Læknablaðið - 01.08.1942, Side 10
LÆKNABLAÐl Ð
3<J
ASeins vil eg nú geta þess, aö
eins og sjá má af bréfum stjórnar
félagsins um þctta efni, þá var
það henni hið mesta kappsmál, aö
reyna á allan hátt aö koma í veg
fyrir, aö • læknastéttin yröi tekin
þeun þrælatökum, sem þar var
gert ráö fyrir og atvinnufreisi
hennar heft frcmur allra annarra
iandsmanna og stétta. Og svo vei
var að heiibrigðisyfirvöldunum
farið, að við. bókstaflega báðumst
griða og lofuðum að beita heldur
ínnantélags-þvingun. en að gera
lækna að leiksoppi stjórnmálanua.
Enda var gert ráð fyrir, aö þetta
yröi rætt á fundi þeim, sem boö-
aöur var vorið 1940. En svo fór
því miður, eins og kunnugt er, aö
fundurinn var látinn falla niöur
fyrir tilmæli landlæknis, sem ald-
rei skildi verið hafa, en þaö skal
tekið fram, að formaöur átti tal
um þetta sérstaka mál viö land-
lækni og- kvaðst treysta þvi, ef
fundur væri látinn falla niöur, að
heilbrigðisstjórnin ekki ryfi grið á
félaginu með því að setja nein
þvingunarlög án þess fundur fé-
lagsins fengi áður að segja álit
sitt. Hvert hér liafi á orðið fullar
efndir, gefst tækifæri til að at-
huga síðar, einkum undir umræð-
unum um 6. og 11. mál dagskrár-
innar.
I yfirlitsskýrslu minni á siöasta
aðalfundi 1939 gat eg þess, aö eig-
inlega væri nauðsynlegt vegna fé-
laga utan Reykjavikur, sem sjald-
an eða aldrei eiga kost á aö sækja
fundi félagsins, aö formaður eða
einhver úr stjórn félagsins gæti
sem oftast, helzt árlega, ferðast
milli félagsmanna. kynnst högum
þeirra, skoðunum og áhugamál-
um persónulega. Þegar útséð var
um það, að fundur yrði 1940, tólý
stjórnin þetta til athugunar, eink-
um vegna þess, aö nauðsynlegt
þótti, að fá aö vita álit sem allra
flestra lækna um hinar væntanlegu
lagabreytingar og' hin fyrirhug-
uðu þvingunarlög, . sem eg áðan
gat um.
Yar stjórn félagsins á einu niáli
um þaö. að sjálfsagt væri að revna
þetta og var þá samþykkt aö senda
íormann í hringferö meö Esjunni,
er leggja átti af staö seint í júní.
Fór eg því þessa skyndiferð, sem
tók rúma 10 daga og var hún
erfiö, eins og geta má nærri. þar
sem komið var viö á 36 eöa 37
höfnum á þ.essum jo dögum og þaö
jafnt aö nóttu sem degi og eg
hitti og átti tal við ruma 30 lækna.
Því miöur voru viðstöður yfirleitt
svo stuttar. aö sjaldan var híegt
að ræöa neitt til þrautar, en samt
sem áöur hafði eg ómetanlegt gagn
og ánægju af för þessari og viö-
ræöunum viö stóttarbræðurna. Vil
eg nota þetta tækifæri til þess aö
flytja þeim öllum mínar innileg-
ustu þakkir fyrir móttökurnar og
samverustundirnar og ekki sízt
þeim, sem lögöu á sig næturvökur
og ferðalög til þess aÖ geta rætt
við mig stutta stund. Má geta nærri
hversu afar vænt mér þótti um
slíkan áhuga, alúö og stéttartil-
finningu, sem mér fannst allstað-
ar lýsa sér bæöi í þessu sem öðru.
Af þessari stuttu reynslu hefi
eg fullkomlega sannfærst um
það, aö slíkar ferðir sem þetta
geta haft mjög mikið gagn bæöi
fyrir félagssamtökin og einstak-
lingana, en svona skyndiferöir
mega þaö helzt eVki oft vera. Ekki
mætti ætla sér minna en 4—6 vik-
ur og skipta þá landinu í kafla.
Vil eg ákveðið ráða þeim, sein
stjórna þessu félagi í framtíðinni.
að taka upp þennan sið minnsta
kosti annaö hvert ár. En þá væri
rétt aö fá til þess heimild næsta
aðalfundar á undan.