Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 70

Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 70
 Baltasar KormáKur með sjónvarpsglæpi í huga KR-útvarpið, sem starfað hefur sleitulaust frá árinu 1999 undir styrkri stjórn Höskuldar Höskuldssonar, verður með útsendingu númer 337 þegar KR tekur á móti Stjörnunni í fyrstu umferð Pepsideildar- innar á sunnudaginn. Enginn annar en goðsögnin Bjarni Fel lýsir leikjum KR í útvarpinu og honum til halds og trausts eru vanir menn á borð við Boga Ágústsson, Þröst Emilsson, Hauk Holm, Frey Eyjólfsson og Felix Bergsson. Útsending númer 337 Á glæpaslóðum á Seyðisfirði B altasar er merihlutaeigandi í fyrir-tæki sem hann stofnaði ásamt þeim Magnúsi Viðari Sigurðssyni, sem starfaði um langt árabil hjá Saga Film, og Sigurjóni Kjartanssyni utan um fram- leiðslu glæpaþátta fyrir Ríkissjónvarpið sem Baltasar segir að verði í anda hinna dönsku Forbrydelsen og bandarískrar endurgerðar þeirra þátta, The Killing. „Maggi og Sigurjón eru með mér í þessu. Þættirnir heita Trapped eins og er. Við erum ekki komnir með íslenskt nafn en þeir verða að sjálfsögðu á íslensku,“ sagði Baltasar þegar Fréttatíminn náði tali af honum þar sem hann var á þönum um New Orleans í leit að tökustöðum fyrir spennumyndina 2 Guns sem skartar ekki ómerkari mönnum en Mark Whalberg og Denzel Washington í aðalhlutverk- um. „Þetta er allt að gerast. Ég er núna að keyra um New Orleans og við vorum í New Mexico í síðustu viku að skoða töku- staði. Þetta eru mest handritsfundir og slíkt ennþá en þetta gengur mjög vel og er bara allt að gerast,“ segir Baltasar sem mun síðan snúa sér að æfingum með stór- stjörnunum. En aftur að Trapped, sem nafnið bendir til að muni fjalla um einhverskonar úlfa- kreppu. Og þá væntanlega á Seyðisfirði. „Ólafur Egilsson og Jóhann Ævar Gríms- son eru að vinna í handritinu með Sigur- jóni eftir hugmynd sem við Sigurjón kom- um með. Þeir eru á fullu að skrifa þetta með Seyðisfjörð í huga þannig að það gæti vel farið svo að þetta verði tekið þar.“ Baltasar segir þættina hugsaða í anda The Killing, þeir verði dramatískir og kannski sé bara nóg að segja að þeir verði „arnaldískir“. Þrátt fyrir að vera önnum kafinn og með mörg járn í eldinum ætlar Baltasar að sjálfsögðu að vera með puttana í fram- leiðslunni. „Hugmyndin er að ég muni leikstýra „pilotinum“, fyrsta þættinum, og við fáum svo einnig aðra leikstjóra til að vinna í þessu líka.“ Og erlendar sjónvarpsstöðvar eru þegar farnar að sýna verkefninu áhuga. „Sigur- jón fór til Danmerkur og kynnti þetta fyr- ir norrænum sjónvarpsstöðvum og mér skilst að þær vilji allar vera með. Við erum líka að tala við Þýskaland þannig að þetta lítur mjög vel út. Við höfum líka verið að kynna hugmyndina í Bandaríkjunum og liggur fyrir áhugi á að endurgera þetta.“ toti@frettatiminn.is F jórmenningarnir, Smári, Nonni Bö, Dóri Maack og Hannes, sem kalla sig Pörupiltana, frumsýna á laugar- daginn tímamótaverkið Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett á Litla sviði Borgar- leikhússins. Einfaldlega vegna þess að þá vantaði eitthvað að gera og fannst því til- valið að leggja í biðina endalausu. „Við strákarnir vorum á milli starfa og vorum á skrá hjá Vinnumálastofnun. Við fórum á alls konar svona námskeið, leiklist og tjáningu og svona og fannst við helvíti góðir í þessu,“ segir Dóri Maack. „ Þannig að við bara hugsuðum bara með okkur að það væri bara auðvelt að græða á þessu pening og ákváðum að setja bara upp leik- rit og koma með svona sumarsmell. Við gúggluðum svo bara besta leikrit síðustu aldar og Beðið eftir Godot kom bara strax upp. Þar eru einmitt fjórar persónur þann- ig að ég og Nonni, vinur minn úr Breiðholt- inu, bara hringdum í Hannes og Smára og þeir voru alveg til í þetta.