Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 44

Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 44
Enginn trúði á þessa róna Hendrik Berndsen, sem enginn þekkir undir öðru nafni en Binni (í BlómaBúðinni), er goðsögn í lifanda lífi innan sÁÁ. Hann er einn af frumHerjunum; fyrsti varaformaður samtakanna og starfaði við Hlið Hilmars Helgasonar, sem kústur að eigin sögn; við að sópa upp og framkvæma Hugmyndirnar sem eldHuginn Hilmar fékk. þetta er dauðans alvara. fyrsti formaður sÁÁ, Hilmar, féll. drakk og drukknaði langt fyrir aldur fram, skömmu Áður en draumurinn um vog varð að veruleika, en Binni lítur um öxl; aftur um 40 Ár. saga sÁÁ er merkileg – sigurganga en það gekk sannarlega Á ýmsu Á uppHafsÁrunum, eins og jakoB Bjarnar fékk að Heyra þegar Hann Hitti Binna. Þetta er eins og með svo margt í lífinu; tilviljun í raun. Anna Guðmundsdóttir, sem bjó í Ameríku, hún var vinkona Hilmars Helgasonar. Hún hafði komið pabba sínum á Freeport. Hilmar Helgason var mikill drykkjumaður og mikill vinur minn; við drukkum mikið saman. Allt í einu hverfur hann af sviðinu og sést ekki í einn og hálfan mánuð. Í það minnsta vissi ég ekkert hvað varð af honum. Svo kemur hann heim og þá er ég fullur einhvers staðar úti í bæ á bar, já, uppá Esju, og þar segir Stefán barþjónn mér það að Hilmar Helgason sé kominn frá Ameríku. Edrú! Ég náttúrlega trúði því ekki, hringdi í hann og þá segir hann mér þessa sögu; hann hafi farið á Freeport þar sem hann hafi kynnst þessari meðferð og sé edrú í dag. Hann segist vilja hitta mig,“ segir Binni Berndsen – sem margir þekkja sem Binna á Blómaverkstæði Binna á horni Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs; þar sem hann hefur nú rekið blómabúð í tuttugu ár. Binni lítur um öxl. Það sem rís upp úr að hans mati er þegar litið er yfir 35 ára sögu SÁÁ, fyrir utan að rúm 20 þúsund einstaklinga hafa nýtt sér þjónustu SÁÁ, er bygging Vogs. Ljósmynd/Hari 8 OKTÓBER 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.