Fréttatíminn - 20.04.2012, Side 32
Hraðlestin út af sporinu
Hraðlest Þóru Arnórs-
dóttur hefur brunað áfram
á fullu stími eftir að stefnan var tekin á Bessastaði.
Kosningabaráttan hefur gengið smurt þar til fram-
bjóðandinn mætti á Beina línu hjá DV og svaraði
spurningum lesenda og virðist hafa rekið í það
minnsta eina tá í bremsuna.
Gunnar Grímsson
Það minnkuðu töluvert líkurnar á að ég kjósi Þóru
eftir að hafa skoðað pólítísk ekki-svör hennar í
Beinni línu á DV. Því miður.
Heiða B Heiðars
Ég var farin að hrífast pínu með stuðningsmönnum
Þóru og orðin laumu-fan. En ég er alveg læknuð
af því. Ískalt, ópersónulegt og skautað fimlega
framhjá því að svara spurningum.
Nei takk
Bjarki Hilmarsson
Þessar spurningar til Þóru á beinu línu DV eru
leiðinlegar, langdregnar og óspennandi. Svörin eru
verri og hún er allt of lengi að koma með þau!
Björn Birgisson
Þóra Arnórsdóttir á Beinni línu DV.is í kvöld, spurð
um hvort hún væri í Samfylkingunni: “Ég var skráð
í Alþýðuflokkinn þegar ég var 22 ára – hann var
lagður niður og rann inn í Samfylkinguna. Ég hef
aldrei starfað fyrir þann flokk og er ekki skráð í
neinn stjórnmálaflokk.” Þá höfum við það á hreinu.
Baldur Hermannsson
Óskaplegt þunnildi er þetta og ekki er nú hrepp-
stjórabragur á tilsvörunum. Sauðmeinlaus
stelpukindin sneiðir vandlega hjá öllum átaks-
punktum, öll eitthvað svo pen og strokin. Það
verður ekkert gagn að henni þegar í harðbakkann
slær. Hana vantar lífsreynslu og skriðþunga, hana
vantar eiginlega allt sem höfðingja má prýða, Hún
ætti bara að halda sig við fréttamennskuna og
barnauppeldið.
Magnús Þór
Hafsteinsson
Það þarf enginn að segja
mér að nokkur geti talað máli þjóðarinnar á
alþjóða vettvangi eins og Ólafur Ragnar og um leið
fengið alþjóða fjölmiðla til að hlusta. Hann hefur þá
þyngd sem þarf. Þetta kemur mjög vel fram í þessu
viðtali þar sem hann er heldur ekki hræddur við
að viðurkenna sín mistök. Við þurfum á honum að
halda núna sem aldrei fyrr.
Málið er dautt
Í vikunni vakti athygli að plastmál sem Jóhanna
Sigurðardóttir drakk úr í hljóðveri Morgun-
vaktar Rásar 2 seldist á uppboði á 105.000 krónur.
Fimmaurabrandarar náðu í kjölfarið flugi og þessi
um eina málið sem Jóhanna hefur klárað gæti lifað
nokkrar vikur.
Sveinn Andri Sveinsson
Þetta er víst eina málið sem Jóhanna hefur klárað :)
Yngvi Eysteins
Jóhanna Sigurðardóttir drakk kaffi úr máli um
daginn í útvarpsviðtali. Í kjölfarið fór uppboð í gang
á því máli og seldist það á 105.000 kr. Það er fyrsta
málið sem Jóhanna Sigurðardóttir hefur klárað á
þessu kjörtímabili. Dugleg stelpan.
Bragi Kristjonsson
Mikið lifandis ósköp er listaverkasmekkur safna-
manna orðinn háþróaður, þegar varalitskámugt
plastglas með varaförum eftir okkar ástsæla
forsætisráðherra er orðið rándýrt listaverk. Gæti
þetta ekki orðið nýr tekjustofn fyrir vesælan ríkis-
sjóðinn til að greiða fyrir sjávarkaplana til útlanda.
Væri ekki ráð að fá hár úr höfði okkar yfirmáta
dugmikla iðnaðar, sjávarútvegs, landbúnaðar,
efnahags og viðskiptamálaráðherra til að selja.
Það mætti raða þeim upp á listræna vísu og afsetja
með miklum hagnaði. Svo mætti blanda saman við
þetta hárum af höfði ráðherrans með réttlætis- og
innanríkiskenndina. Hvílíkt listaverk.
51
milljarður var upphæðin sem
Kevin Systrom, stofnandi
Instagram, fékk í sinn hlut
við sölu fyrirtækisins til
Facebook.
Góð vika
fyrir Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur,
tónlistarmann
SlæM vika
fyrir Herdísi Þorgeirsdóttur,
forsetaframbjóðanda
15
földun er aukningin á textuðu
íslensku efni á RÚV á undan-
förnum tíu árum samkvæmt
svari menntamálaráðherra
við fyrirspurn Margrétar
Tryggvadóttur, þingmanns
Hreyfingarinnar.
Lítið fylgi í könnun
Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi átti slæma viku ef
marka má niðurstöður úr fyrstu skoðanakönnun sem gerð var á
fylgi forsetaframbjóðenda. Í henni mælist Herdís aðeins með 2,9
prósenta fylgi. Tveir frambjóðendur, Ólafur Ragnar Grímsson og
Þóra Arnórsdóttir, eru samkvæmt henni þau einu sem til greina
koma sem forseti í huga þjóðarinnar. Niðurstöður könnunarinnar
benda jafnframt til þess að sú lýðræðis-
tilraun sem Herdís sagði að fram-
boð sitt væri, hefði mistekist.
