Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 51
Með nýrri jafnréttisáætlun vill SÁÁ
leggja áherslu á að jafnræði ríki milli
kynja en þar segir meðal annars:
„Það kynið sem er í minnihluta í
viðkomandi starfsgrein skal að öðru
jöfnu ganga fyrir við ráðningar
þegar umsækjendur eru jafnhæfir.“
Ofboðslegir
jafnræðis- og
jafnréttismenn
SÁÁ hefur Sett Sér nýja jafnréttiSÁætlun. er það í Ágætu Samræmi við enn aukna ÁherSlu Samtakanna
Á vanda kvenna Sem eiga við fíkniSjúkdóma að Stríða og til dæmiS nýStofnað kvenfélag innan SÁÁ
er til markS um; Sem hefur að markmiði að Stuðla að jafnrétti og auknum meðferðarúrræðum fyrir
konur. til þeSS ber þó að líta að jafnrétti hefur verið í Ágætu lagi innan Samtakanna.
Áætlunin er svipuð og hjá öðrum stofnunum
þar sem lögin kveða
á um innihaldið að
stórum hluta. Hjá
SÁÁ hefur alltaf verið
launajafnrétti milli
kynja, þá meina ég
sömu laun fyrir sömu
vinnu. Sem dæmi að
í ráðgjafahópnum,
sem er fjölmennasta
starfsstéttin okkar, er
hlutfall kvenna um 40
prósent sem endur-
speglast líka í dag-
skrárstjórahópnum –
3/7 eru konur,“ segir
Ásgerður Th. Björns-
dóttir, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs
SÁÁ, um nýja jafnrétt-
isáætlun.
„Þá er gaman að
segja frá því að í
stéttum sem hafa
kerfislægt kynjahlut-
fall, eins og hjúkr-
unarfræðingar og
sjúkraliðar, að 13 pró-
sent af starfshópnum
eru karlar. Þá hefur
í langan tíma verið
leitað eftir því að kon-
ur tækju sæti í stjórn
SÁÁ og á síðasta aðal-
fundi tókst sérstak-
lega vel til og margar
ungar konur gáfu kost
á sér. Í dag er tæplega
helmingur af stjórnar-
mönnum SÁÁ konur,“
segir Ásgerður.
Um leið og Þórar-
inn Tyrfingsson, yfir-
læknir á sjúkrahúsinu
Vogi, fagnar nýrri
jafnréttisáætlun telur
hann ekki að hún sem
slík þurfi að taka tillit
til sérþættari atriða
en gengur og gerist.
„Við stöndum betur að
vígi en margar aðrar
stofnanir. Í umönn-
unarstörfum á borð
við þau sem við erum
að vinna, hafa konur
verið í meirihluta. Að
því leyti til stöndum
við vel að vígi.“
Þórarinn segir að
hafa verði í huga að
það var karlahópur
sem fór fremst í stofn-
un samtakanna. „Þau
eru ekki mörg dæmi
um að kallar hafi
tekið sig saman og
orðið baráttuhreyfing
Jafnréttisáætlun
Markmið áætlunarinnar er að stuðla að
jafnri stöðu kvenna og karla hjá SÁÁ og
jöfnum möguleikum kynjanna til að nýta
sér allan rétt sem kveðið er á um í lögum
nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla.
Lögð er áhersla á að yfirmenn hafi frum
kvæði til aðgerða sem hafa ofangreind
markmið að leiðarljósi, gæti kynja
samþættingar við alla stefnumótun og
áætlanagerð og leiti eftir samvinnu og
samábyrgð allra starfsmanna. Hverjum
starfsmanni ber að stuðla að því að jafn
réttisáætlunin sé haldin, m.a. með því að
koma fram við samstarfsmenn, starfsum
sækjendur og viðskiptavini af réttsýni og
óhlutdrægni.
1. Framkvæmd og umfang
1.1 Um áætlunina
Áætlun þessi tekur annars vegar til stjórn
unar stofnunarinnar og starfsmanna og
hins vegar til þjónustu sem stofnunin veitir
viðskiptavinum sínum.
1.2 Jafnréttisnefnd.
Skipa skal jafnréttisnefnd til tveggja ára í
senn. Hlutverk hennar er að fylgjast með
lögum og reglum stjórnvalda varðandi
jafna stöðu kynjanna, fylgja eftir jafnrétt
isáætlun stofnunarinnar, kynna hana og
endurskoða eftir þörfum.
1.3 Nefndir og ráð.
Við skipan í nefndir og ráð á vegum
stofnunarinnar skal leitast við að hafa hlut
fall kynja sem jafnast.
