Fréttatíminn - 05.10.2012, Page 84
Í takt við tÍmann Ásgeir Orri ÁsgeirssOn
Kærastan vill að ég hætti
að klæða mig eins og unglingur
Ásgeir Orri Ásgeirsson er 22 ára Valsari sem fluttist ungur í Fossvoginn. Hann er hluti af upptökuteyminu
StopWaitGo sem hefur vakið mikla athygli í poppheiminum síðustu ár. Ásgeir og félagar flytjast á næstu vikum
til Los Angeles þar sem þeir eru komnir með atvinnuleyfi og ætla að reyna fyrir sér í deild hinna stóru.
Ásgeir Orri er tónlistarmaður og
upptökustjóri í StopWaitGo. Hann og
félagar hans flytja til Los Angeles á
næstunni þar sem þeir ætla að reyna
að koma sér á framfæri. Ljósmynd/Hari
Staðalbúnaður
Ég kaupi mikið af fötum í Topman, Ri-
ver Island, Zöru og Levi’s. Ég geng
í Converse-skóm, með G-Shock-úr
og nota oft húfur. Kærastan mín
vill samt að ég hætti að klæða mig
eins og unglingur. Hún fór eitthvað að
tala um það eftir að byrjuðum að horfa
á Suits. Kannski maður fari að skipta
yfir í Boss eða Armani.
Hugbúnaður
Ég fer oft í bíó og ég er alger þátta-
sjúklingur. Ég get valið nýja uppá-
haldsþætti í hverri viku. Ef ég á hins
vegar að velja svona almennt verð ég
að nefna Parks and Recreation fyrir
grínið og Breaking Bad fyrir dramað.
Og svo kannski Dexter og Suits.
Annars er ég einmitt að leita mér að
nýjum þáttum núna. Ég fer ekki mikið
niður í bæ að djamma en þegar ég fer
á barinn panta ég mér undantekninga-
laust bjór. Ég er voða illa að mér þegar
kemur að börum, ég elti bara félagana
á b5, English Pub eða Laundromat. Ég
fylgist mikið með enska boltanum en
fer aldrei á kaffihús. Mér bara dettur
ekki í hug að fara á kaffihús og hanga,
það er ekki til í minni orðabók.
Vélbúnaður
Ég er með fimmtán tommu Macbook
Pro en er að fara að uppfæra í Retina
Display. Ég verð líka að uppfæra úr iP-
hone 4 í iPhone 5. Ég ólst upp við PC-
tölvur en hef verið Mac-maður síðustu
fjögur eða fimm árin. Ég er ekki mikið
í tölvuleikjum í símanum, aðeins í
Temple Run, en nota Instagram, skoða
tölvupóstinn, fylgist með Billboard og
í sumar notaði ég hjólaforritið Strava
sem var gott til að fylgjast með árangr-
inum. Ég er á Twitter og nota það til
að tékka á áhugaverðu fólki. Svo er ég
auðvitað á Facebook, á 1.444 vini sem
er auðvitað allt of mikið. Ég keypti
mér Playstation-tölvu í fyrravetur og
hef ekki farið úr henni síðan. Ég spila
eiginlega bara FIFA.
Aukabúnaður
Mér finnst mjög gaman að setjast
niður og borða á Vegamótum. Ég er
reyndar svo vanafastur að mér finnst
ég hafa farið þangað síðustu fimmtíu
skiptin sem ég hef borðað úti. Maður
finnur sér bara góðan rétt og heldur
sig við hann. Mér finnst líka fínt að
borða á Eldsmiðjunni niður í bæ. Í
sumar fór ég á Þjóðhátíð og í nokkrar
útilegur. Eftirminnilegast var þegar
ég tjaldaði uppi á einhverju fjalli með
kærustunni, það var mikið ævintýri.
Félagsþroski stórs hluta mannkyns
hefur tekið slíkum stökkbreyting-
um á liðnum árum að nú þykir ekki
lengur hallærislegt að vera nörd.
Eiginlega þykir það bara vera svo-
lítið smart enda nördar upp til hópa
ljúft og gott fólk, gáfað og mjög ein-
beitt og trúfast öllum krúttlegu dell-
unum sínum.
Myndasöguráðstefnan Comic-
Con, sem haldin er árlega í San
Diego í Bandaríkjunum, er fyrir-
heitna landið í hugum flestra nörda.
Þar koma saman þekktir leikarar,
myndasöguhöfundar, leikstjórar
og aðdáendur þeirra tugþúsundum
saman og njóta þess að nördast í
öruggu umhverfi. Comic-Con er eins
og risastór AA-fundur þar sem allt
þetta fólk mætist á jafningjagrund-
velli og samhæfir reynslu sína, styrk
og vonir fordómalaust. Þarna eru
allir vinir og meira að segja Trekk-
arar og Star Wars-lúðar geta gengið
um draumaveröldina hönd í hönd.
Nördar eru friðsamlegt fólk sem ætti
auðvitað að stjórna heiminum.
Á Comic-Con er höndlað með
myndasögur, kvikmyndafyrirtæki
kynna væntanlegar nörda-myndir,
kaupir og selur leikföng sem það
mun aldrei taka úr umbúðunum.
Fólk mætir í grímubúningum og
reynir að koma sér á framfæri og fá
tækifæri til þess að fá störf hjá af-
þreyingarrisum sem í raun stjórna
lífi þess.
Morgan Spurlock gefur okkur
bráðskemmtilega innsýn inn í nörda-
heimana og þessa mögnuðu sam-
komu í heimildarmyndinni Comic-
Con Episode IV: A Fan's Hope. Þarna
tjá nördarnir sig auk allra helstu
kempnanna í myndasögu- og kvik-
myndabransanum og einhvern veg-
inn er það fullorðnum manni eins og
mér huggun og réttlæting að menn
á borð við Eli Roth og Guillermo del
Toro eigi enn nördaleikföng æsku
sinnar, skammist sín ekkert fyrir
það og séu enn að safna. Þegar mað-
ur horfir á þessa mynd finnur maður
áþreifanlega fyrir því að maður er
ekki einn í heiminum
Spurlock vakti fyrst verulega at-
hygli með myndinni Supersize Me
þar sem hann nánast át sig í hel með
stórum Mc Donalds-máltíðum. Hann
á það til að vera of áberandi og þreyt-
andi í myndum sínum en hér stígur
hann blessunarlega til hliðar og leyf-
ir nördunum að eiga sviðið.
Styrkur myndarinnar liggur síðan
fyrst og fremst í því að hann einblín-
ir ekki aðeins á Comic-Con heldur
fylgir nokkrum lúðum eftir og segir
sögur þeirra sem eru fyndnar, fal-
legar, dálítið átakanlegar en fyrst og
fremst sannar. Eins og nördar eru
almennt. Þórarinn Þórarinsson
BÍó COmiC-COn episOde iv: a Fan’s HOpe
Nördar allra heima...
68 dægurmál Helgin 5.-7. október 2012