Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 44
Enginn trúði á þessa róna
Hendrik Berndsen, sem enginn þekkir undir öðru nafni en Binni (í BlómaBúðinni), er goðsögn í lifanda
lífi innan sÁÁ. Hann er einn af frumHerjunum; fyrsti varaformaður samtakanna og starfaði við Hlið
Hilmars Helgasonar, sem kústur að eigin sögn; við að sópa upp og framkvæma Hugmyndirnar sem
eldHuginn Hilmar fékk. þetta er dauðans alvara. fyrsti formaður sÁÁ, Hilmar, féll. drakk og drukknaði
langt fyrir aldur fram, skömmu Áður en draumurinn um vog varð að veruleika, en Binni lítur um öxl;
aftur um 40 Ár. saga sÁÁ er merkileg – sigurganga en það gekk sannarlega Á ýmsu Á uppHafsÁrunum,
eins og jakoB Bjarnar fékk að Heyra þegar Hann Hitti Binna.
Þetta er eins og með svo margt í lífinu; tilviljun í raun. Anna Guðmundsdóttir, sem bjó í Ameríku, hún var vinkona Hilmars Helgasonar. Hún hafði komið pabba sínum á Freeport. Hilmar Helgason var mikill drykkjumaður og mikill vinur minn; við drukkum mikið saman. Allt í einu hverfur hann af sviðinu og
sést ekki í einn og hálfan mánuð. Í það minnsta vissi ég ekkert hvað varð af honum.
Svo kemur hann heim og þá er ég fullur einhvers staðar úti í bæ á bar, já, uppá Esju,
og þar segir Stefán barþjónn mér það að Hilmar Helgason sé kominn frá Ameríku.
Edrú! Ég náttúrlega trúði því ekki, hringdi í hann og þá segir hann mér þessa sögu;
hann hafi farið á Freeport þar sem hann hafi kynnst þessari meðferð og sé edrú í
dag. Hann segist vilja hitta mig,“ segir Binni Berndsen – sem margir þekkja sem
Binna á Blómaverkstæði Binna á horni Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs; þar sem
hann hefur nú rekið blómabúð í tuttugu ár.
Binni lítur um öxl.
Það sem rís upp
úr að hans mati
er þegar litið er
yfir 35 ára sögu
SÁÁ, fyrir utan að
rúm 20 þúsund
einstaklinga hafa
nýtt sér þjónustu
SÁÁ, er bygging
Vogs.
Ljósmynd/Hari
8 OKTÓBER 2012