir og
gasbyssa notuð til þess að fæla
fuglana burt. Það vill Ómari til
happs að enn eru tvö ár í kosningar
en hann er bæjarfulltrúi og leiðtogi
Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Hann mun því væntanlega vanda
sig betur næsta vor, svo ekki sé
talað um kosningavorið 2014. Hann
má þó eiga það að hann baðst
auðmjúklega afsökunar á
ástandinu og lofaði að gera
þetta ekki aftur.
8
Vikan í tölum
HeituStu kolin á
Íslendingar taka þátt í undanúrslitum meistaradeildar Evrópu í handbolta. Hjá Kiel
er Alfreð Gíslason þjálfari og Aron Pálmarsson leikmaður. Dagur Sigurðsson stýrir
Füsche Berlin en Alexander Petterson leikur með liðinu – í danska liðinu AG spila
þeir Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Arnór Atlason og Snorri Steinn
Guðjónsson. Atletico frá Spáni er eina liðið sem er Íslendingalaust.
Þrjár þyrlur og Þór
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, átti góða
viku. Hann endurheimti bæði þyrlu og Þór úr viðgerð og er nú
með fullan flota til taks; þrjár þyrlur og eitt varðskip. Þyrlan
TF-LIF kom til landsins 1. maí eftir að hafa verið í skoðun í
Noregi frá miðjum janúar. TF-GNA og TF-SYN fylgdu TF-LIF
í lágflugi inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Varðskipið
Þór er á heimleið frá Björgvin
í Noregi þar sem það
hefur verið í viðgerð síðan
í febrúar. Skipta þurfti
um aðra aðalvél skipsins
vegna titrings sem fram
kom í henni. Viðgerð er
lokið og í prufusiglingu um
síðustu helgi mældist enginn
óeðlilegur titringur og því
ekkert að vanbúnaði við
að leggja á haf út
heim á leið.
Samið um rekstur Herjólfs
Vegagerðin hefur samið við Eimskip um
rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs
2012 – 2014. Styrkur Vegagerðarinnar
verður 681 milljón á ári.
Ætla að klára stóru málin
Ríkisstjórnin ætlar að klára öll stóru málin
sem nú liggja fyrir þinginu, um annað verður
ekki samið, segir þingflokksformaður Vinstri
grænna. Þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins segir óraunhæft að það takist.
Fjármálastjóri fékk betri vaxtakjör
Fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, Guðrún
Pálsdóttir, fékk í tíð sinni sem fjármálastjóri
vaxtalaus lán fyrir gatnagerðargjöldum
og hagstæðari vaxtakjör en öðrum stóð til
boða vegna kaupa á einbýlishúsalóð.
Bjargaðist undan Látrabjargi
Sjómaður bjargaðist þegar bátur hans sökk
við Látrabjarg á þriðjudagskvöld. Hann var
orðinn kaldur og þrekaður þegar honum var
bjargað af sjómanni á öðrum báti.
Athugasemdir vegna matvælaöryggis
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, gerir athuga-
semdir við matvælaöryggi á Íslandi og telur
að annmarkar séu á eftirliti með kjöt- og
mjólkurvörum. 13
falt var matsverð Glitnis
á fjórðungs hlut í Aurum
Holding árið 2008 miðað
við mat Gylfa Magnússonar
og Bjarna Frímanns Karls-
sonar. Glitnir lánaði sex
milljarða en miðgildi mats
Gylfa og Bjarna hljóðaði upp
á 464,5 milljónir. Bankinn
hefur höfðað sex milljarða
skaðabótamál, meðal annars
á hendur Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni.
900
milljónir eru meðallaun leik-
manna enska úrvalsdeildar-
liðsins Manchester City.
Aðeins spænsku stórliðin
Barcelona og Real Madrid
greiða leikmönnum sínum
hærri meðallaun.
Bjarni Guðjónsson,
fyrirliði KR, lyfti
meistarabikar KSÍ á
loft á þriðjudaginn
eftir sigur KR á FH, 2-0.
Þetta er annar titill KR
á nokkrum dögum og
ágætis veganesti fyrir
tímabilið sem hefst
um helgina. Þar hefur
KR tvo titla að verja
eftir að hafa unnið
bæði Íslandsmótið og
bikarkeppnina í fyrra.
Ljósmynd/Hari
Sex hundruð bátar á strand-
veiðum
Strandveiðar eru hafnar og héldu um 600
bátar til veiða. Næstu fjóra mánuði er heim-
ilt að veiða á handfæri allt að 8.600 tonn af
óslægðum botnfiski. Trillukarl segir að þetta
sé hálfgerð keppni þar sem mönnum sé att
út á sjó í öllum veðrum.
Skákmunirnir best geymdir á Ís-
landi
Skáksamband Íslands telur að munir úr
skákeinvígi aldarinnar séu best geymdir á
Íslandi. Sambandið harmar að til standi að
selja taflborð sem notað var í einvíginu úr
landi.
Búsáhaldabylting um heim allan
Hörður Torfason hefur ferðast um heiminn
síðan búsáhaldabyltingunni lauk til að segja
frá henni og hvers vegna hún bar árangur.
Tólfta maí verða alheimsmótmæli.
Minkur innan borgarmarka
Meindýraeyðir Reykjavíkur segir að hátt
í sjötíu minkar séu veiddir innan borgar-
markanna á hverju ári. Þeir hafist við all-
staðar þar sem er sjór eða vatn og eigi bæli í
fjörunni í kringum Reykjavík.
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Sumarið
er komið!
Frábærir ferðafélagar
í sumar
Loksin
s
fáanLe
gar
aftur
!
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
32 fréttir vikunnar Helgin 4.-6. maí 2012