Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.05.2012, Page 66

Fréttatíminn - 04.05.2012, Page 66
H arold Pinter er snúinn höfundur. Sem er eiginlega málið. Einn vinur minn sem kom út af frumsýningu Þjóð-leikhússins á Afmælisveislunni fyrir viku, sagðist hvorki skilja upp né niður þrátt fyrir einlæga viðleitni. Ég reyndi að útskýra að það væri nú einmitt það sem þetta gengi útá. En beit mig í tunguna – útskýringar fela í sér mót- sögn. Menn verða ægilega gáfulegir á svipinn þegar þeir tala um Pinter, en um leið ótrúlega heimskulegir. Leikrit Pinters eru sprottin úr absúrdismanum, níhilisma, Sísifosi Camusar, (Sigurður Pálsson sá J.P. Sartre bregða fyrir á götu í París og hefur ekki jafnað sig enn) og Laxness okkar gerði sitt besta með Dúfnaveisl- unni. Hin snúna orðræða Hvað er þá eiginlega um þetta að að segja? Að- dragandi uppfærslunnar skiptir máli. Baltasar Kormákur hefur átt sér þann draum lengi að setja upp Pinter. Og, af því að hann stendur á hátindi ferils síns má hann það – alveg endilega. Ef ég væri í hans sporum hefði ég nýtt tækifærið og fengið Braga Ólafsson til að þýða Einskis manns land, því ef ég man rétt er Afmælisveisl- an einhvers staðar til í þýðingu. En, eins öfug- snúið og það nú er, greip velgengnin Baltasar og hafði af honum Pinter, sem hann var þó byrjaður að æfa ásamt hópnum. Við kyndlinum tók önnur stjarna íslensks leikhúss, Guðjón Pedersen, og um hríð voru þeir báðir skráðir sem leikstjórar uppfærslunnar. Guðjón hefur gert vel í að kynna íslenskum leikhúsgestum þýskan expressíón- isma og dansleikhús – snjalla kóreógrafíu og hið sjónræna. Synd og skömm að hann hafi ekki haldið því merka starfi sínu áfram. Rétt er að halda því til haga að Bragi gerir vel í þýðingu sinni á þessu fyrsta verki Pinters í fullri lengd. (Ágætt leikrit Braga, Hænuungarnir, bera dám af Pinter, og Bragi segir frá því í leik- skrá að hann hafi lengi haft Pinter í hávegum.) Ekki er hlaupið að því að þýða Pinter, meistara þess sem býr að baki orðunum: Persónur tala í kross og ef samræður villast þangað að persón- urnar tali á sama plani virðast þær meina eitt- hvað annað en þær segja. Um það vitna hinar frægu þagnir Pinters, þrípunkturinn sem höf- undur skráir vandlega í handrit sín; persónurnar eru að þreifa fyrir sér, eru ekki samkvæmar sjálfum sér, við vitum ekki hvaðan þær koma eða hvert þær eru að fara. Þess vegna er Pinter sérstaklega viðkvæmur fyrir því ef þeir sem sviðsetja verk hans freistast til að bæta sinni merkingu, sínum skilningi við. Þetta er freisting sem erfitt er að verjast. Hið nauðsynlega jafnvægi Ég hef séð nokkrar uppfærslur á verkum Pin- ters. Hann notar orðaleiki í texta sínum. Hlátur er þakklátt fyrirbæri þess sem stendur á sviði og þetta hefur það verið mjólkað. En, þá er allt ónýtt. Orðaleikirnir þjóna ekki bara því hlut- verki að kreista fram hlátur meðal áhorfenda heldur benda þeir á margræðni sem þjarmar að merkingu orða. Jafnvægi ógnar og húmors (sem er eina leiðin til að lifa af í Guðlausum heimi samkvæmt Beckett) glatast. Þetta er kaldranalegt grín. Þannig að ég skil í og með  Leikdómur AfmæLisveisLAn í ÞjóðLeikHúsinu Orðaleik- irnir þjóna ekki bara því hlut- verki að kreista fram hlátur meðal áhorfenda heldur benda þeir á marg- ræðni sem þjarmar að merk- ingu orða. Hver á sinn Pinter að Guðjón hafi freistast til að stemma stigu við því og sleppt