2. Starfsmannastefna, starfsað-
stæður og kjör
2.1 Auglýsingar og ráðningar
Í auglýsingum um starf skal koma fram
hvatning til þess kyns sem er þá í minni
hluta í starfsgreininni eða hvatning um að
konur jafnt sem karlar sæki um starfið.
Þegar ráðið er í stjórnunarstöðu skal þess
gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð
auglýsingar. Við tilfærslur í störfum eða
tímabundnar afleysingar skal einnig gætt
sérstaklega að jöfnum rétti kynjanna.
Jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við
önnur sjónarmið þegar ráðið er í stöður.
Það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi
starfsgrein skal að öðru jöfnu ganga fyrir
við ráðningar þegar umsækjendur eru
jafnhæfir.
2.2 Starfsaðstæður og kjör
Við úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum
og uppsagnir skal þess gætt að kynjum sé
ekki mismunað. Gæta skal þess að konur
og karlar njóti að öllu leyti sambærilegra
kjara og starfsaðstæðna og er í því sam
bandi vísað til laga nr. 10/2008. Það telst
þó ekki mismunun að taka sérstakt tillit til
kvenna vegna þungunar, barnsburðar og
umönnunar ungbarna.
2.3 Launamál
Við ákvörðun og launa og fríðinda skal
þess gætt að kynjum sé ekki mismunað,
sbr. 25. grein laga nr. 10/2008. Í því sam
bandi skal leitast sérstaklega við að meta
jafnt starfssvið, reynslu og menntun karla
og kvenna.
2.4 Vinnutími
Starfsfólk SÁÁ skal eiga kost á sveigjan
legum vinnutíma, hlutastörfum eða
annarri hagræðingu vinnutíma, þar sem
því verður við komið Þannig skal starfsfólki
auðveldað að samræma fjölskylduábyrgð
starfi. Konum og körlum skal einnig gert
kleift að minnka við sig vinnu tímabundið
til að sinna fjölskylduábyrgð, eins og
umönnun barna og sjúkra fjölskyldumeð
lima.
2.5 Endurmenntun
Tryggt verði að bæði kynin eigi sama rétt
til endurmenntunar og starfsþjálfunar svo
og til að sækja námskeið til að auka hæfni
í starfi.
2.6 Vinnuaðstæður
Tryggt verði að vinnuaðstæður henti
báðum kynjum.
2.7 Misbeiting
Telji starfsmaður sé misboðið eða á sér
brotið á grundvelli kynferðis skal honum
tryggður vettvangur til að koma kvörtun
sinni á framfæri.
3. Fræðsla og ráðgjöf
3.1 Fræðsla
Fræðsla um jafnréttismál og leiðir til að
vinna að jafnri stöðu kynjanna skal vera
virkur þáttur í öllu starfi innan SÁÁ.
3.2 Hvatning, jákvæðni, samkennd
SÁÁ skal vinna að því að jafna stöðu
kynjanna og veita starfsmönnum af
báðum kynjum hvatningu til að rækta sín
séreinkenni, jákvæð samskipti kynjanna og
samkennd.
3.3 Ráðgjöf
Einstaklingum, starfsmönnum og stjórn
endum, skal standa til boða ráðgjöf í
jafnréttismálum. Þetta á bæði við um
störf þeirra og starfsaðstæður, s.s. kjör
og samskipti á vinnustað, kynferðislega
áreitni, valdbeitingu og önnur þau mál sem
snúa að jafnrétti og samskiptum kynjanna
á vinnustað.
Kvenfélagið fagnar
nýrri jafnréttisáætlun
Félagar hins nýstofnaða kvenfélags SÁÁ fagna nýrri jafnréttisáætlun
innilega og telja hana mikil-
vægan lið í að skjóta stoðum
undir sitt félag en mark-
mið félagsins eru að vera
velunnari SÁÁ; stuðla að og
styðja við starf að jafnréttis-
málum innan SÁÁ, stofna til
umræðu um konur, fíkn og
ofbeldi og huga að sérstök-
um meðferðarúrræðum fyrir
konur. Félagið vill að komið
sé á samstarfi við stofnanir,
samtök og aðra fagaðila sem
fást við ofbeldi og úrvinnslu
áfalla.
Þó margir vilji meina að
jafnréttismál hafi verið í
ágætu horfi innan samtak-
anna er að mörgu að hyggja í
þessum efnum, atriðum sem
ekki liggja í augum uppi.