“ Dóri segir að eftir að þeir fengu grænt ljós hjá Vinnumálastofnun hafi þeir ein- faldlega rölt upp í Borgarleikhús þar sem Magnús Geir Þórðarson tók „hrikalega vel í þetta“ og nú er sýningin að verða að veruleika. En vildu ekki allir fá að leika vinina Vla- dimír og Estragon sem bíða saman eftir Godot? „Við fengum sko leikstjóra. Hana Kristínu Jóhannesdóttur. Hún er verð- launaleikstjóri og hefur fengið Grímu og svona. Og hún sagði okkur bara hver ætti að leika hvað og við erum nokkuð sáttir við það.“ Ekki er laust við að Dóri finni fyrir frumsýningarskrekk en hann er þó til í tuskið. „Þetta er helvíti mikill texti sem maður þarf að læra fyrir þetta líka. Maður er svona soldið stressaður núna en ég er eiginlega búinn að læra allan textann minn og búinn að fá búning og svona. Þannig að ég hlakka bara mikið til að sjá hvernig fólki finnst.“ -þþ  Frumsýning teKist á við BecKett Pörupiltar bíða eftir Godot Hálfnuð með næstu bók Korter, ný skáld- saga eftir Sól- veigu Jónsdóttur, hefur fengið góða dóma og frá- bærar viðtökur. Hún er nú mest selda íslenska bókin samkvæmt metsölulista Eymundsson og situr í öðru sæti á heildarlistanum. Sólveig er nú hálfnuð með næstu bók og ósk- andi að lesendur hennar fái meira að sjá frá henni á næstunni. Stella vinsæl Nýjasta bók Stellu Blóm- kvist, Morðið á Bessastöðum, hefur setið í efstu sætum met- sölulista frá því að hún kom út í mars og er upp- lagið nánast upp- selt. Greinilegt er að landinn hefur áhuga á bókum þessa óþekkta höfundi sem hefur náð að leyna sínu rétta nafni í 15 ár sem er athyglisvert á svo litlu landi sem Ísland er. Baltasar Kormákur er kvikmyndagerðarmaður ekki einhamur. Hann er í Bandaríkjunum þessa dagana að undirbúa tökur á spennumyndinni 2 Guns. Hann er einnig að leggja drög að ís- lenskum glæpaþáttum fyrir RÚV sem erlendar sjónvarpsstöðvar hafa þegar sýnt áhuga þótt verkefnið sé enn á handritsstigi. Að baki Pörupiltunum standa leikkonurnar Alexía Björg Jó- hannesdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Halldóra Geirharðs og Sólveig Guðmundsdóttir. Góður dómur í Ástralíu Skipið hans Stefáns Mána kom nýlega út í Ástralíu en mikill stökkpallur er fyrir íslenska rithöf- unda að verk þeirra séu gefin út á ensku. Nú þegar hefur birst dómur um Skipið í áströlsku dagblaði og þar er sagt að Stefán Máni nái að halda óvissu og spennu út bókina. Einnig er sagt að bókin sé níhilísk (full efahyggju) og grípandi nútímaútgáfa af hinni frægu sögu The Ship of Fools. Við höfum verið að kynna hug- myndina í Bandaríkj- unum og þar liggur þegar fyrir áhugi á að endurgera þetta. Baltasar Kormákur við tökur á myndinni Inhale. Hann er nú á fullu við að undirbúa tökur á spennumyndinni 2 Guns en er einnig með hugann við glæpi sem mjög líklega verða framdir undir hans stjórn á Seyðisfirði. 62 dægurmál Helgin 4.-6. maí 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.