Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 22
V ala Garðarsdóttir er fornleifafræðingur og hefur haft brennandi áhuga á Íslendingasögunum síðan í æsku.
Í þáttunum Ferðarlok tengir hún þessi tvö
hugðarefni sín saman og sér nú loks fram á
að hugmynd hennar um aðgengilegan fróð
leik um Íslendingasögurnar og fornleifar
verði að veruleika.
„Ég fékk hugmyndina að þessu og fannst
þurfa að gera þetta efni svolítið aðgengilegra
sjónrænt,“ segir Vala sem velti þessu lengi
fyrir sér. „Ég byrjaði á þessu um svipað leyti
og ég byrjaði í fornleifafræðinni. Ég var alltaf
að hugsa um þetta. Ég hef lesið sögurnar oft
og farið um söguslóðirnar og þar fer maður
að rýna í tóftirnar og hugsa þetta lengra.“
Kristján Eldjárn fyrirmynd
Vala segist horfa mikið til Kristjáns Eldjárns,
sem var þjóðminjavörður áður en hann varð
forseti Íslands. „Ég fæ mikið af hugmyndum
frá Kristjáni Eldjárn og ég myndi segja að
hann væri mér mjög sterk fyrirmynd. Ég er
mjög hrifin af hugmyndafræði hans að reyna
ekki endilega að sanna sögurnar heldur að
blása aðeins meira lífi í þær.
Ég er búin að skoða þetta í svolítið langan
tíma. Bæði fornleifarnar og Íslendingasögur
nar. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á Íslend
ingasögunum yfir höfuð. Alveg frá því að ég
var krakki. Þær eru samt meira tómstunda
gaman hjá mér,“ segir Vala sem er fyrst og
fremst fornleifafræðingur sem stendur við
þá vík sem hún segir að sé á milli fræðanna
og sagnanna.
„Vissulega er vík á milli fornleifafræðinn
ar og sagnanna sjálfra en það er gaman að
velta þessari tengingu fyrir sér og reyna að
festa á þessu hendur.“
Sannleikskornin í sögunum
„Maður er kannski á gráu svæði sem
fræðimaður ef maður er eitthvað að reyna
að sanna að einhverjir ákveðnir atburðir
í Íslendingasögunum hafi átt sér stað í
raunveruleikanum. Þetta er meira gert til
að vekja meiri áhuga á sögunum en auð
vitað er mögulegt að ákveðnir atburðir hafi
átt sér stað og einhver sannleikskorn geta
leynst á bak við textann. Eða að einhverjir
atburðir hafi kveikt ákveðna sögu. Það er
dálítið gaman að rekja þetta líka út frá forn
leifunum, út frá aldursgreiningum og land
námi og landnámsstöðum sem rætt er um í
Landnámu sjálfri. Ég held að það sé ekkert
fjarri lagi og ég held það sé enginn að rengja
Landnámu sem slíka.“
Vala bendir á að þegar sögur eru annars
vegar sé viðbúið að þær séu kryddaðar.
„Auðvitað bætir fólk í og einhvern
veginn formast, þróast og breytast
sögurnar í gegnum þessi hundrað
eða tvö hundruð ár sem kannski líða
á milli atburða þangað til þeir eru
settir niður á skinn. Sannleikskornið
er örugglega til staðar þótt ýkjurnar
verði einhverjar eins og alltaf gerist
með sögur.“
Silfur Egils og fall Gísla
Í Ferðalokum er farið yfir valda atburði
úr Íslendingasögunum og tengsl þeirra
við fornminjar sem enn fyrirfinnast ann
að hvort úti í náttúrunni eða á söfnum.
Lagt er upp með að sögumaður gangi á
söguslóðir, segi frá viðfangsefni hvers
þáttar, stikli á sögunni, ræði við fræði
menn, sagnamenn, heimamenn og fleiri.
Í þáttunum er því rýnt í sögu forfeðranna
frá ýmsum sjónarhornum og stuðst við
fornminjar, náttúruna og munnmælasögur
sem gefa innsýn í fortíðina.
