Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 20
Gjaldmiðilsmál: Tveir valkostir
Krónan úthýsir okkur úr EES
Í þarsíðustu viku kom út rit Seðlabankans um valkosti Ís-lands í gjaldmiðilsmálum. Þar
er í raun komist að þeirri niður-
stöðu að aðeins tveir valkostir séu
til staðar fyrir Íslendinga. Annað
hvort áframhaldandi króna eða
evra með inngöngu í Evrópusam-
bandið. Einhliða upptaka er talin
óraunhæf. Enn fremur flækja gjald-
eyrishöftin málið. Þau gera það að
verkum að sú spurning hvort við
getum haldið áfram í EES blandast
í málið. Skoðum þessa tvo valkosti
og útvíkkum hvað þeir þýða í raun
og veru.
Evra með inngöngu í Evrópu-
sambandið
Í samningaviðræðum við Evrópu-
sambandið verður samið um það hvernig ferlið
í kringum upptöku evru á Íslandi mun verða. Af-
nám gjaldeyrishafta verður mikilvægur þáttur í
þeim samningaviðræðum og það kann að vera að
samningarnir snúist um hvort Evrópusamband-
ið geti hjálpað Íslandi að leysa gjaldeyrishöftin.
Endapunkturinn verður að Ísland verði með evru
og algerlega án gjaldeyrishafta.
Króna utan EES
Fyrir nokkrum vikum gaf Seðlabankinn út rit um
mögulegar varúðarreglur eftir fjármagnshöft. Í
raun og veru var Seðlabankinn að segja að hann
teldi ekki raunhæft að hafa algerlega frjálsa fjár-
magnsflutninga með íslenskri krónu. Í öðrum
orðum að gjaldeyrishöft yrðu áfram. Jafnframt
hefur skapast ákveðin samstaða í umræðunni um
að krónu muni alltaf fylgja einhver höft. Gjald-
eyrishöft eru brot á EES samningnum. Þau fara
gegn grunnforsendum Evrópusambandsins (fjór-
frelsið) og þar með EES samningsins. Fjórfrels-
ið er ein mikilvægasta stoð Evrópu-
sambandins. Sú regla sér til þess að
innan ESB er frjálst flæði fjármagns,
fólks, vöru og þjónustu. Gjaldeyris-
höft koma í veg fyrir frjálst flæði fjár-
magns en þrengja einnig frjálst flæði
vöru, þjónustu og fólks. Ef við ætlum
að halda áfram í EES og með krónu
þá þyrftum við að semja við Evrópu-
sambandið um varanlega undanþágu
frá grunnstoð Evrópusambandsins og
EES samningsins (fjórfrelsinu). Það
hlýtur að teljast augljóst að Evrópu-
sambandið mun aldrei samþykkja
að land í EES uppfylli ekki grunn-
stoð samningsins. Þar af leiðandi
getur Ísland varla haldið áfram í EES
með krónu. Hvort sem við viljum
halda áfram eða ekki mun koma sá
tímapunktur að við getum ekki ver-
ið áfram í EES. Við einfaldlega uppfyllum ekki
grunnskilyrðin.
Spurning um framtíðina
Við Íslendingar höfum því tvo raunverulega
valkosti. Að ganga í Evrópusambandið og taka
upp evru án gjaldeyrishafta og njóta áfram þeirra
kosta sem við höfum notið innan EES samnings-
ins. ESB sjálft hefur líka góða kosti. EES samn-
ingurinn hefur gjörbreytt Íslandi, á jákvæðan
hátt. Flestir eru sammála um ágæti EES samn-
ingsins og vilja ekki segja honum upp. Hinn val-
kosturinn er að ganga ekki í Evrópusambandið,
halda áfram að nota krónu, vera áfram með gjald-
eyrishöft og ganga úr EES.
Þeir sem vilja ekki í Evrópusambandið verða
að gera það upp við sig hvort þeir séu tilbúnir til
að missa EES samninginn og lifa í haftahagkerfi
til frambúðar. Eru það í alvörunni hagsmunir ein-
staklinga og fyrirtækja í landinu að Íslandi verði
áfram með gjaldeyrishöft, krónu og ekki í EES?
Egill Almar Ágústsson
Meistaranemi í hag-
fræði og fjármálum
við Brandeis háskóla í
Bandaríkjunum
Hagfræði heimila og þjóðar
Í hvað vill þjóðin eyða skattfé sínu?
M ig rámar í skoðanakönnun sem gerð var fyrir margt löngu þar sem meðal annars var spurt um
hvaða starfsgreinar mönnum líkaði verst
við. Það vakti athygli mína þá að hag-
fræðingar voru verst þokkaðir af öllum
stéttum, sjónarmun reyndar á undan lög-
fræðingum. Ég var að læra hagfræði í Há-
skólanum þegar þetta var, hafði valið þá
grein frekar en lögfræði. Ástæður þess að
hagfræðingar njóta lítilla vinsælda kunna
að vera margar en ein er sú að fræðigrein-
in byggir á því lögmáli að það er ekki til
endalaust af gæðum sem við mennirnir
sækjumst eftir. Því verðum við að haga
okkur í samræmi við þá staðreynd og
sætta okkur við alls konar leiðindi eins
og að við getum ekki bæði átt kökuna og
borðað hana. Ekki furða kannski þó að
hagfræðingar séu ekki manna vinsælastir, Hollywood
gerir aldrei bíómyndir um þá og sjaldnast er sagt við
lítil börn að ef þau verða dugleg að borða matinn sinn
þá geti þau orðið hagfræðingar þegar þau eru orðin
stór.
