Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Qupperneq 78

Fréttatíminn - 05.10.2012, Qupperneq 78
Þ að var ekki ég sló í gegn í Þýskalandi 2010 en áður hafði Kristof sent frá sér skáldsöguna Zuhause sem gerðist á Íslandi og í Þýskalandi. Það var ekki ég er fyrsta bók Kristofs sem kemur út á íslensku og höfundinum þykir að vonum vænt um það. „Þetta er ansi flott og mér finnst mjög skemmtilegt að nú geti ættingjar mínir og vinir á Íslandi loksins lesið eitthvað eftir mig,“ segir Kristof sem er á Íslandi í tilefni útgáfunnar. „Ég hef í mörg ár einhvern veginn bara sagt fólki hérna frá því sem ég er að gera en hef aldrei beinlínis getað sannað fyrir þeim að ég sé rit- höfundur,“ segir Kristof og hlær. „Ég gæti alveg hafa verið að ljúga þessu árum saman en nú get ég loksins sannað að ég sé í alvörunni rithöfundur.“ Kristof hefur lengst búið á Íslandi í eitt ár þegar hann var skiptinemi hérna frá háskólanum í Leipzig. „Ég bjó aldrei hérna á meðan ég var krakki en kom hingað oft. Ég talaði við pabba minn sem býr í Ham- borg og svo fór ég í málfræði við háskólann í Berlín þar sem ég lærði viðtengingarháttinn og allt þetta,“ segir Kristof á sinni fínu íslensku en hann hefur meðal annars fengist við þýðingar á verkum íslenskra rithöfunda á þýsku. Kristof fylgdist vel með ástandinu á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins og skrifaði meðal annars um hrun- ið hérna fyrir þýsku útgáfuna af The Financial Times og Die Welt. „Ég reyndi að greina það sem hafði gerst og einnig að spá eitthvað um framtíðina. Ég leyfði mér nú smá bjartsýni þá og er svolítið stoltur af því að eitt- hvað af því hefur ræst.“ Kristof segir hrunið ekki hafa valdið nándar nærri eins miklum skaða í Þýskalandi og hér en engu að síður gæti áhrifa þess og þá ekki síst í þjóðarsálinni. „Það má segja að það séu alltaf læti í Þýskalandi vegna þess að þar er fólk mjög upptekið af því að hafa áhyggjur af öllu. Ég man samt ekki til þess að efna- hagurinn hafi nokkru sinni verið betri í Þýskalandi en núna en Þjóðverjar eru bara svo mikið fyrir að sækja sér orku í svartsýni frekar en bjartsýni. Það hefur kannski ekkert gerst en samt eru allir hræddir um að heimurinn muni bara enda á morgun.“ Kristof segist alla tíð hafa séð Íslendinga sem já- kvætt og bjartsýnt fólk og sér hafi því óneitanlega verið nokkuð brugðið þegar hann kom hingað í nóvember 2008. „Ýmislegt hefur breyst hérna og nú er þessi hræðsla komin hingað líka. Eitthvað sem ég hef aldrei skynjað hér áður. Ég vissi ekkert hverju ég mætti búast við þegar ég kom hingað. Ég vissi ekki einu sinni hvort manni væri óhætt að ganga hér um að næturlagi. Þetta var aðallega skrýtin tilfinning.“ Ísland kom við sögu í fyrstu skáldsögu Kristofs sem hann skrifaði að mestu á meðan hann dvaldi á landinu. „Kannski var ég að leita að rótum mínum eða eitthvað í þá áttina.“ Það var ekki ég gerist hins vegar í Þýskalandi og í Chicago og Ísland kemur ekki fyrir í bókinni sem hann er að skrifa þessa dagana enda segist Kristof ekki vilja vera eins og einhver „Íslands frændi“ sem sé stöðugt að tala um landið. Hann úti- lokar þó alls ekki að Ísland muni verða sögusvið hjá honum síðar. „Ég gæti alveg ímyndað mér það enda er Ísland mér alltaf mjög mikilvægt.