Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
F Fréttatíminn fagnar með þessu tölublaði tveggja ára afmæli. Óhætt er að segja að lesendur og auglýsendur hafi frá fyrsta degi tekið blaðinu fagnandi. Upp-lagið er stórt og blaðið er mikið lesið
– og það sem skiptir ekki síður máli –
vel lesið og vandlega. Fréttatíminn er
helgarblað í orðsins fyllstu merkingu
með fjölbreyttu efni, viðamiklum við-
tölum, úttektum, fréttum,
fréttaskýringum, menn-
ingarumfjöllun, meðal
annars umfjöllun um
bækur, leikhús, kvik-
myndir og sjónvarp – og
síðast en ekki síst marg-
háttuðu afþreyingarefni.
Vel er séð fyrir umfjöllun
um helstu þætti í heim-
ilisrekstri, matargerð og
heilsu. Önnur grundvallar-
atriði í heimilisrekstri, til
dæmis bílar, eru á sínum stað í blaðinu.
Fjölbreytt sérblöð fylgja Fréttatíman-
um, ýmist unnin á vegum blaðsins eða
í umsjá samtaka af ýmsu tagi enda sjá
þau sér hag í því að nýta sér öfluga og
viðamikla dreifingu þess. Þrautreynd
ritstjórn skilar af sér vönduðu en um
leið aðgengilegu efni í máli og mynd-
um sem lesendur kunna að meta og
söludeild þjónustar auglýsendur vöru og
þjónustu sem vita að hið auglýsta kemst
til skila.
Mælingar sýna mestan lestur á
föstudegi, útkomudegi blaðsins, en
einnig að lesendur taka blaðið aftur upp
á laugardögum og sunnudögum þegar
betra næði gefst frá amstri hvunndags-
ins. Fréttatíminn er því upplýsinga-,
fræðslu- og afþreyingarmiðill en um leið
frábær auglýsingamiðill og mikilvægur
sem slíkur þegar ná þarf til sem flestra í
einu. Þessi slagkraftur er auglýsendum
ljós, stórum jafnt sem smáum. Blaðinu
er dreift á heimili á höfuðborgarsvæð-
inu og Akureyri. Því er líka dreift með
samstarfsaðilum um land allt. Um
107 þúsund manns lesa hvert tölublað
Fréttatímans, 55 prósent höfuðborgar-
búa lesa blaðið og 67 prósent kvenna á
aldrinum 25 til 80 ára á því svæði lesa
blaðið. Það eru fáir aðrir fjölmiðlar sem
geta státað af slíku, að ná til nær sjö af
hverum tíu konum á höfuðborgarsvæð-
inu, frá ungum aldri allt til elliára.
Áhugi kvenna á Fréttatímanum er
ekki síst fagnaðarefni. Það er ekki að
ástæðulausu enda þarf ekki annað en
skoða forsíður blaðsins frá upphafi. Þar
hafa konur, á öllum sviðum þjóðlífsins,
verið í miklum meirihluta. Það er ekki
aðeins tilbreyting frá hefð frétta- og
helgarblaða heldur nauðsyn í karllægu
samfélagi.
Eignarhald Fréttatímans er uppi
á borðinu. Blaðið er í eigu nokkurra
starfsmanna en tengist hvorki hags-
muna- né stjórnmálasamtökum og held-
ur ekki viðskiptasamsteypum. Þetta
er mikilvægt að vita í samfélagi sem
gengið hefur í gegnum hremmingar og
traust hefur beðið hnekki, meðal annars
á fjölmiðlum. Það samfélagstraust
vinnst ekki á ný nema með vönduðum
vinnubrögðum og heilindum á öllum
sviðum. Markmið aðstandenda Frétta-
tímans er að gefa út vandað, skemmti-
legt og áreiðanlegt blað sem nær til
þorra landsmanna.
Prentmiðillinn stendur því fyrir sínu,
þrátt fyrir breytta tíma og tækni net-
væðingar, vilji menn ná til sem flestra í
senn. Efni Fréttatímans er enn fremur
að finna á netinu, www. frettatiminn.
is, fyrir þá sem vilja fylgjast með efni
blaðsins, en eiga þess ekki kost að lesa
pappírsútgáfuna, hvort heldur er í dreif-
býli eða utan landsteina.
