Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 39
Vaxandi vímuefnavandi heldri borgara
Hópurinn
Á samráðsfundi SÁÁ með ráðherra
og starfsfólki velferðarráðuneytisins
12. apríl þessa árs var rædd tillaga
SÁÁ um sérstakan samning ráðu-
neytisins við SÁÁ um áfengismeð-
ferð fyrir aldraða og/eða vegna
rangrar notkunar lyfja. SÁÁ hefur
yfir að ráða fjármagni sem samtökin
eru reiðubúin til að nýta til bygg-
ingar nýrrar deildar við Vog fyrir
aldraða áfengissjúka ef hægt verður
að tryggja reksturinn. Ráðherra
óskaði eftir því að málið yrði skoðað
nánar með SÁÁ og ýmsum sérfræð-
ingum innan og utan ráðuneytis,
skilgreina þurfi markhópinn og meta
þörf fyrir meðferð og kostnað vegna
hennar. Lára Björnsdóttur leiddi
þá vinnu fyrir hönd ráðuneytisins
en aðrir í hópnum voru: Gunnar
Smári Egilsson frá SÁÁ, Ragnheiður
Halldórsdóttir frá öldrunarlækninga-
deild LSH, Berglind Magnúsdóttir frá
Heimaþjónustu Reykjavíkurborgar,
Bryndís Þorvaldsdóttir og Margrét
Björk Svavarsdóttir.
Ef gengið er út frá því að 10 prósent þeirra sem hafa fengið greiningu sem vímuefna-sjúkir þurfi árlega að leggjast inn á Vog til viðbótar við þá sem koma í fyrsta skipti má
reikna með að um 269 manns á aldrinum 67-80 ára
þurfi á þjónustu Vogs að halda árlega. Ef miðað er
við núverandi aðgengi að þjónustu og fjölgun ein-
staklinga í þessum aldursflokki þurfa 417 á þessari
þjónustu að halda eftir tíu ár.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í minnisblaði sem Lára Björns-
dóttir sendi Guðbjarti Hannessyni,
ráðherra í velferðarráðuneytinu,
fyrir hönd samráðshóps sérfræðinga
25. ágúst. Enn er beðið viðbragða
ráðherra við áætlun sem samstarfs-
hópurinn hefur sett fram en sam-
dóma álit þeirra sem hann skipa er að
brýn þörf sé á sérstöku meðferðarúr-
ræði fyrir aldraða í áfengisvanda og/
eða vanda vegna rangrar notkunar
lyfja. Hópnum var falið að skoða til-
lögu SÁÁ, en samtökin eru reiðubúin
að leggja fram fé til byggingar nýrrar
deildar við Vog, sérstaklega fyrir
aldraða, ef tryggja má reksturinn.
Á þriðja þúsund greindir aldraðir
alkóhólistar
Vandinn er erfiður viðureignar; að
hluta til vegna fordóma og þekkingar-
leysis. Lítill hvati er meðal fagstétta
að greina vandann og skrá ef slíkt
leiðir ekki til viðeigandi úrlausna
við vanda sem er alvarlegur og fer
vaxandi. Þetta er mat hópsins. Oft er
horft framhjá áfengissýki hjá öldr-
uðum og afleiðingum hennar – þær
skrifaðar á almenna hrörnun eða elli-
glöp. Ástæður þess að vandinn mun
aukast er aukið langlífi, þær kyn-
slóðir sem nú eru að eldast hafa neytt
áfengis og vímuefna í mun meira
mæli en fyrri kynslóðir auk þess að lyfjanotkun hefur
aukist hröðum skrefum á undanförnum árum og
áratugum.
Hópurinn aflaði sér margvíslegra athyglisverðra
upplýsinga. Til dæmis:
Um 14 prósent karla og 6 prósent kvenna hafa
lagst inn á Vog einu sinni eða oftar fyrir eftir-
launaaldur
Um 1 prósent karla og 0,8 prósent kvenna leggjast
inn á Vog í fyrsta sinn á aldrinum 67-69 ára
Um 0,5 prósent karla og 0,4 prósent kvenna leggj-
ast inn á Vog í fyrsta sinn á aldrinum 70-79 ára
Gera má ráð fyrir því að 2.420 manns á aldrinum
67-80 ára hafi fengið greiningu sem áfengis- og
vímuefnasjúklingar. Þar af eru um 25 nýliðar, það eru
þeir sem ekki höfðu fengið slíka greiningu fyrir 67
ára aldur.
Vimulaust ævikvöld
Samkvæmt minnisblaðinu er Sjúkrahúsið Vogur
heppilegur staður fyrir úrræði sem henta öldruðum.
Meðferð á Vogi tekur 10 daga en reynsla undan-
farinna ára hefur verið sú að aldraðir dvelja lengur á
Vogi en þeir sem yngri eru, annars vegar vegna þess
að þeir eru lengur að ná sér líkamlega og hins vegar
vegna þess að þeir þurfa lengri tíma til að meðtaka
prógrammið. Því má gera ráð fyrir 7-11 plássum á
Vogi fyrir þennan aldurshóp.
