Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 12

Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 12
Fy rir óv æn tu au gn ab lik in Verð á nokkrum algengum vörutegundum í maí árið 2008 og í maí á þessu ári er nokkurn veginn það sama, miðað við verðlag ársins 2012. Fleiri vörutegundir í töfl- unni hér að neðan hafa lækkað en hækkað en þær sem hafa hækkað. Samanlagður kostnaður allra vörutegundanna stendur hins vegar í stað og hefur því matarkarfan ekki hækkað frá því fyrir hrun. út úr moldarkof- unum á 20. öld. Umbreyting samfélagsins var svo ör. Þetta hefur líka hugsanlega eitt- hvað með það að gera hve við erum fámenn, við erum svolítið eins og litli krakkinn sem er að reyna að fá að vera með stóru krökkunum og er alltaf að reyna að sanna sig. Úr verður einhvers konar sýndarmennska. Við erum of upptekin af ímynd okkar frekar en að vinna meira í grunninum að henni,“ segir Eyja. Guðni segir erfitt að alhæfa um heila þjóð hvernig hún líti á sig. „En eigi maður að draga einhverjar grófar línur þá hefur sú hugmynd verið í gangi að hrunið hafi opnað augu einhverra fyrir því hvað sé mikilvægt í lífinu og best sé að sýna ráðdeild frekar en að eyða um efni fram. Ég er hins vegar ekki viss um hversu djúpt þetta ristir,“ segir hann. „Auðvitað koma einhverjar tískubylgjur að prjóna vettlinga frekar en að kaupa þá dýrum dómum eða hafa plokkfisk í matinn frekar en sushi en ég held að þetta sé einfaldlega tískubylgja og hjarðeðli frekar en eitthvað sem ristir mjög djúpt í þjóðarsálina,“ segir Guðni. Eyja tekur undir þetta. „Það voru allir að prjóna og taka slátur fyrst eftir hrun en það er á undanhaldi. Ég er ekki viss um að við séum að hafa í heiðri þjóðlegu gildin sem maður tengir við ömmu sína og afa eins og sumir halda fram, heiðarleika og hógværð. Það hefur til dæmis gerst ítrekað að stjórnmálamenn hafa orð- ið uppvísir að því að segja ósatt og það er bara samþykkt,“ segir hún. „Vandamálið er að ekki er búið að leysa úr málum ennþá. Mjög fáir hafa verið dregnir til ábyrgðar. Ég held að það sé ýmislegt samþykkt ennþá sem er í raun kannski bara siðlaust,“ segir hún. „Og það að leysa úr málum snýst heldur ekkert bara um að draga einstaklinga til ábyrgðar. Vissulega þarf að gera það en það má ekki líta svo á að lausnin sé þar með komin. Það þarf líka að finna leiðir til að endurskoða verð- mætamatið svo að við hlúum að því sem í raun skiptir máli og hættum að vera svona upptekin af ímyndinni. Kannski er bara allt í lagi að horfast í augu við að við séum smáþjóð og að við séum ekkert flottari eða frábær- ari en hver önnur slík,“ segir Eyja. Guðni Th. Jó- hannesson sagn- fræðingur: „Hér varð bankahrun, gjaldeyrishrun, hlutabréfahrun, eignahrun og jafn- vel einhvers konar siðferðishrun og sjálfsmyndar- hrun.“ Ljósmyndir/Hari Eyja Margrét Brynjarsdóttir heimspekingur: „Margir áttu fyrst í stað von á mjög mikilli breytingu á samfélaginu, bjuggust við að lífið yrði allt öðruvísi en áður.“ Verð á nokkrum vörutegundum og þjónustu 2008 og 2012 2008 2012 Hækkun/lækkun í prósentum frá 2008 Hveiti, kg 145 137 -6 Haframjöl, kg 535 468 -13 Hrísgrjón, kg 341 419 23 Rúgbrauð, seytt, kg 902 712 -21 Heilhveitibrauð, kg 442 411 -7 Cheerios hringir, kg 915 1.206 32 Dilkakjöt, læri, kg 1.577 1.337 -15 Heill frosinn kjúklingur, kg 711 735 3 Nautakjöt, hakkað, kg 1.521 1.399 -8 Lifrarkæfa, kg 1.613 1.531 -5 Skinka, kg 2.977 2.914 -2 Ýsuflök fersk, kg 1.431 1.464 2 Nýmjólk, l 118 116 -1 Jógúrt, með ávöxtum, kg 497 483 -3 Rjómi, l 987 869 -12 Mjólkurostur, brauðostur 26%, kg 1.431 1.334 -7 Egg, kg 621 603 -3 Smjör, kg 590 630 7 Kartöflur, kg 133 195 46 Gulrætur, kg 246 312 27 Tómatar, kg 390 395 1 Epli, kg 242 241 -0 Strásykur, kg 184 238 29 Kaffi, innlent, kg 1.322 1.847 40 Rjómasúkkulaði, 100 g 271 169 -38 Samtals 20.143 20.165 Matarkarfan ekkert hækkað Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is 2008 3% 2009 7,2% 2010 7,6% 2011 7,1% Atvinnuleysi Íslendingar sem fluttu af landi brott* 2008 477 2009 2.466 2010 1.703 2011 1.311 Samtals 2008-2011 5.957 *Brottfluttir umfram aðflutta sbr. Hagstofa Íslands 12 úttekt Helgin 5.-7. október 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.