Undanfarin tvö ár hafa verið ævintýri.
Fréttatíminn hefur á þessum árum skot-
ið styrkum rótum. Fyrir góðar móttökur
lesenda og auglýsenda þessi fyrstu tvö
ár í lífi Fréttatímans er þakkað.
Tveggja ára afmæli Fréttatímans
Helgarblaðið sem sló í gegn
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
... og allir eins
Hafnarfjörður er versti skólabær á
Íslandi.
Ragnar Þór Pétursson kennari tók skóla-
yfirvöld í Hafnarfirði á beinið í hvössu
bloggi þar sem hann útlistaði hvernig
yfirborðskenndar og „gerræðislegar
miðstýringarákvarðanir“ ógna skólalífi
í Firðinum.
Bófahasar
Fyrst ætla ég nú að taka fram
að þegar Jónas Kristjánsson
kallar þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins bófaflokk,
þá gef ég lítið fyrir það.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, var frekar ósátt
við bloggskrif hins flugbeitta
Jónasar Kristjánssonar þegar hún mætti
í viðtal í útvarpsþættinum Harmaged-
don á X-inu.
Fjölskylduhjálp neytenda
Þessi hallarbylting mistókst.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, hélt virkinu á
ársþingi samtakanna þegar Ásgerður
Jóna Flosadóttir, kennd við Fjölskyldu-
hjálp Íslands, og fleiri í föruneyti hennar
sóttust eftir setu í stjórn samtakanna.
Össur og Golíat
Rífðu þennan múr niður,
herra Netanyahu.
Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra
sagði Ísraelsmönnum
til syndanna í ræðu á
allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna og krafðist þess að mannrétt-
indi Palestínufólks yrðu virt.
Hahahaha. Híhíhíhí!
Þótt meiningin kunni að
vera góð er dómgreindar-
leysið við framsetningu
á henni á þann veg að
hlýtur að vekja undrun
ef ekki aðhlátur forystu-
manna annarra ríkja.
Björn Bjarnason var ekki par
hrifinn af ræðu Össurar Skarphéðins-
sonar hjá Sameinuðu þjóðunum og
virðist helst óttast að utanríkisráðherra
hafi gert sig að fífli frammi fyrir heims-
byggðinni.
Sá flottasti
Wow!!! Gunnar Nelson stórkostlegur.
Dana White, forseti UFC, fylgdist með
Gunnari Nelson pakka andstæðingi sín-
um saman á þremur mínútum og þrjátíu
og fjórum sekúndum og reyndi ekki að
leyna hrifningu sinni á Facebook.
MYND:8633 Nelson
Fari þeir sem fara vilja...
Ég er þeirrar skoðunar að andrúms-
loftið í íslenskum stjórnmálum
muni breytast til batnaðar
við að Jóhanna Sigurðar-
dóttir snýr sér að öðru en
pólitíkinni. Megi henni vegna
sem best!
Björn Bjarnason stóð vaktina
eins og herforingi í liðinni viku
og kvaddi Jóhönnu Sigurðardóttur með
virktum eftir að hún tilkynnti að þetta
kjörtímabil yrði hennar síðasta.
Vikan sem Var
„Ég vil þakka kærlega fyrir heiðurinn, ég stækkaði
allavega um fimm sentímetra við þetta,“ segir
Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra
og hlær. Katrín snéri í vikunni aftur til starfa eftir
fæðingarorlof. Katrín segir það góða tilfinningu að
vera komin til starfa. „Ég er að koma úr yndislegu
orlofi og hlakka mikið til að taka þátt við mótun
samfélagins á ný, fram undan eru spennandi tímar.
Mér þykir einnig ómetanlegt að vita til þess að
fólk geti stigið til hliðar úr ábyrgðarstöð-
um, farið í orlof og notið samverustunda
við börnin sín, sem er nauðsynlegt. Ég er
mjög stolt af Íslandi fyrir að vera komið
svona langt, þetta er ekki sjálfgefið
annarsstaðar. Svona er Ísland í dag nú
dásamlegt,“ segir Kartín.
MaðuR vikunnaR
Hlakka til að taka þátt í mótun samfélagsins
14 viðhorf Helgin 5.-7. október 2012