Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.1929, Síða 23

Læknablaðið - 01.05.1929, Síða 23
LÆICNABLAÐIÐ 77 mig því ca. 160—170 kr. á mán. frá því i nóv.-lok og þar til í maí, a'Ö eg fékk húsnæÖi svo að eg sá mér fært að flytja fjölskylduna norður. Allan þann tíma varð eg að kosta fjölskyldu mina í Reykjavik. Húsaleiga þar var alt aö 100 kr. á mán., og allir vita livað dýrt er að lifa þar. Laun mín og praxis hrukku ekki til. Nú flutti eg fjölskyldu mina norður í maí 1927. Er eg þá búinn að flytja þrisvar á þremur árum, milli Reykjavikur og Norðurlands, og búinn að eyða i flutningskostnað alt að 2000 kr. Fékk eg þá sömu íbúð og Árni læknir Helgason hafði. Húsið er lélegur timburhjallur, sem upprunalega var verslunarhús. Því hefir aldrei verið haldið við nema rétt til mála- mynda. Eg veit, að þeir læknar, sem kunnugir eru íslensku hirðuleysi til sveita, geta ímyndað sér hvernig er að búa í slíkum húsum. Tvö herbergin voru sæmilega rúmgóS, svo voru 3 önnur mjög lítil, eitt þeirra raunar geymslukompa. I þessuin 5 herbergjum var 1 ofn, en sá galli var á honum, að í austanátt reykti hann svo, að varla var lift í herbergjun- um. Grunnur hússins var svo siginn, að gólf hölluðust svo i borðstofunni, að láta varð alt að 8 cm. þykka trékubba undir borðfætur öðrumegin og önnur húsgögn, til þess að þau stæðu rétt. Gluggar voru svo óþéttir, að ef vindur stóð upp á ])á, blöktu ekki eingöngu gluggatjöld, heldur einnig dyra- tjöld milli herbergja. Engin þægindi voru, nema ef nefna skyldi vatnsleiðslu úr brunni, sem reyndar var þur alt sumarið, svo að sækja varS vatn i ann- an brunn, en vatn úr honum var ekki hæft til drykkjar ósoðið. Eldhúsið var mjög litið. Eldavélin var bráðónýt, öll brotin og spengd. Hringir voru brotnir, og duttu við og við ofan í eldstóna. Bökunarofninn var brotinn, og ef brauð eða kökur voru í honum, mátti ekki skara í eldinn. Ef það var gert, sáldraðist aska og sót ofan i. Þrir inngangar voru i íbúðina. Einn alveg sérstakur, en á vetrum oft ógerandi að ganga um hann vegna kulda í íbúðinni. Svo var eldhúsinngang- ur, er sameiginlegur var fvrir okkur, húsráðanda — og kýrnar! ÞriSji inngangurinn lá að tveimur herbergjum í íbúð minni og sömu- leiðis var gengið um hann upp á loft. Um þennan inngang bannaði hús- ráðandi mér að ganga, án þess að taka hann undan, er hann leigði mér íbúðina. En nú hafði eg apótek og móttökuherbergi í annari stofunni, sem gengið varð inn i um þennan forboðna gang, svo að þetta varð mjög óþægi- legt, að verða fyrir þessum prettum. Sjúklingar urðu því aS ganga gegnum eldhús og inn í apótekið, eða gegnum borðstofu og eldhús. Auk þess láku herbergin. Fyrir þessa íbúð átti eg að greiða 800 kr., en fékk lækkað í 725 kr. Fyrir þessa sömu ibúð borgaði húsráðandi áður 600 kr., en þá voru með talin 2 herbergi og eld- hús og útgerðarpláss fyrir 1 mótorbát. Þetta var svo góð „spekulation“ fyr- ir manninn, að hann þurfti sjálfur ekkert að greiða í leigu fyrir sína íbúð, ásamt útgerðarplássi fyrir mótorbát og ca. tveggja kúa tún, kartöflugarð o. fl. En þessi aðstaða var sök sér, ef svik og prettir hefðu ekki bætst við. I þessari íbúð á Kljáströnd var eg i eitt ár, eða til vors 1928. Þá losnaði Grenivík úr ábúð. Um jörðina sóttu 6 menn, þar á meðal oddviti Grýtu- bakkahrepps, Björn nokkur Jóhannsson. Ekki var svo sem verið að hugsa um læknisbústaðinn. En svo fór nú samt, að mér var bygður hluti jarðar- innar til þriggja ára. Af túninu hefi eg tæpar 20 dagsláttur. Auk þess tæpar 10 dagsláttur af landi, sem vel er fallið til ræktunar. JörSin var í

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.