Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 86

Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 86
„Ástin er sérstakt fyrirbæri og það er gott að elska,“ segir Högni Gunnarsson, eigandi kaffihússins Kaffi Ást sem opnaði á Akranesi í byrjun júní á þessu ári. Staðurinn stendur undir nafni og er þetta hlýlegur staður þar sem ástin ríkir innandyra. Heimabakaðar kökur, sem oft eru hjartalaga og fullar af ást, eru á boðstólum, ásamt hefðbundnum mat á borð við hamborgara, samlokur og sushi. „Andrúmsloftið hérna er heimilislegt og við leggjum okkur fram með að koma veitingunum frá okkur af mikilli ást. Óhefðbundnar innréttingar eiga einnig stóran hlut í einstakri upplifun viðskiptavinarins, en innrétting- arnar eru sérsmíðaðar af okkur hjónum.“ Síðastliðin 25 ár hefur Högni unnið hjá Loftorku á Akranesi og fannst honum orðið tímabært að sinna draumum eiginkonunnar. „Í fyrstu ætluðum við að opna gallerí með verkum konu minnar, Elenu Kozlova, en sáum svo fram á að við myndum ekki lifa á því einu og sér. Þannig kviknaði hugmyndin að kaffihúsinu sem við opnuðum ásamt galleríinu. Hugmyndin að nafninu kom svo síðar meir og þar sem ég elska kaffi og elska að elska, þá var þetta tilvalið nafn.“ Galleríið á Kaffi Ást samanstendur af fjölbreytt- um verkum Elenu, bæði málverkum sem hanga á veggjunum og skartgripum sem unnir eru úr stein- um. „Við erum dugleg að fara upp á fjöll og tína steina þegar við eigum frí og hjálpumst svo að við að slípa þá og saga. Úr þeim vinnur Elena svo skart- gripina.“ Kolbrún Pálsdóttir kolbrun@ frettatiminn.is Högni og Elena reka Kaffi Ást á Akranesi. Þau sérsmíðuðu og hönnuðu innréttingarnar á kaffihúsinu.  Kaffi ást Högni og ElEna létu drauminn rætast Ástfangin á Kaffi Ást V ið ætlum að taka þátt aftur. Við enduðum í öðru sæti í fyrra og ætlum að vinna núna,“ segir Hanna Rún sem er svo margfaldur Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum að vart verður komið tölu á alla þá titla sem hún hefur hlotið. „Við dönsuðum sömbu í fyrra þannig að núna ætl- um við að sýna eitthvað allt annað svo fólk sjái nú að samban er ekki það eina sem við kunnum.“ Hanna Rún og Sigurður hafa dansað saman lengi og keppt á fjölda stórmóta í útlöndum og Hanna segir að með réttu ættu þau að vera á lista yfir 50 bestu sam- kvæmisdanspörin i heiminum en kostnaðurinn við ferðalög á stór stigamót hafi haldið þeim niðri. Sigurður fékk síðan blóðtappa í vor og þau óvæntu veikindi settu keppnisáætlun parsins fyrir árið algerlega úr skorðum. „Siggi fékk blóðtappa í apríl og mátti ekkert gera. Hann var á gjörgæslu heillengi og ég gisti hjá honum á meðan hann lá þar og við höfum ekkert getað dansað fyrr en núna. Við misstum af öllum mótum. Heimsmeistaramótinu, heimsbikarmótinu, Evrópumeist- aramótinu, Evrópubikarmótinu og öllum þessum stærstu mótum sem við áttum að fara á,“ segir Hanna Rún og bætir við að Dans, dans, dans gefi þeim því kærkomið tæki- færi til þess að byrja aftur. „Þegar við fréttum að Dans, dans, dans yrði aftur á dagskrá fannst okkur tilvalið að skrá okkur aftur til leiks. Læknarnir vildu ekki leyfa Sigga að fara á mót en gáfu grænt ljós á Dans, dans, dans vegna þess að það er allt öðru- vísi. Á mótum dönsum við kannski fimmtíu dansa á einum degi en það er allt annað að dansa atriði sem er ein og hálf til tvær mínútur.“ Hanna Rún segir þau ekki hafa  dans, dans, dans Hanna rún og siggi snúa aftur Stíga fyrstu sporin eftir blóðtappa Sigga Hanna Rún mætir örugg til leiks í Dans, dans, dans þótt hún og Sigurður hafi ekki getað dansað saman í hálft ár. „Þetta var líka svo skemmtilegt í fyrra og fólkið sem vinnur við þáttinn alveg frábært. Ég var farin að sakna þeirra og það er ótrúlega gaman að sjá þau öll aftur.