Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 65
tíska 49Helgin 5.-7. október 2012
Dior kynning dagana 5. og 6. október í Sigurboganum.
Sérfræðingur frá Dior kynnir nýjan farða Diorskin Nude,
ásamt nýrri varalitalínu Dior Rouge Nude.
Komdu og kynntu þér það nýjasta frá Dior í haust.
Glæsilegar gjafir, vertu velkomin.
Sport-tískan
allsráðandi í haust
Á haustin eru það yfirleitt jarðlitirnir sem taka við af æpandi litum sum-arsins og í ár er engin undantekn-
ing,“ segir Bjartur Snorrason, aðstoðarversl-
unarstjóri Gallerí Sautján í Kringlunni. „En
það sem er þó ólíkt með tískunni í ár er hvað
hún einkennist af þessari „sporty“ tísku sem
er um þessar mundir allsráðandi á Norður-
löndunum. New Balance hlaupaskórnir hafa
verið að seljast vel, sem og derhúfur sem við
höfum ekki verið með áður. Prentaðar flíkur
hafa einnig verið mjög áberandi, með alls-
konar mynstrum, og svo er þessi svokallaða
skólapeysa að fara mikið, þessi mjúka og
þægilega, með venjulegu hálsmáli.
Við höfum verið að taka upp yfirhafnir
núna með haustinu og þá helst flíkur í
jarðlitunum. Jakkar með hettum, sem oft
eru síðari að aftan, virðast vera það heitasta
í dag en úlpur og dúnvesti í anda sport-tísk-
unnar eru einnig vinsæl.“
20.995 kr.
20.995 kr.
10.995
kr.
16.665 kr.
Bjartur Snorrason