Á blaðamannafundi þar sem
hún tilkynnti um forseta-
framboð sitt sagði Herdís
að framboð hennar væri
ákveðin lýðræðistilraun
til að kanna hvort fólkið
í landinu væri reiðubúið
að styðja framboð
gegn sitjandi forseta
og gegn fjármála-
öflum. Samkvæmt
því virðist svo ekki
vera.
2,7
vikan í töluM
HeituStu kolin á
milljarðar er upphæðin sem Björgólfur Guðmundsson fékk
lánaða frá Glitni án nokkurra veða, segir í stefnu slitastjórnar
Glitnis á hendur endurskoðunarfyrirtækinu PwC.
Slær í gegn í Bandaríkjunum
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar
Of Monsters and Men, hefur átt góða viku því plata hljóm-
sveitarinnar My Head Is an Animal fór beint í sjötta sæti
bandaríska Billboard- listans og er það besti árangur sem ís-
lensk hljómsveit hefur náð á listanum. Platan hefur selst í yfir
55 þúsund eintökum og er hljómsveitin á leið í tónleikaferða-
lag um Bandaríkin í næsta mánuði. Hljómsveitin sigraði í
Músíktilraunum árið 2010 en hafði þá einungis starfað í tvær
vikur og hefur því slegið í gegn á mettíma. Nanna Bryndís er
23 ára og alin upp í Garði. Hún hafnaði
í þriðja sæti í söngkeppni
framhaldsskólanna árið 2007
þegar hún kom fram fyrir
skóla sinn, Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Nanna Bryndís hefur
verið viðloðandi tónlistar-
bransann býsna lengi
þrátt fyrir ungan aldur
því árið 2004 flutti hljómsveit
hennar, Pointless, lag á árshátíð
Gerðaskóla í Garði en Nanna var
þá í tíunda bekk.
Atvinnuleysi 7,5 prósent
Atvinnuleysi var 7,5 prósent í mars, sam-
kvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands. 13.300 voru án vinnu og í atvinnuleit.
Atvinnuleysi stendur nánast í stað frá mars
2011 en þá mældust atvinnulausir 13.400
eða 7,6 prósent vinnuaflsins.
Teknir með um tíu kíló af
amfetamíni
Fíkniefnafundur á Keflavíkurflugvelli á
sunnudag er með stærri fíkniefnamálum
sem tollverðir hafa komist í kast við. Fjórir
Pólverjar eru í gæsluvarðhaldi, grunaðir
um að hafa reynt að smygla hingað um 10
kílóum af amfetamíni.
Húsleit hjá Landsbankanum í
Lúxemborg
Þrjátíu manna hópur á vegum sérstaks
saksóknara gerði á þriðjudag húsleit hjá
Landsbankanum í Lúxemborg. Níu mál eru
til rannsóknar sem snúa að markaðsmis-
notkun og umboðssvikum.
Huang Nubo gerir sér vonir um
samninga
Fjármálatímaritið Forbes hefur eftir
242.724
jarðskjálftar hafa mælst
á Íslandi frá árinu 1996
samkvæmt úttekt frá
Datamarket.
1095
dagar liðu milli morðlausra
daga í El Salvador. Laugar-
dagurinn síðasti var fyrsti
dagurinn í þrjú ár þar sem
enginn var drepinn í þessu
Mið-Ameríkuríki.
Hjónin Ari Trausti
Guðmundsson jarð-
fræðingur, og María
G. Baldvinsdóttir, til-
kynntu í gær á heim-
ili sínu í Grafarvogi
að Ari Trausti hygðist
bjóða sig fram til
forseta Íslands. Hann
er sjöundi einstak-
lingurinn sem gefur
kost á sér í embættið
en kosningarnar fara
fram 30. júní. Ljós-
mynd/Hari
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Borðapantanir í síma 517-4300
Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
Bláskel & Hvítvín 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
G
e
y
s
ir
Bi
stro & Bar
FERSKT
&
FREiSTa
ndi
Fagmennska
í Fy
ri
rr
ú
m
i
SpennAndi
sjávarrétta
tilBoð
kínverska fjárfestinum Huang Nubo að hann
geri sér vonir um að ljúka samningi um
væntanlegar 200 milljóna dollara fjárfest-
ingar hér á landi á næstu tveimur mánuðum.
Grímsstaðir verði leigðir til langs tíma.
Árni Páll gagnrýnir uppstokkun
ráðuneyta
Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahagsráð-
herra, styður ekki að efnahags- og viðskipta-
ráðuneytið verði lagt niður. Hann varar við
því að rótað verði svo mikið í verkaskiptingu
ráðuneytanna þegar jafn langt er liðið á
kjörtímabilið og nú er.
Framtíð kúttersins rædd
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
átti á þriðjudaginn fund með fulltrúum
Akranesbæjar þar sem rætt var hvort og þá
hvernig mætti bjarga kútternum Sigurfara
frá eyðileggingu.
Landsdómur í beinni útsendingu
Landsdómur hefur orðið við beiðni um
að sent verði beint út frá dómsuppsögu í
málinu gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra. Dómur verður kveðinn upp
klukkan tvö næstkomandi mánudag.
32 fréttir vikunnar Helgin 20.-22. apríl 2012