Fréttatíminn - 20.04.2012, Side 33
Garðar
Gefið út í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands Helgin 20.-22. apríl 2012
Velkomin í Garðyrkjufélag Íslands!
Skoðaðu kosti þess
að vera félagi Öflug heimasíða www.gardurinn.is
Frakkastíg 9 - 101 Reykjavík - Sími 552 7721 og 896 9922 - gardurinn@gardurinn.is
V
orið er uppáhaldstími garð-
yrkjufólks. Smám saman lifn-
ar gróðurinn við, skordýrin
komast á kreik eftir langan
og kaldan vetur og það
hlýnar. Á hinn bóginn má segja að gott sé
að hafa varann á sér, þrátt fyrir óstjórnlega
löngun til að koma garðinum í form eftir
veturinn. Þrátt fyrir hlýnun og hægfara já-
kvæðar breytingar á veðurfari undanfarinn
áratug er enn sú hætta fyrir hendi að eina
nóttina frysti snögglega og viðkvæmur
nýgræðingurinn verði Kuldabola að bráð.
Hér eru því nokkur góð ráð sem vert er að
hafa í huga:
Ekki hreinsa burtu sölnað lauf og
gróðurleifar sem hafa legið yfir gróður-
beðunum yfir veturinn fyrr en mesta
næturfrosthættan er liðin hjá, einkum
og sér í lagi á viðkvæmum plöntum.
Ef veðurspáin er slæm og lítur út fyrir
næturfrost er gott að eiga nokkra metra
af akrýldúk sem má breiða yfir þann
gróður sem er kominn einna lengst af
stað. Akrýldúkurinn hlífir nýjum og
viðkvæmum sprotum við mesta kuld-
anum og getur skilið á milli feigra og
ófeigra blómbruma. Nauðsynlegt er að
fergja jaðar akrýldúksins með einhverj-
um hætti svo hann haldist á plöntunum.
Ef garðeigandinn missir af veðurspánni
og vaknar upp við vondan draum á frost-
köldum morgni er ekki ástæða til að
örvænta strax, reyndir garðyrkjumenn
eiga að minnsta kosti eitt ráð í erminni.
Þá er best að tengja garðúðarann við
kaldavatnskranann, skrúfa hraustlega
frá og láta úðann baða plönturnar allt
þar til frostið líður hjá. Þetta kann að
hljóma dálítið undarlega en vatnið gerir
það að verkum að plönturnar þiðna
hægt og minni hætta er á að frumur í
blöðum og ungum stönglum springi og
eyðileggist.
Vorblómstrandi haustlaukar eins og
krókusar, fannastjarna og vetrargosi eru í
miklum blóma um þessar mundir. Í huga
margra er þetta hinn eini sanni vorboði.
Þegar laukarnir hafa lokið blómgun sinni
er lífsferli þeirra hins vegar ekki lokið
strax. Blöðin halda áfram að ljóstillífa og
safna forða í laukana en forðann nota lauk-
arnir til að lifa af veturinn og koma upp
blómum næsta ár. Það er því mikilvægt
að klippa ekki blöð laukanna fyrr en þau
eru farin að sölna í toppinn en um það leyti
hafa þau lokið hlutverki sínu og í lagi að
klippa þau niður. Þetta gildir í raun um
alla haustlauka, svo sem túlípana, páska-
liljur og fleiri tegundir.
Að lokum er rétt að árétta að vorverkin
eiga að vera skemmtileg og því er um að
gera að fylla i-Podinn af uppáhalds garð-
yrkjulögunum og syngja hátt með á meðan
garðurinn er undirbúinn undir sumar-
ið.
Góða skemmtun!
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur
Nokkur Góð ráð þeGar kemur að VorVerkuNum Í GarðiNum
Vorverkin eiga að vera skemmtileg
Það er um að gera að syngja við garðverkin, ekki síst á þessum árstíma þegar áhugafólk um garðrækt getur loks notið þess að uppáhaldsárstími þess er í vændum.
Hvítir vorkrókusar í apríl 2012. Bleik blóm á töfratré í apríl 2012.