Konur dæma sig harðar
en karlar
Guðrún Kristjánsdóttir var
fundarstjóri á stofnfundinum
og hún segist til dæmis hugsi
yfir því að konur séu einung-
is einn þriðji þeirra sem skila
sér í meðferð á Vog: „Því ég
er þess fullviss að þær eru
helmingur þeirra sem eiga
við vímuefnavanda að stríða,“
segir Guðrún. Hún segir að
jafnvel þó konur hafi farið í
auknum mæli að drekka fyrir
framan gluggatjöldin í seinni
tíð, virðist vímuefnaneysla
kvenna meira falin ennþá og
Guðrún Kristjánsdóttir segir nauð
synlegt að beina sjónum að vanda
kvenna innan alkasamfélagsins;
þær eiga við margslungnari vanda
að stríða en karlar.
þær hafa meiri tilhneigingu til að fara út í lyfjaneyslu en
karlar. Og þá er oft erfiðara að ná þeim til baka. „Þótt SÁÁ
hafi sannarlega meðölin til að vinna á lyfjaneyslu kvenna
og bjóði upp á góða kvennameðferð, er alls ekki víst að
þær nái að skila sér í meðferð. Allt liggur þetta ofan á mik-
illi skömm og sektarkennd sem konur burðast mun meira
með en karlar.“
Guðrún segir konur sem eiga við sjúkdóminn að stríða
dæma sig miklum mun harðar en karlarnir. „Það er stund-
um sagt að þeir sem hafi orðið fyrir ofbeldi, annað hvort
beiti aðra því eða sig sjálfa. Konur eru frekar í þeim hópi
að beita sjálfa sig ofbeldi, eða koma illa fram við sjálfar
sig, ofan á allt annað, sem meðal annars stafar af ofbeldi
samfélagsins í þeirra garð, eða ójafnrétti. Það hefur ekki
verið mikið í umræðunni.“
Með alvarlega áfalla-
streituröskun
Hér er ein dæmisaga úr
stutt dæmisaga sem snýr að
þessu: „Nýlega talaði við mig
kona sem hefur farið í marg-
ar meðferðir, og bæði verið
edrú í stuttan tíma og yfir
lengri tímabil, en drukkið
mikið þess á milli. Með ár-
unum hefur líf hennar orðið
dapurlegra og erfiðara og
hún veikari, þannig að hún
endaði í Kvennaathvarfinu,
í þetta sinn eftir hræðilegt
ofbeldissamband. Sjálfsvirð-
ing hennar var 0. Hún er að
koma eins og undan stríði.
Núna hefur hún verið
greind með alvarlega áfalla-
streituröskun. Í Kvennaat-
hvarfinu var hún í fyrsta sinn
spurð af fagfólki út í æsku
sína en hún upplifði mikla
vanrækslu og ofbeldi sem
mótaði hana mjög. Auðvitað
veit ég ekki hvort hún nær að
vera edrú um aldur og ævi en
núna er hún í fyrsta sinn að
fara líka í massíva meðferð
við áfallastreituröskuninni,
sem gæti hugsanlega hjálpað
henni að yfirstíga það að
þurfa að fara ekki að drekka
aftur. Það er allavega afburða
góður árangur af slíkri með-
ferð víða meðfram því að
vinna á fíkn sinni. Okkur
ber skylda til að hugsa líka
um okkar veikasta fólk með
öllum ráðum,“ segir Guðrún
Kristjánsdóttir. - jbg
fyrir sjúklingahóp,
velferðarþjónustu al-
mennt, fremur að það
hafi verið konurnar.
En, SÁÁ gerði þetta;
karlar voru fyrir-
ferðarmiklir í upphafi
og sjúklingar voru
að meirihluta karlar.
Kvensjúklingar áttu
á brattann að sækja í
upphafi en þó má ekki
gleyma því að það
voru mjög kraftmiklar
konur sem voru með
frá upphafi.“
Sérstök kvenna-
meðferð var byggð
upp strax upp úr 1980
og Þórarinn segir að
SÁÁ hafi tileinkað
sér ýmislegt sem þá
var í femínisma, hann
hafi komið snemma
inn í meðferðarsam-
félagið. „Við erum
ofboðslegir jafnræðis-
og jafnréttismenn,“
segir yfirlæknirinn
sposkur: „Þó karlar
hafi verið fyrirferðar-
miklir í stofnuninni
þá hefur þetta vegið
upp á móti. Önnur
atriði er varðar fyrir-
tækið, svo sem jafn-
réttislaunastefna... við
höfum ekki þurft að
hafa miklar áhyggjur
af því. Höfum farið ná-
lægt því sem kveður á
um í kjarasamingum;
hér er ekki greitt fyrir
óunna yfirtíð eða önn-
ur hlunnindi og þetta
hefur leitt til jafn-
ræðis í launum. En
menn verða að vera á
varðbergi í þessu sem
öðru.“
15 2012 OKTÓBER