Fréttatíminn - 05.10.2012, Síða 78
Þ að var ekki ég sló í gegn í Þýskalandi 2010 en áður hafði Kristof sent frá sér skáldsöguna Zuhause sem gerðist á Íslandi og í Þýskalandi.
Það var ekki ég er fyrsta bók Kristofs sem kemur út á
íslensku og höfundinum þykir að vonum vænt um það.
„Þetta er ansi flott og mér finnst mjög skemmtilegt
að nú geti ættingjar mínir og vinir á Íslandi loksins
lesið eitthvað eftir mig,“ segir Kristof sem er á Íslandi
í tilefni útgáfunnar. „Ég hef í mörg ár einhvern veginn
bara sagt fólki hérna frá því sem ég er að gera en hef
aldrei beinlínis getað sannað fyrir þeim að ég sé rit-
höfundur,“ segir Kristof og hlær. „Ég gæti alveg hafa
verið að ljúga þessu árum saman en nú get ég loksins
sannað að ég sé í alvörunni rithöfundur.“
Kristof hefur lengst búið á Íslandi í eitt ár þegar
hann var skiptinemi hérna frá háskólanum í Leipzig.
„Ég bjó aldrei hérna á meðan ég var krakki en kom
hingað oft. Ég talaði við pabba minn sem býr í Ham-
borg og svo fór ég í málfræði við háskólann í Berlín
þar sem ég lærði viðtengingarháttinn og allt þetta,“
segir Kristof á sinni fínu íslensku en hann hefur
meðal annars fengist við þýðingar á verkum íslenskra
rithöfunda á þýsku.
Kristof fylgdist vel með ástandinu á Íslandi í kjölfar
efnahagshrunsins og skrifaði meðal annars um hrun-
ið hérna fyrir þýsku útgáfuna af The Financial Times
og Die Welt. „Ég reyndi að greina það sem hafði gerst
og einnig að spá eitthvað um framtíðina. Ég leyfði mér
nú smá bjartsýni þá og er svolítið stoltur af því að eitt-
hvað af því hefur ræst.“
Kristof segir hrunið ekki hafa valdið nándar nærri
eins miklum skaða í Þýskalandi og hér en engu að
síður gæti áhrifa þess og þá ekki síst í þjóðarsálinni.
„Það má segja að það séu alltaf læti í Þýskalandi
vegna þess að þar er fólk mjög upptekið af því að hafa
áhyggjur af öllu. Ég man samt ekki til þess að efna-
hagurinn hafi nokkru sinni verið betri í Þýskalandi en
núna en Þjóðverjar eru bara svo mikið fyrir að sækja
sér orku í svartsýni frekar en bjartsýni. Það hefur
kannski ekkert gerst en samt eru allir hræddir um að
heimurinn muni bara enda á morgun.“
Kristof segist alla tíð hafa séð Íslendinga sem já-
kvætt og bjartsýnt fólk og sér hafi því óneitanlega
verið nokkuð brugðið þegar hann kom hingað í
nóvember 2008. „Ýmislegt hefur breyst hérna og nú
er þessi hræðsla komin hingað líka. Eitthvað sem ég
hef aldrei skynjað hér áður. Ég vissi ekkert hverju ég
mætti búast við þegar ég kom hingað. Ég vissi ekki
einu sinni hvort manni væri óhætt að ganga hér um að
næturlagi. Þetta var aðallega skrýtin tilfinning.“
Ísland kom við sögu í fyrstu skáldsögu Kristofs
sem hann skrifaði að mestu á meðan hann dvaldi á
landinu. „Kannski var ég að leita að rótum mínum eða
eitthvað í þá áttina.“ Það var ekki ég gerist hins vegar
í Þýskalandi og í Chicago og Ísland kemur ekki fyrir
í bókinni sem hann er að skrifa þessa dagana enda
segist Kristof ekki vilja vera eins og einhver „Íslands
frændi“ sem sé stöðugt að tala um landið. Hann úti-
lokar þó alls ekki að Ísland muni verða sögusvið hjá
honum síðar. „Ég gæti alveg ímyndað mér það enda er
Ísland mér alltaf mjög mikilvægt.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Ljósvíkingur – ársæLL níeLsson Leikur einLeik um skáLdið á Þröm
Saga Magnúsar sorglega lítið þekkt
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði, í samvinnu
við Norðurpólinn frumsýnir einleik
um skáldið Magnús Hj. Magnússon á
sunnudag. Höfundar verksins eru þeir
Ársæll Níelsson og Elfar Logi Hannes-
son. Í verkinu hittum við fyrir skáldið
sjálft þar sem hann afplánar dóm. Hann
leiðir áhorfendur í sannleikann um líf
sitt og þrautagöngu en alþýðuskáldið
Magnús Hj. Magnússon lifði átakan-
legu lífi. Magnús ritaði dagbækur frá
unga aldri þar sem hann greinir ná-
kvæmlega frá sorg og gleði í sínu lífi
og viðburðum úr daglega lífinu. Strax í
æsku urðu foreldrar hans að láta hann
frá sér og þar með hófst þrautaganga
ljósvíkingsins sem tók aldrei enda.
