Læknablaðið - 01.04.1956, Side 15
læknablaðið
5
Sjúkur maður hefur þá formúl-
una gg, hefur fengið sjúkan
arfstofn frá háðum foreldrum.
Af því sést: Báðir foreldrarnir
geta verið arfhlendnir Gg, en
eru að svipfari heilhrigðir þar
sem G er rikjandi yfir g, en
hafa erfðastofn þessa sjúk-
dóms falinn i sér og flj'tja
hann því áfram með sér og eru
þess vegna kallaðir sjúkdóms-
berar (konduetores). Eignist
tveir arfhlendnir sjúkdóms-
berar afkvæmi kemur þetta
fram:
Gg X Gg
GG Gg Gg gg
25% 50% 25%
Samkvæmt Mendelslögmáli
sömu hlutföll og við æxlun
tveggja kynblendinga, % af-
kvæmanna verður arfhreinn,
heilbrigður, GG, % arfblendn-
ir, heilbrigðir, Gg og % arf-
lireinn, sjúkur, gg. Hlutföll
milli sjúkra og heilbrigðra
verða 3 :1. Giftist sjúkur mað-
ur sjúkdómsarfbera, verður
helmingur barnanna veikur,
en hinn helmingurinn arf-
Jjlendinn arfberi.
gg X Gg
gg Gg
50% 50%
Þessir arfblendnu arfberar
geta svo ljorið sjúkdóminn á-
fram, sem kemur fram ef þeir
liitta á að giftast öðrum, sem
svipað er ástatt um en sá
möguleiki er fremur lítill,
nema þar sem um skyldleika-
giftingar er að ræða en þær
eru alltaf mjög áhættusamar
gagnvart því, að sjúkdómur-
inn magnist og komi mikið
fram við tvöföldun hinna veiku
erfðastofna.
Víkjandi kynbundið
arfgengi.
Við ríkjandi og víkjandi arf-
gengi flyzt sjúkdómurinn og
kemur fram nokkuð svipað lijá
konum og körlum, en til eru
sjúkdómar, sem eru bundnir
við kvnið. Konur eru arfhrein-
ar livað viðvíkur kynerfðum
en karlmenn ekki. Þeir arf-
stofnar, sem eru i kynlitningn-
um, erfast ásamt honum og
eru því kynbundnir. Tveir
nokkuð algengir sjúkdómar
eru bundnir við þennan litn-
ing, er það litblinda og dreyra-
sýki (hæmophilia). Það kem-
ur varla fyrir, að karlmenn séu
leyndir sjúkdómsarfberar
(lconductores), en það eru kon-
urnar, sem flytja sjúkdóminn
yfir á synina, hann býr leynd-
ur í þeim en kemur svo fram í
sonunum, sem flytja hann aft-
ur yfir á sínar dætur.
Kona getur orðið litblind, ef
faðirinn er litblindur og móð-
irin leyndur sjúkdómsarfberi
eða sjúk. Sem dæmi um kyn-
bundið arfgengi ,er þetta lielzt:
1. Sé faðirinn veikur en móðir-
in heilbrigð verða allir synirn-