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Ljósvíkingur – ársæLL níeLsson Leikur einLeik um skáLdið á Þröm Saga Magnúsar sorglega lítið þekkt Kómedíuleikhúsið á Ísafirði, í samvinnu við Norðurpólinn frumsýnir einleik um skáldið Magnús Hj. Magnússon á sunnudag. Höfundar verksins eru þeir Ársæll Níelsson og Elfar Logi Hannes- son. Í verkinu hittum við fyrir skáldið sjálft þar sem hann afplánar dóm. Hann leiðir áhorfendur í sannleikann um líf sitt og þrautagöngu en alþýðuskáldið Magnús Hj. Magnússon lifði átakan- legu lífi. Magnús ritaði dagbækur frá unga aldri þar sem hann greinir ná- kvæmlega frá sorg og gleði í sínu lífi og viðburðum úr daglega lífinu. Strax í æsku urðu foreldrar hans að láta hann frá sér og þar með hófst þrautaganga ljósvíkingsins sem tók aldrei enda. Ársæll Níelsson, annar höfunda verksins og jafnframt eini leikari þess, segir að saga Magnúsar eigi brýnt erindi við Íslendinga. „Mér fannst svo merkilega fáir vita af því að á bak við skáldsagnarpersónuna Ólaf Kárason var raunverulegur maður, Magnús Hj. Hann lifði ótrúlega ævi, veiktist alvarlega sem barn og var í sveitarskuld allt sitt líf. Hann var einskis metinn af samtímafólki sínu, en samt mikill dugn- aðarforkur. Hann skrifaði dagbækur frá sautján ára aldri allt til dauðadags og bækurnar eru mögnuð sagnaheimild, ekki aðeins um skáldið sjálft heldur einnig um þjóð sem að er að brjóta sér leið inn í nútímann.“ Ársæll er sjálfur búsettur á Suðureyri en þar eyddi skáldið Magnús síðustu árum sínum og átti þar í fyrsta sinn heimili. „Héðan kom nafnið, skáldið á Þröm, og fólkið á Suðureyri var nær eina fólkið sem að tók Magnúsi eins og hann var. Hér eignaðist hann vini og heimili og hér voru dagbækur hans varðveittar lengi vel. Mér finnst mikil- vægt að hann fái þá umfjöllun sem hann á skilið.“ María Lilja Þrastardóttir marialilja@ frettatiminn.is Ársæll Níelsson er annar höfunda verksins og eini leikari þess. Ljós- mynd/Hari  kristof magnusson gefinn út á ísLensku Bókin er sönnunar- gagn fyrir ættingja Kristof segir hrunið hafa haft lítil áhrif á sig persónulega. „Vegna þess að í bókmenntunum er aldrei uppsveifla og þar af leiðandi aldrei kreppa heldur. Enginn í bransanum gerir ráð fyrir að græða ofboðslega mikinn pening.“ Ljósmynd/Hari Það var ekki ég Skáldsagan Það var ekki ég fékk fína dóma í Þýskalandi þegar hún kom út þar árið 2010. Irene Balzinger, gagnrýnd- andi Frankfurter Allgemeine, sagði bókina meðal annars hrífa lesandann með „einstaklega fyndnum og snjöllum söguþræði og fáguðum og trúverðugum persónum.“ Sögur og örlög þriggja manneskja fléttast saman í bókinni. Þau lenda í ótrúlegum og óvæntun ævintýrum og ástin setur strik í reikninginn. Jasper er ungur bankamaður í Chigaco sem virðist eiga sér glæsilega framtíð í vændum. Meike er bókmenntaþýðandi á hröðum flótta frá hönnuðu lífi efnaðs menntafólks í Hamborg og Henry er heimsfrægur verðlaunahöfundur sem er þjakaður af ritstíflu og ótta við ellina. Þýsk-íslenski rithöf- undurinn Kristof Magnusson fagnar því að skáldsaga hans Das war ich nicht er komin út á íslensku. Kristof talar góða ís- lensku og er tíður gestur á landinu. Í Það var ekki ég sýnir Kristof hversu fljótlegt er að rústa bæði banka og vel skipulögðu lífi. Hrunið er því undirliggjandi en höfundurinn fylgd- ist steini lostinn með Búsáhalda- byltingunni árið 2008. OREO BANANA SÚKKULAÐIKAKA Sími: 561 1433 Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja sulta , ba nan ar og O re ok ex . Opnunartími: mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00 P R E N T U N .IS „Ein mikilvægasta bók undanfarandi ára!“ Gauti Kristmannsson, RÚV „Bókin er fádæma frumleg og skrifuð af mikilli íþrótt.“ Stefán Snævarr, pressan.is „Þessi bók er algjört bíó.“ Guðmundur Andri Thorsson, Fréttablaðið „… aðdáanleg framsetning á mjög mikilsverðu efni …“ Örn Ólafsson, smugan.is „Hugmyndaauðgin í framsetning- unni er mikil og þekkingin víðfeðm og djúp. Frábær bók.“ Þorgeir Tryggvason, facebook.com  „… mikið verk, stútfullt af leiftrandi ritsnilld …“ Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttatíminn Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar Einar Már Jónsson ÖRLAGABORGIN 62 menning Helgin 5.-7. október 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.