„Við förum í gegnum ákveðna atburði
en tökum ekki fyrir heilu sögurnar. Við
skoðum ekki alla Njálu, Laxdælu eða
Gísla sögu. Við tökum ákveðna atburði úr
sögunum sem hægt er að tengja við forn
gripi. Við tökum til dæmis silfur Egils
úr Egils sögu, bardagann við Knafahóla
úr Njálu, landnám Auðar djúpúðgu úr
Landnámu og forsögu Laxdælu og fall Gísla
Súrssonar í Gísla sögu.“
Vala segir valið mikið til ráðast af því sem
er til áþreifanlegt úr fortíðinni. „Silfur Egils
varð fyrir valinu vegna þess að það fund
ust silfurpeningar í Kýrgili í Mosfellsdal og
silfur peningar slegnir í Skotlandi. Það er al
veg hægt að leika sér með þetta. Sama er að
segja um bardagann úr Njálu en dys og fleira
hefur fundist á sama stað og sagan á að hafa
gerst. Maður er svolítið að leika sér að því
að tengja saman fornleifar og sögu og þess
vegna valdi ég þessa atburði til þess að leika
mér með.“
Alltaf að grafa
Leikin atriði úr Íslendingasögunum setja
mikinn svip á þættina og Vala segist hafa
fylgst náið með upptökum á þeim atriðum.
„Já, já. Ég er alltaf með frá a til ö. Þótt þetta
sé samstarfsverkefni þá vill maður náttúr
lega vera til staðar þó ekki væri nema bara
upp á faglega þáttinn og að fylgja þessu úr
vör. Það er líka svo gaman að sjá þetta verða
að veruleika og þessa frábæru leikara sem
við eigum á Íslandi sýna hvað í þeim býr.
Allt fólkið sem kom að framleiðslunni var
frábært og ég held að það hafi nú komið mér
mest á óvart hvað fólk getur aðlagast ýmsu.“
Enskur titill þáttanna er
Journey´s End en hugmyndin er
að reyna að selja þá til sýninga í
nágrannalöndum Íslands. „Fram
leiðendurnir eru að reyna að selja
þetta til hinna Norðurlandanna,
Frakklands og Þýskalands og
Bretlands jafnvel. Við höfum
fundið fyrir miklum áhuga þannig
að það virðist vera mikill áhugi
á Íslendingasögunum í þessum
löndum.“
Rakel Garðarsdóttir og Ágústa
M. Ólafsdóttir framleiða þættina
undir merkjum Vesturports. Björn
Hlynur Haraldsson sá um leikstjórn
í upphafi en Ragnar Hansson tók
við keflinu þegar Björn fékk hlut
verk í þáttunum The Borgias.Ríkis
sjónvarpið sýnir þættina í lok ársins
og Vala segist vera orðin mjög
spennt og tilhlökkunin sé mikil
enda langt um liðið síðan hún lagði
upp í þennan leiðangur um fortíðina.
Hún heldur samt að sjálfsögðu fullri
einbeitingu í forn leifagrúskinu þar
sem nóg er að gera. „Ég er búin að
vera að grafa síðan í maí og verð
að út október. Það er nú svona það
sem ég geri venjulega, hitt er meira í
hjáverkum.“
Heimur Íslendingasagnanna opnast
með tengingu við fornminjar
Sjón
varps
þættir nir
Ferðalok
fara yfir valda
atburði úr Íslend
inga sögunum og
tengja þá við fornminjar
og gripi sem enn eru til.
Hugmyndin að þáttunum
er komin frá Völu Garðars
dóttur fornleifafræðingi
sem skrifar handrit þeirra.
Hún segir vík vera á milli
Íslend inga sagnanna
og fornleifafræðinnar
en gaman sé að leika
sér að tengingum þar
á milli og gæða þannig
sögur nar sem lifað hafa
með þjóðinni í gegnum
árhundruðin lífi. Til
stendur að sýna í Ríkissjón
varpinu undir lok ársins.
22 viðtal Helgin 5.7. október 2012
Ha
rð
pa
rke
t