Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 76
Valgerður
segir
ákveðna
stjúpblindu
einkenna
umræðuna
um stjúp-
tengsl
60 bækur Helgin 5.-7. október 2012
RitdómuR HeRbeRgi
Fimmtíu gráir skuggar
var mest selda bókin í
Eymundsson í síðustu viku.
Mömmuklámið hennar
E L James nýtur því enn
vinsælda meðal íslenskra
bókaunnenda en Létta
leiðin eftir Ásgeir Ólafsson
situr í öðru sæti sölulista
verslunarinnar.
Vinsælt mömmuklám
Metsölubókin Parísarkonan (The Paris Wife) eftir Paulu McLain
er komin út hjá bókaútgáfunni Sölku í þýðingu Herdísar Magneu
Hübner. Hér er um sögulega skáldsögu að ræða um fyrsta hjónaband
Ernests Hemingway þar sem sögusviðið er París á þriðja áratug
tuttugustu aldarinnar. Hadley Richardson var hæglát tuttugu og
átta ára gömul kona sem hafði nánast gefið upp alla von um ást og
hamingju þar til hún kynntist Ernest Hemingway og líf hennar um-
turnaðist. Eftir eldheitt en stormasamt tilhugalíf og brúðkaup, halda
ungu hjónin til Parísar þar sem þau verða miðdepillinn í fjörugum en
hviklyndum vinahópi – hinni sögufrægu „týndu kynslóð“, Gertrude
Stein, Ezra Pound, F. Scott Fitzgerald, Zeldu Fitzgerald og
margra annarra.
Í París vinnur Hemingway meðal annars að skáldsögunni Og sólin rennur upp,
en þar eru fyrirmyndirnar oftar en ekki hið litríka fólk sem þau hjónin umgangast. Á sama tíma
berst Hadley við að halda í sjálfsmynd sína þegar hlutverk hennar sem eiginkona, skáldgyðja
og vinur verður sífellt meira krefjandi.
Umturnað líf með Hemingway
Þrátt fyrir nokkuð blómlega útgáfu á barnabókum síðustu
árin er gott til þess að vita að bókaforlög hafa ekki gleymt
gömlu, góðu barnabókunum. Í fyrra endurprentaði Forlagið
Jón Odd og Jón Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur og nú eru
framhaldsbækurnar, Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna og Enn
af Jóni Oddi og Jóni Bjarna, á leið í verslanir. Bækurnar komu
fyrst út 1975 og 1980 og hafa margsinnis verið endurprentaðar,
síðast 2002 og 2000. Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna er að
koma út í sjöunda sinn og Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna í það
fimmta.
Þar með er ekki allt talið því ungir bókaormar geta sökkt sér í bækur Astridar Lind-
gren, Ronju ræningjadóttur og Bróður minn Ljónshjarta í þýðingu Þorleifs Hauks-
sonar. Bróðir minn Ljónshjarta kom fyrst út 1976 og Ronja kom fyrst út 1981, sama
ár og sænska frumútgáfan. Auk þessa er von á endurútgáfu á Albert eftir Ole Lund
Kirkegaard í þýðingu Þorvaldar Kristinssonar. Bókin hefur aðeins komið út einu
sinni áður, hjá Iðunni 1979, og hefur því verið ófáanleg í hátt í þrjátíu ár.
Sígildar barnabækur aftur fáanlegar
Það er fágætt að finna skáldsögu sem hreyfir svo
við manni við lesturinn að maður getur ekki hætt
að hugsa um hana löngu eftir að henni er lokið.
Herbergi eftir Emma Donoghue er ein þeirra.
Hún segir frá hinum fimm ára Jack og móður
hans sem eru lokuð inni í tíu fermetra herbergi
án alls sambands við umheiminn, utan sjónvarps,
þakgluggans og heimsókna frá „Nick gamla“ sem
kemur í skjóli nætur.
Sagan er sögð frá sjónarhóli Jack sem veit
ekki að það er heimur utan herbergisins en er að
komast á þann aldur að svör móður hans við ótal-
mörgum spurningum hans um lífið og tilveruna
eru hætt að nægja honum.
Donoghue hefur sagt frá því að hugmyndin að
bókinni hafi kviknað út frá máli Joseph Fritzl,
sem hélt dóttur sinni fanginni í kjallara í 24 ár,
nauðgaði ítrekað og eignaðist með henni sjö börn
en læsti þrjú þeirra inni með henni. Fréttir af því
þegar Felix Fritzl, fimm ára sonur Elisabeth, kom
upp úr kjallaranum og leit umheiminn augum í
fyrsta sinn voru innblástur að Herbergi.
