Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 35
viðtal 35 Helgin 5.-7. október 2012
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir
taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum bleikan bíl!
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
Hann fékk auðvit
að sitt pasta fyrir
leiki og allt það en
hann getur alveg
soðið það sjálfur.
Ragna Lóa elti mann sinn, Hermann
Hreiðarson, út til Englands og var
svokölluð „footballers wife“ í fjórtán
ár. Nú eru þau bæði komin heim og
hún þjálfar Fylki og hann ÍBV.
komst áfram af dugnaði og
eljusemi. Hausinn er náttúrlega
í toppstandi á þessum manni
og það hefur alltaf vantað alla
stæla í hann. Svo hefur hann
æft meira en allir aðrir og slíkt
skilar sér alltaf,“ segir Ragna
Lóa og aðspurð um hvort heim-
ilið hafi ekki snúist í kringum
hann á leikdögum þá segir hún
að Hemmi sé ekki þannig týpa.
„Hann fékk auðvitað sitt pasta
fyrir leiki og allt það en hann
getur alveg soðið það sjálfur.“
Þau hjónin eru alþekktir stuð-
pinnar og bæði orkumiklir töff-
arar. Þannig kann Ragna Lóa
margar sögur af þeim og eina
af því þegar hún var að þjálfa
stelpurnar í KR og Hemmi að
spila með Crystal Palace. Þetta
var skömmu áður en Ragna Lóa
flutti út á eftir honum og það
æxlaðist þannig eina helgina að
allt liðið hennar ákvað að fara
í ferð til að kíkja á Hermann
Hreiðarsson og nýja liðið hans.
Hemmi gerði sér lítið fyrir og
„spurði ekki, heldur skipaði
hann eiganda Crystal Palace að
bjóða konunni sinni út að borða
því hann þyrfti að nota húsið
til að halda partí fyrir íslenskar
fótboltastelpur. Eigandanum
þótti þetta svo óforskammað og
fyndið að hann gat ekki annað
en látið þetta eftir nýja leik-
manninum sínum, unga ofur-
huganum frá Íslandi.“
En hvar sérðu þig eftir tíu ár?
„Ég ætla rétt að vona að ég
verði enn að þjálfa og kannski
verða stelpurnar mínar að spila
með Fylki og orðnar íslenskar
fótboltastelpur. En auðvitað
væri algjör draumur að við
Hemmi værum bæði lands-
liðsjálfarar eftir tíu ár,“ segir
Ragna Lóa.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is