Fréttatíminn - 20.04.2012, Síða 27
Mikilvægi
mannauðsstjórnunar
K Y N N I N G
A nna Klara Georgsdóttir er að ljúka fyrsta ári meistaranáms í stjórnun og eflingu mannauðs við Háskólann í Reykjavík. Hún er söngkona með framhaldsgráðu í óperusöng frá
Glasgow. „Það sem dró mig að þessu námi er að ég hef verið for-
stöðumaður og haft mannaforráð sem mér fannst mjög skemmti-
legt, en um leið mjög krefjandi. Meðal þess sem mig langaði að
læra var að hvetja fólk áfram sem ekki fyndi þá hvöt innra með
sér. Ég vann í umhverfi þar sem nær ómögulegt var að umbuna í
launum, auk þess sem erfitt var að keppa um gott starfsfólk.“
Anna Klara segist hafa séð mikla kosti í því að námið væri á
ensku þar sem það stækki heiminn. Áður en hún fór í framhalds-
nám í söng hafði hún stundað nám í sálfræði og segir áhuga á þeirri
grein meðal annars hafa togað sig í þetta nám. Anna Klara segist
sérlega ánægð með veturinn í náminu. „Við erum í raun alveg
ótrúlega dekruð. Við erum lítill hópur og vel haldið utan um okkur.
Í gegnum námið höfum við fengið tækifæri til að vinna með ýmsum
fyrirtækjum og byggjum þar með upp mikilvægt tengslanet. Þar
fyrir utan finnst mér ég hafa fengið mikið frelsi til að velja þau verk-
efni sem mér hafa fundist áhugaverðust.“
Hent í djúpu laugina
Hún segir nemendur hafa ólíkan bakgrunn, sem sé mjög lærdóms-
ríkt. „Við lærum mikið hvert af öðru, ásamt því að hafa aðgang að
frábærum kennurum. Það má segja að við lærum jafnmikið af því
að vinna saman eins og við lærum af náminu sjálfu.“ Auk þess að
kljást við kenningar og fræði stjórnunar er mikil áhersla á að kynna
niðurstöður vinnu nemendanna. „Okkur var hent út í djúpu laugina.
Við vorum nýbyrjuð þegar minn hópur þurfti að kynna niðurstöður
fyrir stjórnendum hjá Marel. Ég ætlaði varla að þora á fætur þann
morgun, en það gekk vel og þau hjá Marel voru ánægð með að fá
ferska nálgun frá okkur.“ Hún bætir því við að síðan þá hafi öllum
farið mikið fram og gaman sé að fylgjast með framförum bæði í
kynningum og valdi á ensku hjá hópnum.
Auk þessa hefur námið opnað Önnu Klöru tækifæri til að dýpka
þekkingu sína, en hún mun í sumar vinna við stóra rannsókn á
mannauðsmálum íslenskra fyrirtækja. „Það verður sumarvinnan
mín að vinna með Arneyju Einarsdóttur, Ástu Bjarnadóttur og
Katrínu Ólafsdóttur að þessari rannsókn sem er mjög spennandi og
mikið tækifæri fyrir mig.“
Ásta Bjarnadóttir segir raunverulegan stjórnanda geta hrint markmiðum skipulagsheildarinnar í framkvæmd með því að
virkja samstarfsmenn sína.
Anna Klara Georgsdóttir. Hún er ánægð með veturinn og segir nemendur í
stjórnun og eflingu mannauðs ótrúlega dekraða og vel utan um þá haldið.
Vildi læra
að hvetja fólk
Í gegnum námið höfum við fengið tækifæri til að vinna
með ýmsum fyrirtækjum og byggjum þar með upp
mikilvægt tengslanet. Þar fyrir utan finnst mér ég hafa
fengið mikið frelsi til að velja þau verkefni sem mér hafa
fundist áhugaverðust.
Á sta Bjarnadóttir er doktor í vinnu- og skipu-lagssálfræði og einn kennara í meistaranámi í stjórnun og eflingu mannauðs við Há-
skólann í Reykjavík. Auk reynslu af rannsóknum og
kennslu í mannauðsstjórnun hefur Ásta starfað sem
mannauðsstjóri, meðal annars hjá þekkingarfyrir-
tækjum eins og Háskólanum í Reykjavík og Íslenskri
erfðagreiningu, þar sem þekking og hegðun starfs-
manna skiptir miklu. „Það er ákveðin hugmynda-
fræði á bak við námið, sem er sú að öll stjórnun sé í
raun mannauðsstjórnun. Samkvæmt því er stjórn-
andi ekki raunverulegur stjórnandi nema hann geti
fengið fólk til að gera ákveðna hluti og hrinda þannig
í framkvæmd markmiðum skipulagsheildarinnar“,
segir Ásta.
