Fréttatíminn - 20.04.2012, Qupperneq 38
6 garðar Helgin 20.-22. apríl 2012
Þ
að hefur verið mikið að gera hjá Garðyrkju-
félaginu að undanförnu. Klúbbar félagsins
eru mjög virkir og landshlutadeildir ekki
síður. Frumkvæði félagsins um að beita
sér fyrir tilraunum um ræktun ávaxta-
trjáa og berjarunna og innflutningur ungplantna á
góðu verði hefur lagst vel í félagsmenn og laðað að
nýja félagsmenn í stórum stíl. Áhyggjur sumra garð-
plöntuframleiðenda að þetta drægi viðskipti frá þeim
hafa reynst ástæðlausar. Aldrei hefur verið annað eins
á boðstólum af ávaxtatrjám og berjarunnum eins og
eftir að félagið hóf kynningarstarf sitt í samvinnu við
Landbúnaðarháskólann. Mikið var að gera í um síðustu
helgi í garðplöntustöðvum sem höfðu opið enda mikið
framboð.
Þeir Carl J. Gränz, formaður ávaxtaklúbbsins, og
Einar S. Einarsson meðstjórnandi kynntu ávaxtaklúbb
Garðyrkjufélags Íslands og Garðyrkjufélagið á Vor-
gleði í Garðheimum síðustu helgi og buðu nýja félaga
velkomna. Margir þáðu góð ráð varðandi ræktun og
umönnun ávaxtatrjáa. Carl J. Gränz mun kynna síðan
kynna ávaxtaklúbb Garðyrkjufélags Íslands og Garð-
yrkjufélagið og bjóða nýja félaga velkomna á opnu húsi
í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi á sumar-
daginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl. Ný sending
af ávaxtatrjám sem félagar pöntuðu í vetur frá Garð-
plöntustöð Leif Blomqvist í Finnlandi verður afhent í
byrjun maí.
Félagið kynnti í vetur 15 ný yrki af bóndarósum
frá Kína þar af 6 yrki af trjábóndarósum og bauð að
útvega. Pöntuðu félagar töluverðan fjölda, ekki síst
af harðgerðum trjábóndarósum. Verður spennandi að
sjá hvernig þær reynast. Frægust trjábóndarósa hér
á landi er líkleg sú sem staðið hefur um árabil fyrir
framan hús félagsins við Frakkastíg.
Carl J. Gränz, formaður ávaxtaklúbbsins, mun kynna
ávaxtaklúbb Garðyrkjufélags Íslands og Garðyrkju-
félagið og bjóða nýja félaga velkomna á opnu húsi í
Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi á sumardaginn
fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl
Næstkomandi fimmtudag 26. apríl verður aðalfundur
félagsins haldinn í Safnaðarheimili Neskirkju og hefst
kl 20. Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf munu
tveir félagar halda erindi um upplifun sína og vænt-
ingar til félagsins. Arnar Tómasson hárgreiðslumeist-
ari hefur verið afar áhugasamur um matjurtarækt og
hugmyndaríkur um aðferðir til að auðvelda vinnu við
forræktun. Kristín Kjartansdóttir, formaður Akureyrar
og Eyjafjarðardeildar félagsins, verður gestur félagsins
og fjallar um væntingar til félagsins en stefnt er að því
að efla þjónustu félagsins við landsbyggðina. Sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur veitt félaginu
styrk til að efla þjónustuhlutverk félagsins og skipu-
lagsvinnu við verkefni sem félagið hefur tekið sér fyrir
hendur að undanförnu. Það starf er nú í mótun. Félagið
er í mikilli sókn um þessar mundir og hefur félögum
fjölgað ört. Þeir eru nú nærri 2500.
Nánari upplýsingar um aðalfundinn og aðra viðburði
á vegum félagsins er að finna á heimasíðu félagsins á
www.gardurinn.is.
GarðyrkjufélaGið
Garðyrkjufélagið í sókn
Frá afhendingu ávaxtatrjáa til félaga vorið 2011.
Bóndarós i bloma.
– fyrst og fre
mst
ódýr!
sumar
gleðilegt