Hagfræðingur í hverju húsi
En þó fæstir leggi stund á hagfræði í háskóla þá er það
svo að hvert og eitt okkar fæst við hagfræðileg vanda-
mál á hverjum degi. Heimilishald er öðrum þræði hag-
fræðilegt vandamál, matur og föt, lán sem þarf að borga
af, húsaleiga, ferðalög og allt hvað eina sem fylgir því að
reka eitt heimili. Verkefni hverrar fjölskyldu er að nýta
heimilistekjurnar sem best þannig að sem flestum þörf-
um verði fullnægt. Þetta þýðir að við þurfum að velja
og hafna, forgangsraða. Það væri til dæmis skrýtið val
að kaupa nýjan og dýran jeppa og geta síðan ekki sent
barnið til tannlæknis vegna blankheita. Þetta þekkjum
við og flestum gengur bærilega að greiða úr þessum
endalausu verkefnum.
Stjórnmálamenn þurfa líka að velja
Svona gengur þetta fyrir sig á heimilum landsins. Lög-
mál skortsins knýr okkur til að forgangs-
raða og við reynum að láta mikilvægustu
hlutina í lífinu hafa forgang. En þetta virð-
ist reynast okkur stjórnmálamönnunum
flóknara. Lögmál skortsins á heldur betur
við um fjármál ríkisins, við þurfum að velja
um í hvað við ráðstöfum takmörkuðum
fjármunum okkar. Það val endurspeglar
pólitískar áherslur okkar og hugsjónir. Ég
hlustaði í vikunni á viðtal við Kára Stefáns-
son þar sem hann talaði um hvernig all-
ur tækjakostur Landspítalans væri úr sér
genginn og hversu mjög heilbrigðiskerfið
okkar væri að dragast aftur úr öðrum þjóð-
um vegna þess að við eigum ekki nýjustu
tæki og tól. Þetta var dökk mynd sem Kári
dró upp.
Ekki kaupa fleiri jeppa
Höfum við ekki efni á betra heilbrigðiskerfi? Svarið er
einfalt, jú við höfum það. En við verðum að forgangs-
raða í rekstri ríkisins og okkur liggur á að breyta
áherslunum. Hvaða vit var í því að ríkið lagði hátt í 10
milljarða í göng undir Vaðlaheiði við þessar aðstæður?
Mér er sama þótt þeir peningar eigi að skila sér að
til baka að hluta á einhverjum áratugum, þjóðhagsleg
hagkvæmni og mikilvægi þess að endurnýja og bæta
tækjakost Landspítalans er án vafa meiri þegar upp
er staðið. Og hvað vit var í því að eyða milljörðum í
málaferli gegn Geir Haarde, í vanhugsaðar breytingar
á stjórnarskránni, eða illa ígrundaða umsókn að ESB,
svo dæmi séu nefnd? Ríkisstjórnin er í þessum málum
því miður ekki ólík heimilsföður sem kemur heim á
nýja jeppanum og byrjar að útskýra fyrir fjölskyldunni
að ekki séu til peningar fyrir tannlæknaferðum og öðru
slíku, það lá svo á að kaupa jeppann. Þessu þurfum
við að breyta. Við þurfum að endurskoða allan rekstur
ríkisins og gera okkur betur grein fyrir því hvernig
við forgangsröðum. Sumt þarf að skera niður og spara
enn frekar og í annað þurfum við að auka við. Verkefni
okkar er að ákveða í hvað við verjum sameiginlegum
sjóðum þessarar stóru fjölskyldu sem byggir Ísland.
Illugi Gunnarsson
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins
Höfum við ekki efni á betra heilbrigðiskerfi? Svarið er einfalt, jú við höfum
það. En við verðum að forgangsraða í rekstri ríkisins og okkur liggur á að
breyta áherslunum.
*Aðalvinningar dregnir úr öllum innsendum skeytum 30.október 2012.
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum, Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr./SMS-ið.
Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu.
Leik lýkur 29.október 2012
SENDU SMS EST PS3
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU
OG SVARAR MEÐ ÞVÍ
AÐ SENDA SMS
SKEYTIÐ EST A, B EÐA C
Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
FULLT AF AUKAVINNINGUM:
DVD - TÖLVULEIKIR
FIFA 13 - GOS O.FL.
VILTU VINNA
NÝJU PS3
TÖLVUNA?
MINNI - LÉTTARI - FERSKARI
20 viðhorf Helgin 5.-7. október 2012