„Af þessu leiðir líka að það er vart hægt að tala um
mannauðsstjórnun án þess að tala um stjórn-
un almennt.“ Ásta segir námið byggjast á meiri
heildarhugsun um stefnumótun, viðskipti og rekstur
almennt heldur en hefðbundið nám í mannauðs-
stjórnun. „Það er með ráðum gert að hafa þetta ekki
sérfræðinám í mannauðsstjórnun heldur mennta
fjölhæft fólk sem getur verið mannauðsstjórar fyrir-
tækja, sérfræðingar á mannauðssviði, ráðgjafar eða
almennir stjórnendur með færni í beitingu tækja og
tóla mannauðsstjórnunar.“
Erfiðara að stýra fólki
Á erfiðum tímum freistast sum fyrirtæki til að skera
niður þá þætti sem lúta að starfsmönnum og leggja
minni áherslu á mannauðsmál innan fyrirtækja.
„Vanræki fyrirtæki þennan þátt, þá eru þau að missa
af mikilsverðu tækifæri. Tæki mannauðsstjórnunar
skila fyrirtækjum miklum árangri séu þau notuð rétt,
en það tekur vissulega tíma fyrir þau að hafa áhrif.
Fyrirtæki eru alltaf að ráða fólk og kenna því eitthvað
og það eru alltaf boðskipti og samskipti milli starfs-
manna og stjórnenda. Ef þessir þættir eru illa unnir,
er ekki verið að nýta tæki mannauðsstjórnunar vel.
Niðurstaðan af því er að mannauðurinn nýtist ekki
sem skyldi.“ Ásta segir að um þetta gildi það sama
og ef fyrirtæki skera niður í markaðsdeild, þá komi
það niður á markaðsmálum sem leiði á endanum til
minni sölu. Sama gildi um tölvukerfi, ef þau virki
ekki sem skyldi þá hökti fyrirtækið. „Mannauðs-
stjórnun er að hluta til stoðþjónusta en þarf um leið
að vera partur af áherslum hvers einasta stjórnanda.“
Stjórnun verður að vera í lagi
Ásta segir bakgrunn stjórnenda hafi oft verið mjög
tæknilegan hingað til og gjarna horft til þess að
stjórnendur hafi lögfræðiþekkingu, verkfræðiþekk-
ingu og rekstrarþekkingu. „Ég held að til framtíðar
verði miklu meiri möguleiki til að aðgreina sig með
því að velja stjórnendur sem eru góðir í að stýra fólki.
Sá þáttur stjórnunar hefur oft reynst erfiðari en að
átta sig á lagaramma, verkferlum og tæknilegum
lausnum. Ef stjórnun á fólki er ekki í lagi, þá virka
aðrir þættir illa eða ekki.“
Ásta segir skilning á boðskiptum innan fyrirtækja
afar mikilvægan. „Einn lykilþátta mannauðsstjórnun-
ar eru boðskipti upp og niður skipuritið. Það samtal
sem á sér stað frá yfirstjórn til millistjórnenda og
síðan til starfsmanna og svo upp aftur. Það er mikil-
vægt að hugmyndir og sýn starfsmanna sem glíma
við verkefni fyrirtækisins á gólfinu berist upp til
stjórnendanna. Ákveðin þjálfun og kunnátta er nauð-
synleg til að byggja upp kerfi fyrir boðskipti sem
virka vel, svo sem varðandi skipulag og form funda
sem oft er í ólestri í fyrirtækjum. Þetta er lykilþáttur
í stjórnun og hefur áhrif á fyrirtækjamenninguna og
hvernig fólk nýtist í starfi.“
Yfirstjórn sem veit hvert hún stefnir
Ásta segir heilbrigði fyrirtækja felast í því að þau
séu með yfirstjórn sem veit nákvæmlega hvert hún
stefnir, er samstíga og leiðir aðra áfram að þeim
markmiðum. „Yfirstjórnin þarf að miðla stefnunni
skýrt til annarra í fyrirtækinu. Fyrirtæki geta verið
afvegaleidd á ýmsan hátt. Ef það mistekst að miðla
stefnunni kemst fyrirtækið ekki þangað sem það ætl-
ar sér. Hitt getur svo verið að stjórnendur séu góðir í
því að miðla stefnunni og fyrirtækið sé samstillt í því
að fara þá leið sem hefur verið mörkuð, en í ljós komi
síðar að stefnan hafi verið röng. Þannig má segja að
til dæmis bónuskerfi bankanna fyrir hrun hafi virkað
mjög hvetjandi á starfsmenn en þau leiddu starfs-
fólk í ranga átt. Bónuskerfin sem slík virkuðu vel og
skiluðu því sem þau áttu að skila, en stefnan að ofan
var röng.“
háskóli 27 Helgin 20.-22. apríl 2012