Ársæll Níelsson, annar höfunda
verksins og jafnframt eini leikari þess,
segir að saga Magnúsar eigi brýnt
erindi við Íslendinga. „Mér fannst svo
merkilega fáir vita af því að á bak við
skáldsagnarpersónuna Ólaf Kárason
var raunverulegur maður, Magnús
Hj. Hann lifði ótrúlega ævi, veiktist
alvarlega sem barn og var í sveitarskuld
allt sitt líf. Hann var einskis metinn af
samtímafólki sínu, en samt mikill dugn-
aðarforkur. Hann skrifaði dagbækur frá
sautján ára aldri allt til dauðadags og
bækurnar eru mögnuð sagnaheimild,
ekki aðeins um skáldið sjálft heldur
einnig um þjóð sem að er að brjóta sér
leið inn í nútímann.“
Ársæll er sjálfur búsettur á Suðureyri
en þar eyddi skáldið Magnús síðustu
árum sínum og átti þar í fyrsta sinn
heimili. „Héðan kom nafnið, skáldið
á Þröm, og fólkið á Suðureyri var nær
eina fólkið sem að tók Magnúsi eins
og hann var. Hér eignaðist hann vini
og heimili og hér voru dagbækur hans
varðveittar lengi vel. Mér finnst mikil-
vægt að hann fái þá umfjöllun sem hann
á skilið.“
María Lilja
Þrastardóttir
marialilja@
frettatiminn.is
Ársæll Níelsson
er annar höfunda
verksins og eini
leikari þess. Ljós-
mynd/Hari
kristof magnusson gefinn út á ísLensku
Bókin er sönnunar-
gagn fyrir ættingja
Kristof segir hrunið hafa haft lítil áhrif á sig persónulega. „Vegna þess að í bókmenntunum er
aldrei uppsveifla og þar af leiðandi aldrei kreppa heldur. Enginn í bransanum gerir ráð fyrir að
græða ofboðslega mikinn pening.“ Ljósmynd/Hari
Það var ekki ég
Skáldsagan Það var ekki ég fékk fína dóma í Þýskalandi
þegar hún kom út þar árið 2010. Irene Balzinger, gagnrýnd-
andi Frankfurter Allgemeine, sagði bókina meðal annars
hrífa lesandann með „einstaklega fyndnum og snjöllum
söguþræði og fáguðum og trúverðugum persónum.“
Sögur og örlög þriggja manneskja fléttast saman í bókinni.
Þau lenda í ótrúlegum og óvæntun ævintýrum og ástin setur
strik í reikninginn.
Jasper er ungur bankamaður í Chigaco sem virðist eiga sér
glæsilega framtíð í vændum. Meike er bókmenntaþýðandi
á hröðum flótta frá hönnuðu lífi efnaðs menntafólks í
Hamborg og Henry er heimsfrægur verðlaunahöfundur sem
er þjakaður af ritstíflu og ótta við ellina.
Þýsk-íslenski rithöf-
undurinn Kristof
Magnusson fagnar
því að skáldsaga
hans Das war ich
nicht er komin út
á íslensku. Kristof
talar góða ís-
lensku og er tíður
gestur á landinu.
Í Það var ekki ég
sýnir Kristof hversu
fljótlegt er að
rústa bæði banka
og vel skipulögðu
lífi. Hrunið er því
undirliggjandi en
höfundurinn fylgd-
ist steini lostinn
með Búsáhalda-
byltingunni árið
2008.
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
„Ein mikilvægasta bók
undanfarandi ára!“
Gauti Kristmannsson, RÚV
„Bókin er fádæma frumleg
og skrifuð af mikilli íþrótt.“
Stefán Snævarr, pressan.is
„Þessi bók er algjört bíó.“
Guðmundur Andri Thorsson, Fréttablaðið
„… aðdáanleg framsetning á
mjög mikilsverðu efni …“
Örn Ólafsson, smugan.is
„Hugmyndaauðgin í framsetning-
unni er mikil og þekkingin víðfeðm
og djúp. Frábær bók.“
Þorgeir Tryggvason, facebook.com
„… mikið verk, stútfullt af leiftrandi
ritsnilld …“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttatíminn
Brotabrot úr
afrekasögu
frjálshyggjunnar
Einar Már Jónsson
ÖRLAGABORGIN
62 menning Helgin 5.-7. október 2012