Vegna sérstöðu hópsins þarf að þróa sérstaka
stuðningsþjónustu til að byggja undir bata sjúkling-
anna og forða þeim frá einangrun og falli. Sam-
ráðshópurinn telur réttast að SÁÁ verði leiðandi í
vitundarvakningu um „vímulaust ævikvöld“ en í nánu
samstarfi við stjórnvöld. Samtökin eru reiðubúin til
að byggja upp stuðningsþjónustu við aldraða áfengis-
sjúka að meðferð lokinni í samvinnu við sveitar-
félögin.
Ónefndur velunnari
Eins og áður sagði er SÁÁ reiðubúið að leggja til fjár-
magn takist að tryggja reksturinn. Áætlaður bygg-
ingarkostnaður sex herbergja álmu við Vog fyrir 9-12
sjúklinga, sameiginlegt rými til meðferðar, funda og
viðtala er um 105 milljónir króna. Auk þess er gert
ráð fyrir stækkun og endurbótum á Vogi samkvæmt
byggingaráætlun fyrir um 25 milljónir króna. Alls
mun SÁÁ því leggja 130 milljónir króna til verksins
sem að hluta til verður fjármagnað með sérstöku
gjafafé frá ónefndum velunnara samtakanna, sé vísað
til minnisblaðsins.
Á síðasta ári kostaði hver legudagur á Vogi 22.565
krónur. Umönnunarkostnaður á hvern aldraðan
sjúkling er hærri en almennra sjúklinga á Vogi en
gera má ráð fyrir að á móti vegi hagræðing af því
að öldrunardeildin verði viðbót við aðra starfsemi
Vogs. Ef miðað er við að sama kostnað á legudag og
83,3 prósenta nýtingu (að meðaltali 10 inniliggjandi
sjúklingar) er árlegur rekstrarkostnaður deildarinnar
um 82.360.000 milljónir króna. Þetta hlýtur að teljast
raunhæfur kostur fyrir ríkissjóð en gera má ráð fyrir
miklum afleiddum sparnaði í velferðarútgjöldum fyrir
hvern aldraðan einstakling sem nær tökum á áfengis-
sýki sinni. Áætla má að kostnaður við almenna
vitundarvakningu, uppbyggingu samstarfs við aðrar
stofnanir, fræðslu og námskeið fyrir fagstéttir svo og
uppbyggingu stuðningsúrræða og eftirfylgni með-
ferðar sé um 6-8 milljónir króna árlega.
- jbg
Betra líf
Starfsemi SÁÁ í 35 ár, sem eru um 12.000
dagar, hefur þannig skil-
að einum heilbrigðum
og virkum einstaklingi út
í þjóðfélagið á hverjum
einasta degi.
Íslenskt samfélag hefur ekki ráðist í margar
betri fjárfestingar en
starfsemi SÁÁ undan-
farin 35 ár.
12.000
heilbrigðir einstaklingar
út í samfélagið er ekki
eini mælikvarðinn.
Meðferð þeirra sem ekki hafa enn
náð langtímabata með
núverandi úrræðum
skilar líka miklum árangri.
Hver einasta meðferð
bætir hag sjúklingsins og
fjölskyldu hans, eykur lífs-
líkur og lífsgæði. Brýnasta
verkefnið nú er að bæta
eftirfylgni við þennan hóp
og þá 900 einstaklinga
sem ekki fá viðunandi
heilbrigðisþjónustu og
félagslegan stuðning við
núverandi aðstæður.
Það eru til fjölmargar erlendar rannsóknir
á arðsemi fjárfestinga í
baráttu við áfengis- og
vímuefni. Allar sýna þær
fram á að meðferð er
arðbærasta fjárfest-
ingin, mun arðbærari en
allar lögregluaðgerðir og
forvarnarherferðir.
Fyrir hverja krónu sem sett er í
meðferð við þessum
sjúkdómi koma rúmlega
sjö krónur til baka til
samfélagsins, sam-
kvæmt þessum rann-
sóknum. Þar af skila
rúmlega tvær krónur sér
til baka á fyrsta árinu.
Meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga
skilar alveg ótrúlegum
arði, hvort sem það er
mælt í peningum eða í
betra lífi.
-pg
Á fimmta hundrað eldri Borgara þurfa Á Vog eftir tíu Ár. aldraðir eiga í Verulegum Vanda Vegna
Áfengisfíknar eða Vegna rangrar notkunar lyfja. sÁ Vandi stigmagnast. Álit samstarfshóps
sérfræðinga er samdóma: Brýn þörf er Á sérstöku meðferðarúrræði fyrir aldraða. raunhæf Áætlun
liggur fyrir og Beðið er ViðBragða guðBjarts hannessonar VelferðarrÁðherra.
Fyrirsjáanlegur er vaxandi og víðtækur vandi alkóhólista í hópi eldri
borgara. Sá vandi verður illviðráðanlegur nema brugðist verði við.
Þetta er samkvæmt minnisblaði sem sent hefur verið ráðherra – reikna
má með að vel á 3. hundrað þurfi á þjónustu Vogs að halda árlega.
3 2012 OKTÓBER