Fréttatíminn - 05.10.2012, Qupperneq 12
Fy
rir
óv
æn
tu
au
gn
ab
lik
in
Verð á nokkrum algengum vörutegundum í maí árið 2008 og í maí á þessu ári er
nokkurn veginn það sama, miðað við verðlag ársins 2012. Fleiri vörutegundir í töfl-
unni hér að neðan hafa lækkað en hækkað en þær sem hafa hækkað. Samanlagður
kostnaður allra vörutegundanna stendur hins vegar í stað og hefur því matarkarfan
ekki hækkað frá því fyrir hrun.
út úr
moldarkof-
unum á 20.
öld. Umbreyting
samfélagsins var
svo ör. Þetta hefur
líka hugsanlega eitt-
hvað með það að gera hve
við erum fámenn, við erum
svolítið eins og litli krakkinn
sem er að reyna að fá að vera með
stóru krökkunum og er alltaf að reyna
að sanna sig. Úr verður einhvers konar
sýndarmennska. Við erum of upptekin af
ímynd okkar frekar en að vinna meira í
grunninum að henni,“ segir Eyja.
Guðni segir erfitt að alhæfa um heila
þjóð hvernig hún líti á sig. „En eigi maður
að draga einhverjar grófar línur þá hefur
sú hugmynd verið í gangi að hrunið hafi
opnað augu einhverra fyrir því hvað
sé mikilvægt í lífinu og best sé að sýna
ráðdeild frekar en að eyða um efni fram.
Ég er hins vegar ekki viss um hversu
djúpt þetta ristir,“ segir hann. „Auðvitað
koma einhverjar tískubylgjur að prjóna
vettlinga frekar en að kaupa þá
dýrum dómum eða hafa plokkfisk í
matinn frekar en sushi en ég held að
þetta sé einfaldlega tískubylgja og
hjarðeðli frekar
en eitthvað sem
ristir mjög djúpt
í þjóðarsálina,“
segir Guðni.
Eyja tekur
undir þetta. „Það
voru allir að
prjóna og taka
slátur fyrst eftir
hrun en það er á
undanhaldi. Ég
er ekki viss um að við séum að hafa
í heiðri þjóðlegu gildin sem maður
tengir við ömmu sína og afa eins og
sumir halda fram, heiðarleika og
hógværð. Það hefur til dæmis gerst
ítrekað að stjórnmálamenn hafa orð-
ið uppvísir að því að segja ósatt og
það er bara samþykkt,“ segir hún.
„Vandamálið er að ekki er búið
að leysa úr málum ennþá. Mjög fáir
hafa verið dregnir til ábyrgðar. Ég
held að það sé ýmislegt samþykkt
ennþá sem er í raun kannski bara
siðlaust,“ segir
hún. „Og það að
leysa úr málum
snýst heldur
ekkert bara
um að draga
einstaklinga
til ábyrgðar.
Vissulega þarf
að gera það en
það má ekki líta
svo á að lausnin
sé þar með komin. Það þarf líka að
finna leiðir til að endurskoða verð-
mætamatið svo að við hlúum að því
sem í raun skiptir máli og hættum
að vera svona upptekin af ímyndinni.
Kannski er bara allt í lagi að horfast
í augu við að við séum smáþjóð og að
við séum ekkert flottari eða frábær-
ari en hver önnur slík,“ segir Eyja.
Guðni Th. Jó-
hannesson sagn-
fræðingur: „Hér
varð bankahrun,
gjaldeyrishrun,
hlutabréfahrun,
eignahrun og jafn-
vel einhvers konar
siðferðishrun og
sjálfsmyndar-
hrun.“
Ljósmyndir/Hari
Eyja Margrét
Brynjarsdóttir
heimspekingur:
„Margir áttu fyrst í
stað von á mjög mikilli
breytingu á samfélaginu,
bjuggust við að lífið yrði allt
öðruvísi en áður.“
Verð á nokkrum vörutegundum og þjónustu 2008 og 2012
2008 2012 Hækkun/lækkun
í prósentum frá 2008
Hveiti, kg 145 137 -6
Haframjöl, kg 535 468 -13
Hrísgrjón, kg 341 419 23
Rúgbrauð, seytt, kg 902 712 -21
Heilhveitibrauð, kg 442 411 -7
Cheerios hringir, kg 915 1.206 32
Dilkakjöt, læri, kg 1.577 1.337 -15
Heill frosinn kjúklingur, kg 711 735 3
Nautakjöt, hakkað, kg 1.521 1.399 -8
Lifrarkæfa, kg 1.613 1.531 -5
Skinka, kg 2.977 2.914 -2
Ýsuflök fersk, kg 1.431 1.464 2
Nýmjólk, l 118 116 -1
Jógúrt, með ávöxtum, kg 497 483 -3
Rjómi, l 987 869 -12
Mjólkurostur, brauðostur 26%, kg 1.431 1.334 -7
Egg, kg 621 603 -3
Smjör, kg 590 630 7
Kartöflur, kg 133 195 46
Gulrætur, kg 246 312 27
Tómatar, kg 390 395 1
Epli, kg 242 241 -0
Strásykur, kg 184 238 29
Kaffi, innlent, kg 1.322 1.847 40
Rjómasúkkulaði, 100 g 271 169 -38
Samtals 20.143 20.165
Matarkarfan ekkert hækkað
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
2008 3%
2009 7,2%
2010 7,6%
2011 7,1%
Atvinnuleysi
Íslendingar sem fluttu af landi brott*
2008 477
2009 2.466
2010 1.703
2011 1.311
Samtals 2008-2011 5.957
*Brottfluttir umfram aðflutta sbr. Hagstofa Íslands
12 úttekt Helgin 5.-7. október 2012