Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 26

Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 26
Krabbameinsfélagið Hlúum að lífinu Örráðstefna 11. október kl. 16:30-18:00 í tilefni af alþjóðlegum degi líknar í samstarfi Krabbameinsfélags Íslands, Lífsins og Landspítala. 16:30-16:35 Ráðstefnan sett. Sigrún Lillie Magnúsdóttir forstöðumaður Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. 16:35-16:45 Ráðgjafarþjónustan. Ásdís Káradóttir hjúkrunarfræðingur segir frá þjónustunni. 16:45-17:00 Getur lækning og líkn farið saman? Valgerður Sigurðardóttir yfirlæknir líknardeildar Landspítala. 17:00-17:15 Líknarmeðferð í lok langrar ævi. Jón Eyjólfur Jónsson yfirlæknir bráða- öldrunarlækningadeildar Landspítala. 17:15–17:30 Af eigin reynslu. Ágústa Erna Hilmarsdóttir segir frá reynslu sinni. 17:30-17:45 Fyrir hverja er líknarmeðferð? Kristín Lára Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur í líknarteymi Landspítala. 17:45-18:00 Kaffi og spjall. Allir velkomnir - ókeypis aðgangur Fundarstjóri: Margrét Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði Krabbameinsfélagið, Skógarhlíð 8, Reykjavík, sími 540 1900, www.krabb. likn theim er lifa.indd 1 10/4/2012 12:09:37 PM Þ að er mikið gildi í því að missa vitið og finna það aftur,“ segir Elín Ebba Ásmundsdóttir sem rekur Hlutverkasetrið í Borgar- túni 1 og hefur gert frá því „ein- hvern tíma í hruninu,“ en áratugina þar á undan starfaði hún innan geðbatterísins og í hartnær þrjátíu ár var hún yfirmaður iðju- þjálfunarinnar á geðdeild Landspítalans („á endanum var ég sjálf orðin fársjúk“). „Æi, þetta er orðin svo löng saga,“ byrjar Elín, eða Ebba eins og hún er oft kölluð, að- spurð um hvernig það hafi komið til að hún hafi orðið iðjuþjálfari á geðdeild. „Ég fór út til Noregs að læra þetta eftir að ég sat kynn- ingarfund í Menntaskólanum við Hamrahlíð um iðjuþjálfun. Ég hafði fengið styrk eða einhverskonar lán til námsins frá Borgar- spítalanum og þurfti að koma heim og vinna á geðdeild spítalans til að þurfa ekki að borga lánið til baka.“ Ebba hlær við tilhugsunina en hún flutti mann með sér heim frá Noregi og í dag eiga þau þrjá syni („við eignuðumst strákana seint, eftir þrítugt, og fólk hélt að við gæt- um ekki átt börn en við höfðum bara aldrei reynt,“ segir hún stríðin). Maðurinn hennar heitir Jón Kjell Seljeseth og Ebba spyr mig hvort ég muni ekki eftir honum. „Þú ert svo ungur. Nei, þú manst ekkert eftir Jón Kjell? Já, hann var alltaf með klútinn. Manstu eftir því? Ég hélt þú værir of ungur til að muna það.“ Öryrkjum fjölgar Í Hlutverkasetrið hennar Elínar kemur fólk Að missa vitið og finna það aftur Í um þrátíu ár hefur Elín Ebba Ásmundsdóttir starfað innan geðbatterísins. Fyrir nokkrum árum, eftir hartnær þrjá áratugi, sagði hún upp á geðdeild Landspítalans, gekk út og stofnaði Hlut- verkasetur. Hún komst nefnilega að því að bati frá geðveiki hafði svo miklu meira að gera með allt annað en geðlyf og geðlækna, eins yndislegir og þeir geta samt verið. Mikael Torfason kíkti í heimsókn til Elínar Ebbu og ræddi við hana um lífið og geðveiki og margt annað. Það er aldrei dauð stund í kringum Elínu Ebbu Ás- mundsdóttur sem ákvað að stökkva upp á borð og halda þrumuræðu yfir mann- skapnum eftir að ljósmyndari Fréttatímans hafði verið að vandræðast með hvernig mynd gæti best lýst allri ástríðunni sem býr innra með Elínu Ebbu. Ljósmynd/Hari sem hefur misst vinnuna eða önnur mikil- væg hlutverk í lífinu. Þegar ég kom þarna fyrst í síðustu viku eftir að hafa hitt Elínu Ebbu einu sinni áður til að spyrja út í starfsemina þá var í gangi starfsdagur. En á hverjum föstudegi klukkan eitt er opið hús og starfsemin kynnt. Á starfsdegi fá gestir og gangandi líka að kynna sig og hvaðan þau koma. Á einum slíkum fundi sem ég sat kynntist ég fólki sem hafði einangrast heima hjá sér vegna atvinnu- leysis eða þunglyndis. Sumir voru þarna frá útlöndum og Hlutverkasetur eina leið þeirra inn í íslenskt samfélag. „Ég var alin upp við það að það væri allt í lagi að vera öðruvísi en sem samfélag þá ýtum við alltof oft fólki sem sker sig úr til hliðar,“ útskýrir Elín Ebba sem brennur af ástríðu þegar hún talar um fólkið sem kemur til hennar á hverjum degi. Þetta eru um 50 manns á dag að meðaltali og engin er neyddur í neitt. Fólk fær að taka þátt í öllu sem boðið er upp á en það eru allskonar námskeið en Elín og hennar starfsfólk hjálpar fólki líka að finna sína hillu. En er fólki sem ekki passar inn að fjölga? „Jú, því er alltaf að fjölga. Við sjáum það bara á fjölgun öryrkja á Íslandi og ég kann engar einfaldar skýringar. Ég veit hinsvegar að það er erfiðara og erfiðara að vera ekki þessi meðalmanneskja sem við miðum allt við,“ segir Elín og bendir á að hér haldist markaðsöflin í hendur við fjöl- Þau sem ná árangri eru ekk- ert að ná árangr- inum inni á þessum deildum Framhald á næstu opnu 26 viðtal Helgin 5.-7. október 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.