Þrátt fyrir hryllinginn sem sagan er sprottin af
fjallar hún fyrst og fremst um ástina milli móður
og barns og hæfileikann til að lifa af. -sda
Hryllingssaga um móðurástina
Herbergi
Emma Donoghue
Ólöf Eldjárn þýddi
Mál og menning, 399 síður, 2012
F jölskyldur eru margbreytilegar og ímyndin um „hefðbundna“ kjarna-fjölskyldu á sannarlega ekki alltaf
við. Stjúpfjölskyldur, þar sem annar eða
báðir aðilar sem til þeirra stofna eiga
barn úr fyrra sambandi, verða stöðugt
algengari og um leið fjölgar þáttum sem
geta valdið óvissu og togstreitu. Aðlögun
að lífi einhleyps foreldris, samskipti
við fyrrverandi maka og óraunhæfar
væntingar geta haft áhrif á hvernig til
tekst. Bæði fullorðnum og börnum líður
stundum eins og þau séu á jaðri fjölskyld-
unnar, þau efast um hlutverk sitt í henni
og hvort þau tilheyri henni í raun.
Þetta kemur fram í væntanlegri bók
um stjúptengsl, skilnað og foreldrasam-
vinnu. Bókin er skrifuð af Valgerði Hall-
dórsdóttur félagsráðgjafa en formálinn af
dr. Sigrúnu Júlíusdóttir. Bókin er byggð
á eigin reynslu höfunda, tiltækum rann-
sóknum og klínískri vinnu með stjúpfjöl-
skyldum. Þetta er jafnframt fyrsta heild-
stæða verkið um stjúptengsl á íslensku.
Valgerður hefur um árabil sérhæft sig í
vinnu með stjúptengsl. „Umræðan hefur
að mestu leyti einskorðast við skilnað
og einstæða foreldra. En það er einungis
tímabundin staða fyrir marga þar sem
flestir eru komnir með nýjan maka innan
fjögurra ára. Stjúptengsl eru nokkuð stór
partur af tilveru íslenskra barna. Skiln-
aðurinn er eitt, en svo er það nýja staðan,
makinn og jafnvel önnur börn. Með út-
gáfu bókarinnar langar mig að koma til
móts við þessar fjölskyldur en ég mun
einnig koma til með að halda námskeið
samhliða útgáfunni,“ segir Valgerður og
bendir áhugasömum á vefsíðuna stjup-
tengsl.is.
Í bókinni segist Valgerður reyna að
bregða upp ólíkri sýn fjölskyldumeðlima á
algengar uppákomur og aðstæður í stjúp-
fjölskyldum. Fjölda dæma er að finna í
hverjum kafla fyrir sig, til skýringar sem
jafnframt má nota til umræðna. Í lok hvers
kafla eru síðan punktar sem geta hjálpað
fólki að finna nýjar leiðir til að takast á við
fjölskyldulífið á uppbyggilegan máta.
Valgerður segir ákveðna stjúpblindu
einkenna umræðuna um stjúptengsl og í
hugum fólks sé orðið „stjúp“ oftar en ekki
neikvætt, það megi jafnvel sjá í barnaæv-
intýrum. Bókin er í níu köflum og í hverj-
um þeirra er ákveðið málefni eða staða
tekin fyrir. Valgerður segir að bókinni sé
ekki ætlað að svara öllum þeim spurn-
ingum sem upp koma í stjúpfjölskyldum
en gæti aukið skilnings fólks á aðstæðum
sínum og sýnt fram á hvernig styrkja má
stjúpfjölskylduna. Finna má kafla í bók-
inni allt frá fjármálum og almennum hlut-
verkum innan heimilisins til samskipta
stjúpsystkina og kynferðislegrar spennu
sem upp kann að koma þeirra á milli.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
stjúpFjölskylduR öR Fjölgun á Íslandi
Valgerður Halldórsdóttir félagsfræðingur hefur skrifað bók um stjúptengsl sem kemur út um miðjan mánuðinn.
Kortleggur líf stjúpfjöl-
skyldna á Íslandi í nýrri bók
„Stjúpfjölskylda er fjölskylda þar sem annar eða báðir aðilar sem til hennar stofna, eiga
barn eða börn með öðrum aðila/um.“ Þetta segir Valgerður Halldórsdóttir, félagsfræðingur
en hún gefur út bók um stjúptengsl um miðjan mánuðinn. Þetta er í fyrsta sinn sem bók af
þessu tagi er gefin út á Íslandi. Valgerður segir að orðið „stjúp“ hafi neikvæða merkingu í
hugum margra. Því vill hún breyta þar sem stjúptengsl verða sífellt algengari hér á landi.
Emma Donoghue.