“ Ljósmynd/Hari Dansparið öfluga Hanna Rún Óladóttir og Sigurður Þór Sigurðsson vakti mikla athygli þegar það steig funheita sömbu í sjónvarpsþættinum Dans, dans, dans í fyrra. Samban skilaði þeim öðru sætinu í þættinum. Sigurður fékk blóðtappa í apríl og þau hafa því ekkert getað dansað í hálft ár en ætla engu síður að taka aftur þátt í Dans, dans, dans. Og nú á að dansa til sigurs. viljað gera mikið með blóðtappa Sigurðar vegna þess að „við viljum enga vorkunn og samúðar- stig. Við viljum fá atkvæði fyrir að vera bestu dansararnir.“ Þegar Hanna Rún og Sigurður stigu á svið í prufunum fyrir Dans, dans, dans á dögunum var liðið hálft ár upp á dag frá því þau dönsuðu síðast saman. „Við þótt- um bara ferskari og kraftmeiri en síðast ef eitthvað er. Kannski vegna þess að við erum orðin svo ótrúlega hungruð núna. Við vor- um náttúrlega búin að vera að æfa og keppa í svaka törn þegar við tókum þátt í fyrra þannig að það var komin pínu þreyta í okkur. Við erum kannski ferskari núna og gleðin skín meira í gegn.“ Hanna Rún segir dansfélag- ann vera í merkilega góðu formi miðað við það sem á undan er gengið. „Hann er búinn að vera ofboðslega duglegur. Hann er líka ofvirkari en allt og á erfitt með að vera kyrr þannig að hann er búinn að vera að stelast í rækt- ina og til þess að hlaupa þótt hann hafi ekki mátt það vegna þess að hann er á blóðþynnandi lyfjum. Við erum í góðu formi og vorum alveg til í þetta og getum ekki beðið eftir að þetta fari almenni- lega í gang.“ Fyrsti þáttur Dans, dans, dans verður sýndur í Ríkissjónvarpinu þann 20. október. Þá verður sýnt frá áheyrnarprufunum en ballið byrjar síðan fyrir alvöru í beinni útsendingu viku síðar. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Hann er búinn að vera of- boðslega duglegur. Hann er líka of- virkari en allt og á erfitt með að vera kyrr. Létt leið úr skugga holdsins Vinsældir „mömmuklámbókarinnar“ 50 gráir skuggar hafa vart farið fram hjá mörgum. Bókin trónir á metsölulistum víða um heim og selst eins og heitar lummur á Íslandi. Þeir sem sjá í þessu merki um hnignandi siðgæði geta huggað sig við að bókin Létta leiðin, eftir Ásgeir Ólafsson, hélt skuggunum í öðru sæti á sölulista Ey- mundsson í síðustu viku. Í bókinni kynnir Ásgeir hugmyndir sínar um hvernig má ná af sér óþarfa kílóum á þægilegan hátt. Bókin hefur selst vel og þriðja prentun er væntanleg þannig að hér er ef til vill vís- bending um að Íslendingar hafi ekki síður áhuga á því að losna við holdið frekar en einungis að velta sér upp úr því. Hvað er málið? Í kvöld fer í loftið á Rás 1 nýr unglingaþáttur þar sem fjallað verður um kvikmyndir, bækur, tónlist, tækni, menningu og allt það sem unglingar hafa áhuga á. Þátturinn heitir Hvað er málið? og dag- skrárgerðin er í höndum unglinga á aldrinum fjórtán til fimmtán ára en kynnar og umsjónar- menn þáttarins eru Valtýr Örn Kjartansson og Ugla Collins. Þá verða Ágúst Elí Ágústsson og Ari Páll Karlsson með regluleg innslög um kvikmyndir og fleira, en þeir eru jafnframt hluti af JÁ Myndum sem hafa gert mörg vinsæl myndbönd á YouTube, þar á meðal Jokevision og USB vandræði. Catalinu líst illa á Sérstök sakamál Skjár einn ætlar síðar í þessum mánuði að endur- vekja hina vinsælu sjón- varpsþætti Sönn íslensk sakamál. Fyrsti þátturinn fjallar um morðið og leitina að Sri Rahamawati en flest málin eru nýleg. Einn þátturinn fer yfir mál Catalinu Mikue Ncogo sem vakti mikla athygli þegar upp komst um umfangsmikla vændis- starfsemi hennar. Máli hennar lauk þegar hún fékk fangelsisdóm fyrir hórmang og fleiri brot. Hún hefur setið af sér dóminn og kærir sig lítið um að mál hennar verði rifjað upp enda hafi hún fengið nóg af því að vera í kastljósi fjölmiðla og milli tannanna á fólki. 70 dægurmál Helgin 5.-7. október 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.