Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 42

Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 42
581 15 15ATH! opið til kl. 01 um helgar í Gnoðavogi Gnoðavogi 44 Ánanaustum 15 Eddufelli 6 AFMÆLIS TILBOD GILDIR TIL 13. MAI 16” Pizza 2 aleggstegundir ostabraudstangir 2 L Pepsi 1990 16” Pizza 2 aleggstegundir 1290 gild ir ein gon gu ef s ott er 5 ara gamalt verd ! N okkur umræða hefur skapast um hefðbundnar og óhefðbundnar lækn- ingar við krabbameinum undan- farið. Sérstaklega hefur verið sett spurningarmerki við hin hefðbundnu krabbameinslyf við brjóstakrabbameini. Umræðan er sjálfsögð. Öll lyf hafa aukaverk- anir, stundum alvarlegar og það er rétt að stundum er um ofmeð- höndlun að ræða. Þegar kona er greind með brjóstakrabbamein er meinið fjar- lægt. Engin önnur meðferð læknar slíkt mein. Skurðlæknirinn læknar flesta af brjóstakrabbameini og þurfa margar konur ekki á neinni frekari meðferð að halda. Ef um fleygskurð er að ræða er þó venju- lega gefin geislameðferð en hún minnk- ar líkur á endurkomu meinsins í brjóstinu eða um það bil 75 pró- sent (10 prósent í um 2,5 prósent). Sumar konur eiga þó á hættu að sjúkdómurinn taki sig upp aftur, yfirleitt sem meinvörp í öðrum líffærum og er þá um ólæknandi sjúkdóm að ræða. Vegna alvar- leika þessa er mikil áhersla lögð á fyrirbyggjandi lyfjameðferð með frumudrepandi krabbameinslyfjum og/eða and-hormónalyfjum. Fyrst er gert áhættumat þar sem líkur á að brjóstakrabbameinið taki sig upp aftur, eru metnar. Áhættumat er byggt á upplýsingum um sjúk- ling sem og vefjagreiningu æxlis- ins. Mikilvægustu matsþættir eru aldur konu við greiningu, stærð meinsins og fjöldi holhandareitla sem innihalda krabbameinsfrum- ur. Aðrir mikilvægir þættir eru tegund brjóstakrabbameins, gráða illkynja vaxtar og hormónanæmi. Niðurstaða áhættumatsins ásamt líkamlegu ásigkomulagi viðkom- andi konu stýrir ráðleggingum um meðferð. Sem dæmi hefur kona um fertugt með 1,5 cm stórt brjósta- krabbamein af 3. gráðu og engin meinvörp í holhandareitlum um það bil 30 prósenta líkur á endur- komu krabbameins innan 10 ára. Krabbameinslyfjameðferðir minnka þessa áhættu um 2/3 sem þýðir að ef við meðhöndlum 100 konur með sama sjúkdóm eru 70 læknaðar eftir skurðmeðferð ein- göngu og 20 til viðbótar læknast fyrir tilstilli lyfjameðferðar. Um 10 konur fá sjúkdóminn aftur þrátt fyrir meðferð. Þróun krabbameins- lyfja hefur verið mikil síðastliðin ár og þó uppistaða þeirra byggist á eldri lyfjagerðum þá höfum við lært að skammta lyfin betur og blanda saman með meiri árangri en áður. Nýjar gerðir lyfja, svo sem líftæknilyf, sem hægt er að bæta við meðferð ákveðinnar tegundar brjóstakrabbameins hafa bætt ár- angurinn. Slík lyf hafa oft sértæk- ari verkun þar sem þau grípa inn í ofvirka vaxtaferla illkynja frumna án þess að hafa mikil áhrif á eðli- lega vefi. Samhliða þróun krabba- meinslyfja hafa ný og betri stoðlyf bæst við meðferðina og gert hana þolanlegri og aukið þannig líkur á réttri skömmtun og betri með- ferðarheldni. Það er von okkar að genarannsóknir á vefjameingerð krabbameina geri okkur fljótlega kleift að klæðskerasauma áhættu- mat og lyfjameðferð fyrir hverja konu fyrir sig. Algengar aukaverkanir hefð- bundinna krabbameinslyfja eru þreyta, hárlos, ógleði, ofnæmisvið- brögð, stoðkerfisverkir, slímhúð- arbólga, taugaskyntruflanir og beinmergsbæling. Hvítkornafæð gerir sjúkling viðkvæmari fyrir sýkingum sem geta reynst mjög hættulegar og þarf að meðhöndla svo fljótt sem auðið er. Langtíma aukaverkanir eru sjaldgæfar en helst hjarta- og æðasjúkdómar, ófrjósemi, einbeitingarleysi og ör- sjaldan hvítblæði. Listi aukaverkana hljómar ekki vel, en krabbameins- og/eða horm- ónalyfjameðferðir hafa bjargað mannslífum kvenna með brjósta- krabbamein og er lyfjameðferð ásamt snemmgreiningu undir- staða góðs árangurs undanfarna áratugi. Það er á ábyrgð lækna og samfélagsins alls að standa vörð um þennan góða árangur. Það tekur krabbamein venju- lega mörg ár, stundum áratugi, að myndast og verða að illkynja æxli. Faraldsfræðilegar rannsóknir sýna að vestrænir lifnaðarhættir; hreyf- ingarleysi, ofát, fábreytt mataræði (lítið af trefjum, ávöxtum og græn- meti og of mikið af hveiti, sykri og áfengi), iðnvædd matvælafram- leiðsla og eldunaraðferðir (steikja, grilla) eru orsök um þriðjungs allra krabbameina. Reykingar og erfðir eru svo orsök þriðjungs hvort fyrir sig. Breyting á lífstíl til heilbrigð- ara lífernis og mataræðis er mikil- væg forvörn, það er getur komið í veg fyrir að krabbamein mynd- ist, auk þess að styrkja líkamann á erfiðum tímum en er ekki meðferð eða lækning. Gagnrýnin umræða er nauðsyn- leg en hún verður að vera málefna- leg og byggja á staðreyndum. Þó fátt í hinni hefðbundnu læknisfræði hefur áður mátt kalla óhefðbund- ið er ekki þar með sagt að óhefð- bundnar aðferðir eigi ekki að ein- hverju leyti rétt á sér. Ljóst er þó að mataræði, heilun eða tilbeiðsla læknar ekki krabbamein. Brjóstakrabbamein Lækningar brjóstakrabbameina Helgi Hafsteinn Helgason er lyf- og krabbameinslæknir og sérfræð- ingur í klínískri lyfjafræði við Medical Center Haaglanden, The Hague, The Netherlands 34 viðhorf Helgin 4.-6. maí 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.