Fréttatíminn - 20.04.2012, Qupperneq 68
Gönguferðin þín er á utivist.is
Skoðaðu ferðir
á utivist.is
Kastalar, rómantík og fjallafegurð eru lýsandi í þessari sumarferð til Tékklands og Austurríkis.
Eftir flug til München er haldið til Ceský Krumlov í Tékklandi þar sem farið verður í
skoðunarferð um bæinn og höllin skoðuð. Eftir það verður haldið til gullborgarinnar Prag en
á leiðinni þangað verður hin glæsilega Hluboká höll skoðuð og siglt á Zvikova vatni. Förum
jafnframt í skoðunarferð um Prag og heimsækjum Hradcany-kastala. Frá Prag höldum við
til Trebíc en þar er áhugaverðasta gyðingahverfi landsins sem skráð er á heimsminjaskrá
UNESCO. Þaðan er haldið áfram til smábæjarins Luhacovice í Morova þar sem stærstu og
elstu heilsulindir Morava eru. Frá Luhacovice verður farið aftur í aldir til bæjarins Modrá þar
sem er mjög áhugavert byggðar- og fornminjasafn. Skoðum fallega miðaldabæi, förum í
vínsmökkun og sláum upp grillveislu. Kveðjum Tékkland og förum til Kitzbühel í Tíról, eins
þekktasta vetraríþróttabæjar Austurríkis. Á leiðinni þangað verður stoppað í Dürnstein í
Wachau vínhéraðinu, sem er með fallegustu landsvæðum við Dóná árfarveginn í Austurríki.
Mikil upplifun er að taka kláf upp á Kitzbüheler Horn sem er í 1998 m hæð.
Fararstjóri: Pavel Manásek
Verð: 259.400 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu, hálft fæði - þar
af sérstök grillveisla á hótelinu í Luhacovice og íslensk fararstjórn.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
SUMAR 10
4. - 16. ágúst
Kastalar & kling jandi
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
kristall
Þ ótt þær séu pínu brotnar eru þær duglegar,“ lýsir
Sólveig Jónsdóttir, blaða-
maður á Nýju lífi og nú
rithöfundur, söguhetjum
sínum fjórum í fyrstu
skáldsögu sinni: Korter.
Bókin er grípandi,
reyndar svo að erfitt er
að leggja hana frá sér.
Þetta er tilfinning sem
blaðamaður hefur ekki
upplifað síðan hann las Viltu vinna
milljarð. Gamlinginn er grafinn
milli rúmstokksins og dýnunnar –
hálflesinn. Ný bók metsöluhöfund-
arins Jodi Picoult, sem samdi Hver
á að gæta systur minnar og kallast
Sing You Home, er í bókabunk-
anum í gluggakistunni. Hún hefur
ekki verið opnuð eftir allt of marga
bömmerkafla einnar aðalsöguhetj-
unnar. Strand í hinum ýmsu hand-
leiðslubókum, sem einnig má finna í
bunkanum. En þessi: Hvert korterið
flýgur hjá og engin leið að
hætta. Svona líka hnyttin
og fyndin. Svona Bridget
Jones án minnimáttar-
kenndarinnar.
„Já, þú meinar,“ segir
Sólveig og svarar: „Enda
finnst mér að íslenskar
konur séu almennt frekar
miklir töffarar.“ Og það
er ekki að spyrja að því.
Stelpurnar hennar Sól-
veigar eru töffarar, sama
hvort þær hitta maka hjásvæfunnar
í stigatröppunum eftir misheppnað
næturgaman, skella headsettinu á
höfuðið til að þurfa ekki að hlusta á
ástarjátningar háskólaprófessorsins
inn um bréfalúguna, smella sér á
Sálarball korteri eftir sambandsslit
eða gefa vinnuveitandanum pung-
spark á árshátíð kaffihússins Kort-
ers. Þetta eru borgarskvísur. Það er
Sólveig hins vegar ekki.
„Ég er úr Galtarholti í Hvalfjarð-
arsveit. Þar búa foreldrar mínir
ennþá og eru með kýr,“ segir hún.
„Ég flutti til Reykjavíkur þegar ég
fór í háskóla, bjó í Dublin í hálft ár
og flutti þaðan til Edinborgar, þar
sem ég fór í frekara nám. Þar stofn-
aði ég í kjölfarið fyrirtæki, veislu-
þjónustu, og skrifaði bókina með
hléum,“ segir hún.
„Ég var að þessu svona „on and
off“ í þrjú ár. Reyndar meira off,“
segir hún og hlær. „En ég kláraði
að skrifa bókina og sendi póst á
Forlagið. Nú er hún í búðum og ég
himinlifandi. “
Sólveig lætur ekki staðar numið
hér og er byrjuð á næstu bók. Blaða-
maðurinn grátbiður um framhald
en Sólveig hefur sett stefnuna ann-
að. „Ég er hálfnuð með bók sem er
um allt annað. Ég gef ekkert uppi
um innihaldið. Ég vil vanda mig og
þessi gæti tekið ansi langan tíma,“
segir hún og bíður spennt eftir við-
tökunum.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
BókAútGáfA SólveiG JónSdóttir með SínA fyrStu Bók
„Íslenskar konur
eru töffarar“
Sólveig Jónsdóttir, 29 ára blaðamaður á Nýju lífi, hefur í samstarfi við Forlagið gefið út kiljuna
Korter sem er um fjórar reykvískar hörkuskvísur; ástarsorgir, sambönd og sigra þeirra – feilspor,
missi og ónákvæm markmið. Bókin slær Bridget Jones út.
Sólveig Jónsdóttir er himinlifandi með útgáfu fyrstu bókar sinnar Korter. Hún samdi hana, sendi póst á útgáfufyrirtækið
Forlagið og bókin er nú komin í búðir. Mynd/Hari
60 dægurmál Helgin 20.-22. apríl 2012