Fréttatíminn - 04.05.2012, Blaðsíða 36
4 hjólreiðar Helgin 4.-6. maí 2012
Hálendið hjólreiðaferðir
VErð 49.990 kr.
Jamis Trail Xr
Frábært Fjallahjól
á góðu verði.
Stell: carbon Steel.
gírSkiptir: Shimano
tZ30 21 gíra.
VErð 59.990 kr.
Jamis Trail X1
Frábært Fjallahjól.
Stell: ál.
gírSkiptir: Shimano
tourney 21 gíra.
dempari í FramgaFli.
VErð 66.990 kr.
Jamis EXplorEr 2
Þægilegt hjól bæði innan-
og utanbæjar.
Stell: ál.
gírSkiptir: Shimano 21 gíra.
dempari í Sæti og í FramgaFli.
til í herra- og dömuútgáFu.
VErð 53.990 kr.
Jamis EXplorEr 1
einFalt og Þægilegt hjól
bæði innan- og utanbæjar.
Stell: Stál.
gírSkiptir: Shimano 7 gíra.
dempari í Sæti og í FramgaFli.
til í herra- og dömuútgáFu.
VErð 54.990 kr.
Jamis CiTizEn 1
Frábært innanbæjar hjól.
Stell: Stál.
gírSkiptir : Shimano 21 gíra.
dempari í Sæti.
til í herra- og dömuútgáFu.
nÁÐU ÁranGri. ÚTilÍF – HolTaGÖrÐUm. GlÆsiBÆ. KrinGlUnni. smÁralinD. WWW.UTiliF.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
U
TI
5
95
12
0
4/
12
HJÓLUM Í VINNUNA
ÞÚ FÆRÐ JAMIS HJÓLIN Í HOLTAGÖRÐUM
a ð ganga Laugaveginn hafði lengi verið draumur Evu Ýrar Gunnlaugsdóttur hjúkrunarfræðings.
Eftir að hafa reynt að fá unnustann, Jóhannes
Bjarnason, til að rölta þetta með sér var eitt
föstudagskvöldið ákveðið að í staðinn fyrir að að
reima á sig gönguskóna væri skemmtilegra að
hjóla þarna á milli.
Fyrsta hindrunin var þó að Eva á ekki fjalla-
hjól og hafði ekki lagt stund á slíkar hjólreiðar.
En tveimur dögum eftir að hugmyndin kom upp
var þó búið að redda skutli upp í Landmanna-
laugar með tvö fjallahjól í skottinu. Svo vel vill til
að vinkona þeirra var skálavörður þarna uppfrá
og hjálpaði við við að skipuleggja túrinn.
Ákveðið var að hjóla í þremur áföngum með
tveggja nátta gistingu á leiðinni. Lukkan var
með þeim því hægt var, með smá mútum, að ferja
farangur milli skála með bíl. Þannig að eingöngu
þurfti að hafa með nesti dagsins í bakpokum.
Eva segir að þetta hafi verið eitthvað það
skemmtilegasta sem hún hefur á ævinni gert
og mælir með þessu fyrir alla sem vilja reyna
– stórkostlegt sé að geta skoðað landið með
þessum hætti. Hún bætir við að allir geti lagt
í svona reisu séu þeir í sæmilegu formi. Hún
hreyfi sig ágætlega mikið og hjóli talsvert þótt á
venjulegu götuhjóli sé og því hafi hún treyst sér
vel í þessa ferð. Áætlanir stóðust allar nema hvað
einn áfanginn þótti full stuttur. Þeim Evu og Jóa
reiknast því til að hægt sé að komast þetta vand-
kvæðalaust í tveimur áföngum og gista þannig
bara eina nótt á Laugaveginum sjálfum. Þau
hjúin eru svo hvergi nærri hætt að skoða landið
á þennan hátt og mun Norðurlandið að öllum
líkindum verða fyrir valinu þetta sumarið.
Langur Laugavegur
Laugavegurinn, ekki þessi með búðunum heldur hinn sá sem tengir saman Þórsmörk og
Landmannalaugar, er ein fallegasta og jafnframt vinsælasta gönguleið á landsins.
Þeir voru fimm hundruð
þrjátíu og þrír sem hófu
leik fyrir níu árum síðan.
Meginmarkmið átaksins
Hjólað í vinnuna var að
vekja athygli á þeim um-
hverfisvæna, heilsusam-
lega og hagkvæma sam-
göngumáta sem hjólreiðar
eru. Þetta virðist hafa
tekist því í fyrra tóku þátt
ellefu þúsund tvöhundruð
sjötíu og einn og hafði þátt-
takan því aukist um tvö
þúsund prósent frá fyrsta
ári.
Upphaflega stóð átakið i
viku og þá að hausti til en
undanfarin ár hefur það
staðið yfir í þrjár vikur í
sumarbyrjun. Þetta árið
verður keppt í tveimur
greinum: Vinnustaða-
keppni, þar sem keppt verð-
ur um heildarfjölda daga og
síðan er keppni milli liða í
sérstakri kílómetrakeppni.
Það geta allir tekið þátt svo
framarlega sem þeir nýta
eigin orku. Það er því hægt
að taka þátt þótt ekkert sé
hjólið, ýmist þá með því að
ganga eða hlaupa. Hjólað
í vinnuna fer fram dagana
níunda til tuttugasta og
níunda maí. Nánari upp-
lýsingar má finna á www.
hjoladivinnuna.is
Keppni hjólað í vinnuna
Hjólandi í vinnuna
Nú líður senn að því að kapp hlaupi í kinn vinnandi
fólks á Íslandi því átak Íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands, Hjólað í vinnuna, er að fara af stað
í næstu viku. Þá hefst baráttan um að hala inn
kílómetrana fyrir sinn vinnustað sem aldrei fyrr.