Birni Thors í að vera nánast eins og Doberm- anhundur (McCann verandi írskur?!) en það kemur niður á vitsmunalegri togstreitu hans við gyðinginn Goldberg Eggerts Þorleifssonar, eða Sæmí, Benní eða hvað við eigum að kalla hann? Þar með riðlast þetta jafnvægi sem mér finnst vera lykillinn að Pinter; en hver verður að eiga sinn Pinter. Og til að stemma stigu við gelti „Dobermanhundsins“ var Ingvari E. Sigurðs- syni fremur þröngur stakkur sniðinn með Stanley og snúna baráttu hans við tvímenningana. Þetta er lögn – og synd og skömm því oft brá fyrir glimrandi samleik Björns Thors og Eggerts sem er flottur Goldberg; þó kómíker sé mjólkaði hann ekki brandara eins og þar stendur, heldur spilaði meira inná hættuna. En, af því að svo mikið er lagt uppúr líkamlegum styrk McCanns verður það til dæmis ósannfærandi þegar Goldberg snýr hann niður. Leiftrandi senur Stíliseringar í leikmynd, að veggfóðra í hólf og gólf kassa á sviði, vísa í þau frægu orð Pinters, þegar reynt var að pína hann til að skilgreina verk sín, með að það væri maður inni í herbergi, og svo kemur annar maður inn og þá fer eitthvað að gerast, en ... eiginlega ekki umfram það. Það er engin tilviljun að verk eftir Magritte völdust á forsíður heildarsafns útgáfu verka Pinters sem Penguin gaf út. Það getur reynst varsamt að þröngva tiltekinni túlkun eða negla sínar meiningar inn í ofurraunsæið. Guðjón og Gretar Reynisson eru ekki fyrstir til að verða hált á því svellinu og ábyggi- lega ekki þeir síðustu. Ástæða er til að hrósa þeim Ólafi Ágústi og Helgu I. yfir lýsingu og búninga. Þórunn Anna fór vel með sitt hlutverk og unun er að sjá Kristbjörgu Kjeld og Erling Gíslason í sínum hlut- verkum. Sena Kristbjargar og Ingvars, þegar Stanley fer að kvelja Meg með sögunni um bílinn og hjólbör- urnar, er frábær. Umkomuleysi Petey’s, stólavarðarins sem er sér meðvitaður um að ekki sé allt með felldu, öfugt við hina grunlausu Meg, en getur lítið gert í því, er nokkuð sem Erlingur kemur einstaklega vel yfir. Reyndar eru fjölmargar leiftrandi senur í þessari upp- færslu þrátt fyrir áðurnefnda meinbugi. Sem sagt, ekki er hægt að mæla með því við nokk- urn mann að láta sjálfa Afmælisveislu Pinters fram hjá sér fara og ástæða til að hrósa Þjóðleikhúsinu sérstak- lega fyrir glæsilegt leikár; að ljúka því með frumsýn- ingu á verki eftir Pinter, sem er tvímælalaust einhvert áhrifamesta og snjallasta leikskáld leikbókmenntanna, er ekki dónalegt og fyrir það má þakka. jakob Bjarnar Grétarsson Niðurstaða: Veruleikans köldu ró skortir, leikstjórinn stenst ekki freistingar og fellur í fáeinar gildrur. En, leikhópurinn er skotheldur og Pinter ... maður lifandi, mættu í Kassann og sjáðu hvað þér finnst.  Afmælisveislan Eftir: Harold Pinter Leikstjórn: Guðjón Pedersen Leikmynd: Gretar Reynisson Búningar: Helga I. Stefánsdóttir Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson Aðstoðarleikstjórn: Stefán Hallur Stefánsson Þýðing: Bragi Ólafsson Þjóðleikhúsið Miðasala í Síma 565 5900 og á midi.is „Ég mæli eindregið með þessari sýningu“ Dr. Gunni - Fréttatíminn „Besta sýningin á stórhöfuðborgarsvæðinu“ Jón Viðar Jónsson - DV „Ævintýrin gerast enn“ Elísabet Brekkan- Fréttablaðið Sunnudaginn 6. maí kl 17.00 Laugardaginn 12. maí kl 14.00 Laugardaginn 19. maí kl 14.00 Síðustu sýningar 58 menning Helgin 4.-6. maí 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.